Fréttablaðið - 25.02.2016, Side 42
Erna María Eiríksdóttir, snyrti-
fræðimeistari hjá Verði þinn
vilji, segir að ekki sé nóg að
hugsa um sjálfan sig, ekki sé
síður nauðsynlegt að bera á
börnin. „Í svona umhleyping-
um í veðri, eins og verið hafa,
auk þess sem við höfum þunnt
ósónlag yfir okkur, er nauðsyn-
legt að hugsa vel um húðina.
Fyrir útivistarfólk er nauðsyn-
legt að skoða UV-stuðulinn en
hann segir okkur hversu hættu-
leg sólin er. Hægt er að skoða
þennan stuðul á uv.gr.is. Þar er
hægt að skoða hversu sterkir
útfjólubláir geislar eru hverju
sinni,“ segir Erna.
„Ég vil líka benda foreldrum
á að nota alls ekki rakakrem á
börn né sjálf sig á veturna. Raki
og kuldi fer illa með húðina. Ef
fólk vill nota rakakrem ætti það
að gera það á kvöldin. Best er að
nota sérstök útivistarkrem sem
eru með sólarvörn. Þessi krem
verja húðina og gefa henni nær-
ingu. Rakakrem eru góð á sumr-
in,“ útskýrir Erna.
Hún segir misjafnt hvaða
krem henti hverri húðtýpu. „Ég
segi alltaf við viðskiptavini mína
að best sé að leita ráða hjá fag-
fólki á snyrtistofum varðandi
kremnotkun. Þá næst bestur ár-
angur með húðina og hún held-
ur ljóma sínum. Margar konur
nota meik á daginn og þá er mik-
ilvægt að velja farða með vörn.
Síðan þurfum við að vita hvaða
efni eru í farðanum til að hægt
sé að forðast óæskileg efni. Þetta
er ekkert öðruvísi en mataræði
– við viljum vita hvað við setjum
ofan í okkur og þurfum sömuleið-
is að vita hvað við erum að bera á
húðina,“ segir Erna María.
Flestar konur koma á snyrti-
stofu með reglulegu millibili,
í litun og plokkun eða til að fá
aðra þjónustu. Erna María segir
að þá sé upplagt að spyrjast fyrir
um krem sem henta húðgerð-
inni. Fagfólkið þekkir húðgerðir
og getur gefið mjög góð ráð. Það
er sömuleiðis mjög mikilvægt að
þrífa húðina vel fyrir svefninn.
„Það koma margar konur til mín
sem eru með þurrkbletti í and-
liti, háræðaslit eða sprungna
húð vegna notkunar á rakakremi
í kulda. Það á líka við um karl-
menn ekki síður en konur. Verið
dugleg að verja húðina með góðri
vörn á þessum árstíma,“ segir
Erna María og hvetur bílstjóra
og fólk sem er að vinna utan-
dyra eða er í útivist að huga vel
að þessu.
Fyrir útivistarfólk er
nauðsynlegt að skoða
UV-stuðulinn en hann
segir okkur hversu
hættuleg sólin er. Hægt
er að skoða þennan
stuðul á uv.gr.is.
Erna María Eiríksdóttir
Ekki nota rakakrem úti í kuldanum
Þegar sólin skín glatt um hávetur getur hún verið varasöm fyrir húðina, sérstaklega í snjó sem veitir endurkast. Mjög mikilvægt er að nota
sólvarnarkrem í þessum aðstæðum, ekki síst þegar fólk fer á skíði eða í göngutúra. Þá má ekki gleyma að bera á leikskólabörnin.
Erna María Emilsdóttir snyrtifræðimeistari segir mjög mikilvægt að huga vel að húðinni í vetrarveðri. MYND/STEFÁN
HEilSa og FEgUrð Kynningarblað
25. febrúar 201612