Fréttablaðið - 25.02.2016, Side 40
Mark Kislich hefur um nokkurra
ára skeið starfað sem styrkt-
arþjálfari fyrir marga af betri
íþróttamönnum landsins auk
nokkur félagsliða. Meðal þeirra
má nefna Eið Smára Guðjohnsen,
Loga Geirsson og knattspyrnu-
konurnar Hörpu Þorsteinsdóttur,
Katrínu Ómarsdóttur og Söndru
Sif Magnúsdóttur.
Hingað til hefur Mark að
mestu leyti þjálfað íslenska fót-
boltamenn en hann hefur einn-
ig þjálfað leikmenn í handbolta,
júdó og fleiri íþróttagreinum.
„Ég reyni þó að forðast að vinna
með íþróttaliðunum þar sem ég
kýs frekar að vinna með einstök-
um íþróttamönnum. Það þyrfti
a.m.k. að vera eitthvað virkilega
spennandi til að ég tæki slíkt
verkefni að mér. Auk hefðbund-
inna íþróttamanna þjálfa ég einn-
ig einstaklinga sem eru vel á sig
komnir og taka þjálfun sína al-
varlega.“
Mark hefur komið víða við á
löngum ferli sínum, bæði innan-
lands og erlendis. „Ég hef búið og
starfað t.d. í London og í Þýska-
landi auk þess að stunda nám í
Kanada, Írlandi, Bandaríkjunum
Nauðsynlegt að hafa e igin
þjálfara til að ná árang ri
Mark hefur komið víða við á löngum ferli sínum, bæði innanlands og erlendis.
„Þjálfun afreksíþróttamann er flókið ferli og laga þarf þjálfun að hverjum og einum
og um leið að viðkomandi íþrótt,“ segir Mark Kislich. MYNDir/ViLHELM
Það er mikilvægt að taka æfingarnar alvarlega, að sögn Marks Kislich.
Mark hefur starfað sem
styrktarþjálfari fyrir
marga af betri
íþróttamönnum landsins.
Hann segir Íslendinga
upp til hópa hrausta og
líkamlega sterka.
Nauðsynlegt sé þó að
hafa eigin einkaþjálfara
sé markmiðið að ná
hámarks árangri, sama í
hvaða íþrótt það er.
og á Ítalíu. Ég hef t.d. lært undir
stjórn Als Vermeil sem er að
mínu mati besti styrktarþjálfari
heims en hann hefur m.a. þjálfað
leikmenn í NFL- og NBA-deild-
unum bandarísku. Auk hans má
nefna dr. Michael Leahy, stofn-
anda A.R.T. Sports Therapy.“
Skortir hvatningu
Þjálfunarferlið hjá Mark er í föst-
um skorðum. „Fyrst hitti ég við-
komandi einstakling, tek stutt við-
tal við hann og tek nokkur próf.
Að því loknu hefst fyrsta stigið af
þjálfuninni þar sem ég m.a. tek
á næringu, fæðubótarefnum og
ýmsum meðferðum til að koma í
veg fyrir meiðsli eða vinn í endur-
hæfingu vegna meiðsla. Allt þetta
og meira til svo hægt sé að ná há-
marks árangri.“
Eftir að hafa þjálfað marga
íþróttamenn hér á landi segir
Mark það vera augljóst að Ís-
lendingar séu upp til hópa heilsu-
hraustir, mjög duglegir og byggi
á sterkum grunni þegar kemur að
þjálfun. „Það má með sanni segja
að Íslendingar séu líka afskap-
ÍSLENSKA KÍSILSTEINEFNIÐ
FRÁ GEOSILICA INNIHELDUR
HREINAN JARÐHITAKÍSIL
• Styrkir bandvefi nn*
• Stuðlar að þéttleika í beinum*
• Styrkir hár og neglur*
• Stuðlar að betri myndun kollagens
fyrir sléttari og fallegri húð*
*Rannsóknir hafa sýnt fram á þessi áhrif, kísilvatnið er fæðubótarefni og kemur ekki í staðinn fyrir lyf.
Kísillinn kemur beint úr iðrum jarðar og er
því eins náttúrulegur og nokkur kostur er á.
Það eru engin viðbætt efni í vörunni.
ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR
„Ég mjaðmargrindar brotn aði illa
fyrir tíu mán uðum, ég hef verið að
taka kísilinn ykkar núna í u.þ.b.
8 mánuði og eftir tveggja til
þriggja mán aða inntöku varð ég
strax vör við mikinn mun. Í dag
finn ég varla fyrir því að hafa brotnað.“
HAFDÍS PRISCILLA MAGNÚSDÓTTIR
„Ég finn mikinn mun á mér eftir að ég
byrjaði að taka kísilinn frá GeoSilica inn
reglulega. Beinverki og vefjagigtaverki
er ég í raun alveg hætt að finna. Einnig
finn ég mikinn mun á nöglum en þær
eru mun sterkari, en þær voru alltaf að
brotna hjá mér. Ég get alveg sagt að þið eruð komin með
framtíðarkúnna hvað mig varðar.“
GeoSilica kísilvatnið fæst í heilsuvörubúðum, öllum helstu apótekum,
Nettó og í Hagkaup Kringlunni, Hagkaup Smáralind og Hagkaup Garðabæ.
HEiLsa og fEgurð Kynningarblað
25. febrúar 201610