Fréttablaðið - 25.02.2016, Qupperneq 12
Tími fyrir forsáningu kryddjurta
til að hafa í pottum inni er hafinn.
Svo er hægt að sá aftur fyrir þeim
sem eiga að fara út í garð. Noti
maður mikið af kryddjurtum
borgar sig að vera með sáningu á
nokkrum stigum.
„Það er orðið það bjart úti að
plöntur geta dafnað í gluggum.
Það er upplagt að sá fyrir basil-
íku núna. Hún er hitakær og hún
þrífst bara inni. Kóríander sem
sáð er núna myndi ekki farnast
vel þegar því væri plantað út þar
sem það sprettur úr sér inni. Það
er hins vegar hægt að sá kórían-
derfræjum núna til tína blöðin af
jafnóðum af og neyta þeirra. Svo
er hægt að sá aftur fyrir kóríander
sem á að fara út. En það má líka
sá kóríander beint út þegar tími
er kominn til að sá út,“ segir Lára
Jónsdóttir, garðyrkjufræðingur
hjá Blómavali.
Hún segir að þar sem tímían og
rósmarín auk graslauks og stein-
selju sé svolítið lengi að spíra
sé ágætt að byrja að sá þessum
kryddjurtum.
Við sáningu þarf að gæta þess að
vera með nýja, góða mold, gjarnan
sáðmold. Lára tekur það fram að
sáðmold sé þó ekki skilyrði við
sáningu kryddjurta. „Maður getur
sáð öllum þessum jurtum beint í
potta með venjulegri mold en hún
þarf að vera ný.“
Sett eru 20 til 30 fræ í hvern pott
af stærðinni 10 til 15 cm, að því er
garðyrkjufræðingurinn bendir á.
„Reglan við sáningu er að þekja
ekki fræin meira en sem nemur
tvöfaldri til þrefaldri þykkt þeirra.
Ef fræin eru ofsalega fíngerð
klappar maður þeim bara ofan á
moldina.“
Gæta þarf þess að moldin sé vel
rök áður en fræin eru sett niður. Sé
vökvað eftir á er hætta á að fræin
skolist til.
Gott er að breiða plast, sem
hefur verið gatað, yfir pottana.
Séu þeir í glugga sem sólin skín á
ætti að breiða hvítt plast yfir til að
fræin hitni ekki of mikið. Góður
spíringarhiti er 22 til 24 gráður.
Ef plast er haft yfir þarf að vökva
sjaldnar í spírunarfasanum. Nóg
er að fylgjast vel með því að jafn
raki sé í moldinni, að sögn Láru.
Verði stilkurinn á plöntunni
þunnur og ræfilslegur er líklegt að
of dimmt eða of heitt hafi verið á
fræjunum. Jafnvægi þarf að vera á
milli birtu og hita.
Ekki þarf að gefa næringu fyrr
en kominn er góður vöxtur í
plöntuna. Meðan rótin er ung og
viðkvæm er beðið með áburðar-
gjöf.
ibs@frettabladid.is
Tími til að sá kryddjurtum
Nógu bjart er orðið úti til að jurtirnar geti dafnað í gluggum. Noti maður mikið af kryddjurtum borgar sig
að vera með sáningu á nokkrum stigum. Hægt er að sá í venjulega mold en hún þarf að vera ný.
„Maður getur sáð öllum þessum jurtum beint í potta með venjulegri mold en hún þarf að vera ný og góð,“ segir Lára Jóns-
dóttir, garðyrkjufræðingur hjá Blómavali. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ráð
Heimilið
App
Health
www.fi.is
Skemmtileg ferð
í nágrenni borgarinnar
á gönguskíðum
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
Farið í rútu frá skrifstofu FÍ, Mörkinni 6 kl. 9. Gengið frá Leirvogs-
vatni þvert yfir Mosfellsheiði með viðkomu í Borgarhólum sem
eru á miðri heiðinni. Ferðin endar við Litlu kaffistofuna þar sem
við fáum okkur kaffi og pönnukökur áður en rúta sækir hópinn
og ekur í bæinn. Áætluð koma í bæinn er um kl. 17.00
Skráning á skrifstofu FÍ í
síma 568 2533 fyrir kl. 14,
föstudaginn 26 febrúar
Verð 6.000/9.000
Laugardagur 27. febrúar
Mosfellsheiði - Borgarhólar - Litla kaffistofan
Appið Health fylgir öllum nýjustu
iPhone-símum og aðrir geta sótt
sér það inni á App Store. Forritið er
upplagt fyrir þá sem vilja hugsa um
heilsuna en eru með tóma buddu.
