Fréttablaðið - 25.02.2016, Side 16

Fréttablaðið - 25.02.2016, Side 16
„Umsvif sjónvarps- og kvikmynda- iðnaðar hafa aukist verulega og það er mikil gróska í þessum geira. Þetta er stór atvinnugrein og mun stærri en margir halda. Heildarvelta í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði er nánast sú sama og í mjólkur- eða kjötiðnaðinum á Íslandi,“ segir Hallgrímur Kristinsson, stjórnar- formaður FRÍSK, Félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði. Heildarvelta sjónvarps- og kvik- myndaiðnaðar á Íslandi hefur aukist um 37 prósent frá árinu 2009. Samkvæmt tölum Hagstof- unnar var heildarvelta iðnaðarins á Íslandi 34,5 milljarðar króna á síðasta ári. Undir þessa tölu fellur framleiðsla og dreifing kvikmynda og sjónvarpsefnis, kvikmyndasýn- ingar, dagskrárgerð og útsendingar sjónvarps og útvarps. Þá er heildarfjöldi ársverka í iðnaðinum um 1.300 talsins, á við þrjú stóriðjuverkefni. Þetta kemur fram í skýrslu sem Capa- cent vann fyrir FRÍSK. Hallgrímur segir mikla grósku hafa átt sér stað á undanförnum árum, þá segir hann Íslendinga njóta vaxandi alþjóðlegrar virð- ingar á þessu sviði. „Íslensk fram- leiðslufyrirtæki hafa sinnt stórum erlendum verkefnum sem tekin hafa verið upp hér á landi og má þar nefna Star Wars, The Secret Life of Walter Mitty, Interstellar, Game of Thrones, Thor, Oblivion og Fortitude svo dæmi séu tekin, Þá hafa sjónvarpsstöðvarnar verið ötular að þróa viðskipta- módel sín og bjóða fram efni sitt með nýjum leiðum,“ segir Hall- grímur. Hallgrímur bendir einnig á að afþreyingarmarkaðurinn hér á landi hafi breyst mikið á undan- förnum misserum, einkum vegna samkeppni frá Netflix og ólög- legu niðurhali. „Þessi vandamál skaða atvinnugreinina og einnig raunar hagsmuni opinberra aðila vegna glataðra skatttekna. Því miður hefur óhagstætt skattaum- hverfi og takmarkaður stuðningur stjórnvalda á vissum sviðum sömuleiðis gert okkur erfitt fyrir,“ segir Hallgrímur. Undir FRÍSK starfa RÚV, 365 miðlar, SkjárEinn, Samfilm, Sena, Myndform og Bíó Paradís. Skýrsl- an var einnig unnin í samstarfi við Samband íslenskra kvikmynda- framleiðanda sem eru heildar- samtök kvikmyndaframleiðanda á Íslandi. thorgnyr@frettabladid.is Því miður hefur óhagstætt skatta­ umhverfi og takmarkaður stuðningur stjórnvalda á vissum sviðum sömuleiðis gert okkur erfitt fyrir. Hallgrímur Kristins- son, stjórnarfor- maður FRÍSK Rafhitarar í skip, hús og sumarhús Ryðfríir neysluvatnshitarar með 12 ára ábyrgð Hitöld (element), hitastillar, hitastýringar og flest annað til rafhitunar Við erum sérfræðingar í öllu sem viðkemur rafhitun. Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði Sími: 565 3265 rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is Gróska er í afþreyingariðnaði Heildarvelta í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði er næstum sú sama og í kjötiðnaði á Íslandi. Heildarvelta iðnaðarins hefur aukist mikið og var í fyrra 34,5 milljarðar króna. Formaður FRÍSK, félags rétthafa, segir að aukin samkeppni frá efnisveitum á borð við Netflix og ólöglegt niðurhal skaði atvinnugreinina. Grillmarkaðurinn hefur keypt hlut í Skúla Craft Bar. Þetta staðfestir Hrefna Rósa Sætran, eigandi Fisk- og Grillmarkaðarins. „Þeir voru þrír sem áttu barinn og einn er áfram og Grillmarkaðurinn á þá tvo þriðju eftir þetta,“ segir Hrefna. „Okkur finnst þetta passa rosa vel saman. Okkur var farið að langa í bar en vorum ekki farin út í það að stofna nýjan bar, því það er svo mikið af börum í Reykjavík. Þann- ig að við ákváðum að kaupa okkur inn í besta barinn. Við sjáum fyrir okkur gott samstarf þar á milli,“ segir hún. Hrefna segir að þau muni halda hugmyndafræðinni eins og hún er á Skúla í dag og muni rækta sam- starf á milli Skúla og Fisk- og Grill- markaðarins. „Við erum mjög hrifin af öllu eins og þetta er í dag. Við telj- um okkur geta gert mjög góða hluti þarna. Við erum með Borg bjóra á Grillmarkaðnum og verðum með mikið úrval áfram af Borg bjórum á Skúla, svo er að koma út nýr bjór frá Borg núna 1. mars sem er búinn til fyrir Fisk- og Grillmarkaðinn