Fréttablaðið - 25.02.2016, Side 10
BORGARTÚNI 29 ∙ 105 REYKJAVÍK ∙ 585 6500 ∙ WWW.VIRDING.IS
Fyrirtækjaráðgjöf Virðingar auglýsir Leigufélagið Klett ehf. til sölu.
Leigufélagið Klettur hefur það hlutverk að bjóða einstaklingum
og fjölskyldum upp á íbúðir til tryggrar leigu með áherslu á
langtímahugsun og húsnæðisöryggi. Félagið er í hópi stærstu
leigu félaga landsins með 450 íbúðir á nokkrum stöðum um landið.
Íbúða lánasjóður er eigandi félagsins og hefur falið fyrirtækjaráðgjöf
Virðingar að selja félagið í opnu söluferli.
Áhugasömum bjóðendum er boðið að skila inn óskuldbindandi
tilboði fyrir kl. 16 mánudaginn 4. apríl. Þeim sem eiga hag stæðustu
tilboðin verður boðið að halda áfram í ferlinu og munu þeir fá
aðgang að gagna herbergi með frekari gögnum. Þátttakendur í þeim
hluta ferlisins skulu svo skila inn skuld bindandi tilboðum fyrir kl. 16
mánudaginn 2. maí.
Í tengslum við söluferlið verður haldinn opinn kynningarfundur
miðviku daginn 2. mars kl. 13.30 á Grand Hótel Reykjavík þar sem
félagið og söluferlið verða kynnt. Í framhaldi af þeim fundi verða
afhent ítarleg sölugögn til fjárfesta sem undirrita trúnaðaryfirlýsingu
og skila umbeðnum upplýsingum.
Áhugasamir fjárfestar eru beðnir um að hafa samband við fyrir
tækja ráðgjöf Virðingar með tölvupósti á netfangið klettur@virding.is
og munu þeir í framhaldinu fá stutta kynningu á félaginu og frekari
upplýsingar um söluferlið.
Leigufélagið Klettur ehf.
OPIÐ SÖLUFERLI
Heilbrigðismál Í dag ætla Hulda
Birna Vignisdóttir og Einar Einars
son að hefja söfnun til styrktar geð
deildinni 33C. Þar dvöldu þau ásamt
nýfæddri dóttur sinni í desember
síðastliðnum. Dvölin kom Huldu
Birnu upp úr mjög alvarlegu fæð
ingarþunglyndi og nú vill litla fjöl
skyldan gefa eitthvað til baka.
„Aðstaðan þarna er hræðileg.
Það vantar nauðsynlega hluti fyrir
ungbörn og mæður, eins og brjósta
pumpu. Það er ekkert samveruher
bergi fyrir mæður og börn fyrir utan
gluggalaust herbergi inn af vakt
herberginu. Þar að auki er mygla á
deildinni og vond lykt. Veggirnir á
baðherbergjunum eru dökkbrúnir
og vaskarnir gulir. Þetta er í raun
mjög niðurdrepandi umhverfi og
því ekki það besta fyrir nýbakaðar
mæður í þunglyndiskasti,“ segir
Hulda.
Deildin er bráðamóttaka fyrir
fólk með almenna geðsjúkdóma en
þangað leggjast einnig inn óléttar
konur og nýbakaðar mæður. Hulda
lagðist inn þegar hún varð alveg
ófær um daglegt líf. Hún hefur alltaf
barist við þunglyndi en hafði náð
góðri stjórn á því og var einkenna
laus í mörg ár þegar hún varð barns
hafandi. Þá gaus þunglyndið upp
aftur og varð enn verra eftir að dótt
irin fæddist.
„Ég upplifði að mig langaði ekki að
eiga hana, ekki horfa á hana og ekki
hugsa um hana. Mér versnaði stöðugt
og ég var farin að hugsa um sjálfsvíg.
Ég gat ekkert hugsað um stelpuna,
var ekki með hana á brjósti enda
var það of náin stund fyrir mig. Að
lokum samþykkti ég að leggjast inn
á geðdeild.“
Fjölskyldan dvaldi á deildinni í
einn mánuð. Mikilvægt er að börnin
séu með mæðrum sínum á deildinni
til að tengslamyndun rofni ekki,
börnin finni lyktina af móður sinni og
móðirin sjái barnið á hverjum degi.