Mælt er með að ganga 10 þúsund
skref á dag og mælir appið til að
mynda skrefin frítt.
Umsagnir Almennt eru notendur
ánægðir með appið þó við það mætti
ýmsu bæta að sögn þeirra.
„Ég er mjög meðvitaður um það
þegar ég er að fara að eyða einhverj-
um peningum hvað er í boði í sama
klassa og það sem ég er að fara að
kaupa. Ég veit hvað hluturinn kostar
í öðrum búðum og fer þangað sem
hann kostar minnst,“ segir Jan Mur-
tomaa, umsjónarmaður fjölmenna
Facebook-hópsins Neytendahornið.
Að gera verðsamanburð
„Ef menn eru að fara að kaupa eitt-
hvað dýrt þá borgar sig að athuga
hvaða verð hinir eru að bjóða. Eða
ef maður getur fengið sambæri-
legan hlut annars staðar á miklu
lægra verði. Það sama á við um
allar útsölur. Fólk þarf að athuga
hvort það sé virkilega verið að
bjóða útsöluverð. Það hefur hálf-
gert svindl komið fyrir.
Maður hefur séð að útsöluverð
er í raun ekki útsöluverð sem slíkt.
Verslanir hækka verð rétt fyrir
útsölu og segja að afslátturinn sé
tuttugu prósent en þá er varan
komin á sama verð og áður.“
Jan segist mikið nýta sér vefsíður
verslana til að gera verðsaman-
burð. „En stundum fer ég að keyra
og skoða. Tími er peningar líka.
Ef maður er að fara að kaupa eitt-
hvað sem kostar mikið en maður
kaupir sjaldan þá er allt í lagi að sjá
til þess að maður fái mest fyrir sem
minnst.
Að gera magninnkaup
Jan hefur líka verið meðvitaður um
að oft borgi sig að gera magninn-
kaup á vöru sem fæst í smásöluum-
búðum í stórmörkuðum. Þannig
skoðaði hann verð á fljótandi sápu
í lágvöruverðsverslunum og komst
að því að lítraverðið var 370 pró-
sent hærra en hjá Rekstrarvörum.
Með þeim hætti fékk hann 300
ml umbúðir af handsápu á 1.320
krónur lítrann en 5 lítra umbúðir á
380 krónur lítrann. Með þessu má
spara sér stórfé.
Það borgar sig að gera verðsamanburð
370 prósenta munur var á verði á fljótandi sápu þegar Jan Murtomaa bar saman verð í verslunum.
Neytandinn:
Jan Murtomaa, umsjónarmaður Facebook-hópsins Neytendahornið
Verði stilkurinn á
plöntunni þunnur og ræfils-
legur er líklegt að of dimmt
eða of heitt hafi verið á
fræjunum. Jafnvægi þarf að
vera á milli birtu og hita.
Skóframleiðendur mæla almennt
ekki með því strigaskór séu þvegnir í
þvottavélum. Gamla, góða ráðið að
þvo skóna upp úr heitu sápuvatni í
bala eða fötu þykir virka vel. Best er
að nota venjulegt þvottaefni.
Takið fyrst reimarnar úr skónum.
Skrúbbið síðan skóna vandlega með
svampi.
Ef skóreimarnar eru hvítar prófið
þá að láta reimarnar liggja í köldu
klórblönduðu vatni til að lýsa þær ef
þær eru orðnar mjög dökkar. Þvoið
þær síðan upp úr sápuvatni.
Best að þvo
strigaskóna í bala
neytenduR
2 5 . f e B r ú a r 2 0 1 6 f i m m T U D a g U r12 f r é T T i r ∙ f r é T T a B L a ð i ð