og heitir Hrefna og hann verður þá í boði líka á Skúla,“ segir Hrefna Rós Sætran. – sg Grillmarkaðurinn kaupir hlut í Skúla Craft bar Hrefna Rósa Sætran, eigandi Fisk- markaðarins og Grillmarkaðarins. Sjónvarpsþættirnir Game of Thrones hafa að hluta til verið teknir upp á Íslandi. FRéTTablaðið/VilHelm „Þróunin í landinu á öllum sviðum er til hins illa,“ segir Guðrún Kvaran, formaður Íslenskrar málnefndar. Hún er ósátt við að Íslandsbanki, sem nú er kominn í ríkiseigu, hafi í vikunni gefið út ársreikning á ensku. Guðrún telur að ríkið eigi að vera í fararbroddi í þessum málum. Málnefndin sendi fyrr í þessum mánuði umsögn um frumvarp að lögum um ársreikninga þar sem því var mótmælt að heimilt yrði að gefa út ársreikninga á íslensku eða ensku. „Við lítum svo á að það eigi að vera hægt að nota íslensku til alls af því það er í íslenskri málstefnu og líka í lögum um íslenska tungu frá 2011. Við litum því þannig á að ef það þarf endilega að hafa ársreikn- ing á erlendu máli vegna samskipta við erlend fyrirtæki, þá þarf hann líka að vera á íslensku. Að það eigi alltaf að vera á íslensku en það megi þýða yfir á ensku ef nauðsyn krefur,“ segir Guðrún. „Við eigum að vera ánægð með að hafa þetta tungumál okkar. Það verða allir að hjálpast að við að við- halda því. Það er búið að koma nán- ast daglega eitthvað sem við höfum þurft að mótmæla,“ segir Guðrún. Hún bendir þar á að nefndin hafi mótmælt að til standi að eftir- nöfn en ekki eiginnöfn leikmanna íslenska karlalandsliðsliðsins í knattspyrnu verði aftan á treyjum þeirra á Evrópumótinu í Frakklandi í sumar og að á skiltum á Keflavíkur- flugvelli séu upplýsingar nú fyrst á ensku og svo á íslensku. – ih Málnefnd ósátt við bankauppgjör á ensku Íslensk málnefnd sendi umsögn um frumvarp að lögum um ársreikninga þar sem því var mótmælt að heimilt yrði að gefa út ársreikninga á íslensku eða ensku. Stjórn VÍS leggur til að 5 millj- arðar verði greiddir í arð fyrir árið 2015. VÍS hagnaðist um 2,1 millj- arð króna á síðasta ári miðað við 1,2 milljarða hagnað árið 2014. Tekjur af fjárfestingarstarfsemi námu 4,1 milljarði samanborið við 2,4 milljarða árið 2014. Þá nam samsett hlutfall, sem er skilgreint sem tjónakostnaður og rekstrarkostnaður sem hlutfall af iðgjöldum, 101,5 prósentum á síðasta ári. Hlutfallið batnaði því milli ára en það var 104,5 prósent árið 2014. „Ánægjulegt er að sjá að ágætur vöxtur var í innlendum iðgjöldum og hækk- uðu bókfærð iðgjöld um 5,8% á árinu. Þrátt fyrir iðgjaldavöxt er vöxtur í tjónatíðni áhyggjuefni og það verður áfram áskorun að ná ásættanlegri afkomu af mörgum greinaflokkum vátrygginga,“ segir Sigrún Ragna Óladóttir, forstjóri VÍS. VÍS sendi í lok nóvember bréf á viðskiptavini sína þar sem til- kynnt var að iðgjöld yrðu hækk- uð vegna slæmrar afkomu. – ih Vilja 5 milljarða arð úr VÍS Hagnaður Arion banka eftir skatta á árinu 2015 nam tæpum 50 millj- örðum króna. „Afkoma ársins er afar góð en markast mjög af óreglulegum liðum. Árið 2015 markar ákveðin kaflaskil í starfsemi Arion banka því á árinu voru nokkur umfangsmikil úrlausn- arverkefni leidd til lykta. Verkefni sem unnið hefur verið að innan bankans um nokkurra ára skeið,“ segir Höskuldur Ólafsson banka- stjóri í tilkynningu. Þar er fyrst og fremst um að ræða sölu bankans á hlutum í fimm félögum. Það er Reitum fasteigna- félagi, Eik fasteignafélagi, Símanum, alþjóðlega drykkjaframleiðand- anum Refresco Gerber og Bakkavor Group Hagnaður af reglulegri starfsemi bankans nam 16,8 milljörðum króna samanborið við 12,7 milljarða árið 2014. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi nam 10,4 prósentum á árinu samanborið við 10,7 prósent árið 2014. Heildareignir námu í árs- lok 2015 1.011,0 milljörðum króna samanborið við 933,7 milljarða króna í árslok 2014 og eigið fé hlut- hafa bankans nam 192,8 milljörðum króna í árslok og hafði hækkað um 20 prósent milli ára. – jhh 50 milljarðar í hagnað Viðskipti 2 5 . f e b r ú a r 2 0 1 6 f I M M T U D a G U r16 f r é T T I r ∙ f r é T T a b L a ð I ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.