Börnin eru oft í umsjá starfsmanna, til
dæmis á nóttunni, og þar til móðirin
getur smátt og smátt hugsað meira
um það.
„Þegar ég kom þarna inn sá ég
ekki fram á að mér myndi einhvern
tímann batna. Ég sá ekki fyrir mér að
elska þetta barn. Mér fannst hún vera
fyrir og að það væri henni að kenna
að mér liði svona. En aðstoðin sem
ég fékk er ómetanleg. Hún kom mér
bókstaflega aftur á fætur.“
Og fjölskyldan vill borga til baka
aðstoðina í formi fjáröflunar fyrir
deildina sem Hulda segir greinilega
fjársvelta. „Það er ótrúlegt hvað það
eru margar konur sem þjást af fæð
ingarþunglyndi og fá ekki viðeigandi
aðstoð. Þessi deild býður upp á magn
aða aðstoð og við verðum að viðhalda
þessu. Efla og styrkja deildina.“
Hulda er enn í reglulegum við
tölum hjá teymi sem sinnir mæðrum
með fæðingarþunglyndi. Hún segir að
allt gangi mjög vel í dag og hún sé full
þakklætis. Í desember skrifaði Einar
afar einlægan pistil um reynslu sína af
fæðingarþunglyndi Huldu. Nú kemur
Hulda fram og talar um sína reynslu.
Hún segir að þau vilji stíga fram því
þetta sé enn mikið tabú.
„Við erum bara eðlileg fjölskylda úr
Grafarvoginum sem fór út af braut
inni. Við fórum inn á geðdeild af því
að við þurftum aðstoð og erum mun
sterkari fyrir vikið.“
Langaði ekki í barnið
Fjölskylda sem dvaldi á 33C vegna fæðingarþunglyndis móður hefur söfnun fyrir
deildina í dag. Þau segja aðstöðuna á deildinni hræðilega fyrir veikar mæður og
nýfædd börn. Tíu til fimmtán nýbakaðar mæður eru lagðar inn á ári hverju.
Einar tjáði sig á einlægan hátt um fæð
ingar þunglyndi Huldu og erfiða reynslu
sína tengda því þegar fjölskyldan lá inni
á 33C. Þau hjónin vilja opinskáa um
ræðu um fæðingarþunglyndi.
Fréttablaðið/anton brink
Tíu til fimmtán konur
lagðar inn á ári hverju
FMB-teymið (fæðing, móðir, barn)
var stofnað 2009. Teymið með-
höndlar konur með fæðingarþung-
lyndi og fær um 100 tilvísanir á
ári. Mikill biðlisti hefur verið eftir
þjónustu teymisins undanfarin ár.
Þegar veikindin eru mjög alvar-
leg þarf að leggja konurnar inn á
geðdeild. Bráðamóttakan 33C sem
sinnir fólki með almenna geðsjúk-
dóma hefur tekið á móti konunum.
Áður fyrr voru aðeins fjórar til
sex mæður á ári sem lögðust inn á
geðdeild vegna fæðingarþunglynd-
is en síðustu ár hafa tíu til fimmtán
konur lagst inn á 33C á hverju ári,
ásamt barni og oft maka.
Eingöngu tvær konur komast
fyrir á deildinni í einu því of mikið
álag er á starfsmenn að vera með
þrjú börn.
Deildin fær ekki aukafjármagn
til kaupa á vörum fyrir mæður og
börn. Ekki er sérstaklega gert ráð
fyrir þessum málaflokki í heil-
brigðiskerfinu.
Á síðunni jaha.is verður uppboð
á íþróttatreyjum og tekið á móti
frjálsum framlögum til styrktar
33C. Einnig er tekið á móti gjöfum
fyrirtækja og einstaklinga.
Fjáröflun
fjölskyldunnar
Hulda birna með fjögurra mánaða dótturina Sigrúnu birnu. Í dag gengur litlu fjöl
skyldunni vel í lífinu og þakkar 33C árangurinn. Fréttablaðið/anton brink
Ég sá ekki fyrir mér
að elska þetta barn.
Mér fannst hún vera fyrir og
að það væri henni að kenna
að mér liði svona.
Hulda Birna Vignisdóttir
Erla Björg
Gunnarsdóttir
erlabjorg@365.is
2 5 . f e b r ú a r 2 0 1 6 f i m m T U D a g U r10 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð