Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.02.2016, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 25.02.2016, Qupperneq 10
BORGARTÚNI 29 ∙ 105 REYKJAVÍK ∙ 585 6500 ∙ WWW.VIRDING.IS Fyrirtækjaráðgjöf Virðingar auglýsir Leigufélagið Klett ehf. til sölu. Leigufélagið Klettur hefur það hlutverk að bjóða einstaklingum og fjölskyldum upp á íbúðir til tryggrar leigu með áherslu á langtímahugsun og húsnæðisöryggi. Félagið er í hópi stærstu leigu félaga landsins með 450 íbúðir á nokkrum stöðum um landið. Íbúða lánasjóður er eigandi félagsins og hefur falið fyrirtækjaráðgjöf Virðingar að selja félagið í opnu söluferli. Áhugasömum bjóðendum er boðið að skila inn óskuldbindandi tilboði fyrir kl. 16 mánudaginn 4. apríl. Þeim sem eiga hag stæðustu tilboðin verður boðið að halda áfram í ferlinu og munu þeir fá aðgang að gagna herbergi með frekari gögnum. Þátttakendur í þeim hluta ferlisins skulu svo skila inn skuld bindandi tilboðum fyrir kl. 16 mánudaginn 2. maí. Í tengslum við söluferlið verður haldinn opinn kynningarfundur miðviku daginn 2. mars kl. 13.30 á Grand Hótel Reykjavík þar sem félagið og söluferlið verða kynnt. Í framhaldi af þeim fundi verða afhent ítarleg sölugögn til fjárfesta sem undirrita trúnaðaryfirlýsingu og skila umbeðnum upplýsingum. Áhugasamir fjárfestar eru beðnir um að hafa samband við fyrir­ tækja ráðgjöf Virðingar með tölvupósti á netfangið klettur@virding.is og munu þeir í framhaldinu fá stutta kynningu á félaginu og frekari upplýsingar um söluferlið. Leigufélagið Klettur ehf. OPIÐ SÖLUFERLI Heilbrigðismál Í dag ætla Hulda Birna Vignisdóttir og Einar Einars­ son að hefja söfnun til styrktar geð­ deildinni 33C. Þar dvöldu þau ásamt nýfæddri dóttur sinni í desember síðastliðnum. Dvölin kom Huldu Birnu upp úr mjög alvarlegu fæð­ ingarþunglyndi og nú vill litla fjöl­ skyldan gefa eitthvað til baka. „Aðstaðan þarna er hræðileg. Það vantar nauðsynlega hluti fyrir ungbörn og mæður, eins og brjósta­ pumpu. Það er ekkert samveruher­ bergi fyrir mæður og börn fyrir utan gluggalaust herbergi inn af vakt­ herberginu. Þar að auki er mygla á deildinni og vond lykt. Veggirnir á baðherbergjunum eru dökkbrúnir og vaskarnir gulir. Þetta er í raun mjög niðurdrepandi umhverfi og því ekki það besta fyrir nýbakaðar mæður í þunglyndiskasti,“ segir Hulda. Deildin er bráðamóttaka fyrir fólk með almenna geðsjúkdóma en þangað leggjast einnig inn óléttar konur og nýbakaðar mæður. Hulda lagðist inn þegar hún varð alveg ófær um daglegt líf. Hún hefur alltaf barist við þunglyndi en hafði náð góðri stjórn á því og var einkenna­ laus í mörg ár þegar hún varð barns­ hafandi. Þá gaus þunglyndið upp aftur og varð enn verra eftir að dótt­ irin fæddist. „Ég upplifði að mig langaði ekki að eiga hana, ekki horfa á hana og ekki hugsa um hana. Mér versnaði stöðugt og ég var farin að hugsa um sjálfsvíg. Ég gat ekkert hugsað um stelpuna, var ekki með hana á brjósti enda var það of náin stund fyrir mig. Að lokum samþykkti ég að leggjast inn á geðdeild.“ Fjölskyldan dvaldi á deildinni í einn mánuð. Mikilvægt er að börnin séu með mæðrum sínum á deildinni til að tengslamyndun rofni ekki, börnin finni lyktina af móður sinni og móðirin sjái barnið á hverjum degi. Börnin eru oft í umsjá starfsmanna, til dæmis á nóttunni, og þar til móðirin getur smátt og smátt hugsað meira um það. „Þegar ég kom þarna inn sá ég ekki fram á að mér myndi einhvern tímann batna. Ég sá ekki fyrir mér að elska þetta barn. Mér fannst hún vera fyrir og að það væri henni að kenna að mér liði svona. En aðstoðin sem ég fékk er ómetanleg. Hún kom mér bókstaflega aftur á fætur.“ Og fjölskyldan vill borga til baka aðstoðina í formi fjáröflunar fyrir deildina sem Hulda segir greinilega fjársvelta. „Það er ótrúlegt hvað það eru margar konur sem þjást af fæð­ ingarþunglyndi og fá ekki viðeigandi aðstoð. Þessi deild býður upp á magn­ aða aðstoð og við verðum að viðhalda þessu. Efla og styrkja deildina.“ Hulda er enn í reglulegum við­ tölum hjá teymi sem sinnir mæðrum með fæðingarþunglyndi. Hún segir að allt gangi mjög vel í dag og hún sé full þakklætis. Í desember skrifaði Einar afar einlægan pistil um reynslu sína af fæðingarþunglyndi Huldu. Nú kemur Hulda fram og talar um sína reynslu. Hún segir að þau vilji stíga fram því þetta sé enn mikið tabú. „Við erum bara eðlileg fjölskylda úr Grafarvoginum sem fór út af braut­ inni. Við fórum inn á geðdeild af því að við þurftum aðstoð og erum mun sterkari fyrir vikið.“ Langaði ekki í barnið Fjölskylda sem dvaldi á 33C vegna fæðingarþunglyndis móður hefur söfnun fyrir deildina í dag. Þau segja aðstöðuna á deildinni hræðilega fyrir veikar mæður og nýfædd börn. Tíu til fimmtán nýbakaðar mæður eru lagðar inn á ári hverju. Einar tjáði sig á einlægan hátt um fæð­ ingar þunglyndi Huldu og erfiða reynslu sína tengda því þegar fjölskyldan lá inni á 33C. Þau hjónin vilja opinskáa um­ ræðu um fæðingarþunglyndi. Fréttablaðið/anton brink Tíu til fimmtán konur lagðar inn á ári hverju FMB-teymið (fæðing, móðir, barn) var stofnað 2009. Teymið með- höndlar konur með fæðingarþung- lyndi og fær um 100 tilvísanir á ári. Mikill biðlisti hefur verið eftir þjónustu teymisins undanfarin ár. Þegar veikindin eru mjög alvar- leg þarf að leggja konurnar inn á geðdeild. Bráðamóttakan 33C sem sinnir fólki með almenna geðsjúk- dóma hefur tekið á móti konunum. Áður fyrr voru aðeins fjórar til sex mæður á ári sem lögðust inn á geðdeild vegna fæðingarþunglynd- is en síðustu ár hafa tíu til fimmtán konur lagst inn á 33C á hverju ári, ásamt barni og oft maka. Eingöngu tvær konur komast fyrir á deildinni í einu því of mikið álag er á starfsmenn að vera með þrjú börn. Deildin fær ekki aukafjármagn til kaupa á vörum fyrir mæður og börn. Ekki er sérstaklega gert ráð fyrir þessum málaflokki í heil- brigðiskerfinu. Á síðunni jaha.is verður uppboð á íþróttatreyjum og tekið á móti frjálsum framlögum til styrktar 33C. Einnig er tekið á móti gjöfum fyrirtækja og einstaklinga. Fjáröflun fjölskyldunnar Hulda birna með fjögurra mánaða dótturina Sigrúnu birnu. Í dag gengur litlu fjöl­ skyldunni vel í lífinu og þakkar 33C árangurinn. Fréttablaðið/anton brink Ég sá ekki fyrir mér að elska þetta barn. Mér fannst hún vera fyrir og að það væri henni að kenna að mér liði svona. Hulda Birna Vignisdóttir Erla Björg Gunnarsdóttir erlabjorg@365.is 2 5 . f e b r ú a r 2 0 1 6 f i m m T U D a g U r10 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.