Fréttablaðið - 25.02.2016, Síða 41
Nauðsynlegt að hafa e igin
þjálfara til að ná árang ri
lega líkamlega sterkir. Þannig
hafa margir íþróttamenn sem ég
þjálfa hér á landi forskot miðað
við erlenda íþróttamenn, í raun
bæði þegar kemur að styrk og
vinnusemi. En það sem íslenska
íþróttamenn skortir hins vegar, í
samanburði við erlenda íþrótta
menn, er hvatningin. Erlendis
bíða aðrir íþróttamenn í röðum
eftir að komast að í liðum en hér
á landi er samkeppnin ekki með
sama hætti. Atvinnumennskan
hér á landi á enn talsvert langt
í land, miðað við nágrannalönd
ykkar. Enda skortir sjaldan
hvatningu hjá atvinnumönnum í
íþróttum sem jafnvel þéna hátt í
milljarð á ári.“
Sparar tíma og peninga
Hann ítrekar nauðsyn þess að
hafa sinn eigin þjálfara, sé mark
miðið að ná hámarks árangri.
„Fyrir þá sem ekki eru íþrótta
menn skiptir góður þjálfari öllu
máli til að stýra viðkomandi í
rétta átt og að ná markmiðum
sínum með fljótari hætti en ella.
Fyrir íþróttamenn skiptir það
þó öllu máli að vera með þjálf
ara. Þjálfun afreksíþróttamanns
er flókið ferli og laga þarf þjálf
un að hverjum og einum og um
leið að viðkomandi íþrótt. Um
leið er afar auðvelt að gera ein
hverjar vitleysur. Þannig er auð
velt að eyða bæði tíma og pening
um í vitleysu og það sem verra
er, árangurinn gæti versnað og
meiðslahættan aukist sem er auð
vitað algjör óþarfi.“
Til að ná góðum árangri er
mikil vægt að hafa nokkra þætti
í huga, segir Mark. „Það er mikil
vægt að taka æfingarnar alvar
lega, hlusta vel á hvað þjálfar
inn vill að þú gerir, bæði í rækt
inni og í eldhúsinu. Íþróttamenn
eiga að setja sér skýr markmið
og vinna jafnt og þétt að þeim.“
Mataræðið skiptir líka miklu
máli, að sögn Marks. Sé borðað
ur hollur matur verði maður heil
brigðari og léttari. „Þar mæli ég
með fæði sem inniheldur mikið
kolvetni, litla fitu og ég legg
mikla áherslu á grænmeti og
ávexti.“
Heimagert hrökkbrauð er ótrúlega
hollt og gott. Brauðið er best þegar
það er nýtt. Alls kyns álegg passar vel
með hrökkbrauðinu, allt eftir smekk.
1 dl haframjöl
2 msk. hveiti
1 tsk. salt
30 g rifinn parmesanostur
2 msk. kotasæla
1,5 tsk. lyftiduft
3 egg
1 tsk. kanill
4 dl fræblanda
Blandið saman hafragrjónum, fræblönd-
unni, salti og lyftidufti. Hrærið saman og
síðan osti, kotasælu og eggjum. Bland-
ið allt vel saman. Breiðið bökunarpapp-
ír á ofnplötu og hellið blöndunni ofan á
pappírinn. Blandan á að þekja 2/3 af plöt-
unni. Brauðið á að vera örlítið þykkara en
venjulegt hrökkbrauð. Dreifið sjávarsalti
og sesamfræjum yfir.
Hitið ofninn í 225°C og bakið brauðið í
u.þ.b. 13 mínútur. Skiptir brauðinu í jafna
hluta þegar það kemur úr ofninum. Kælið
síðan á rist. Uppskriftin gefur 12 sneiðar
og hver þeirra er um 182 hitaeiningar.
Heimagert Hrökkbrauð
Tilboðsverð kr. 159.615,-
Með fylgir Vitamix sleif, drykkjarmál
og svunta
Fullt verð kr. 199.518,-
Vitamix Pro 750 á sér engann
jafningja.
Nýtt útlit og nýir
valmöguleikar.
5 prógrömm og hraðastillir
sjá til þess að blandan verður
ávallt fullkomin og fersk!
Með fylgir uppskriftarbók og
DVD diskur.
Lífstíðareign!
Galdurinn við
ferskt hráefni
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Kynningarblað heilsa og fegurð
25. febrúar 2016 11