Fréttablaðið - 25.02.2016, Síða 44
Lesinn texti fyrir skjáauglýsingu:
NÝTT
ERFIÐUR MORGUNN?
FÁÐU FRÍSKLEGT
ÚTLIT SAMSTUNDIS
„Við leggjum ríka áherslu á að við-
skiptavinir fái góða upplifun hvort
sem þeir skreppa úr vinnu í litun
og plokkun eða koma í heilan dek-
urdag með sínum uppáhalds. Héðan
fara allir út léttari og brosmildari,“
segja Sigríður Hilmarsdóttir og
Ástríður Einarsdóttir hjá Laugar
Spa. „Þá er hægt að mæta vel fyrir
bókaðan tíma, slaka á eða hita upp
líkamann og mýkja vöðva í gufum
og pottum Betri stofunnar. Síðan fá
viðskiptavinir það dekur sem þeir
óska eftir hjá nuddara eða snyrti-
fræðingi. Að því loknu er hægt að
leggjast við arineldinn og fá sér
smá blund þar til garnirnar fara að
gaula en þá má trítla á baðsloppn-
um inn á veitingastaðinn og fá sér
í svanginn. Boðið er upp á einstak-
lings, para- og vinkonudekur en þá
er hægt að vera saman í herbergi,
til dæmis í nuddi eða fótsnyrtingu.
Einnig er yndislegt fyrir verðandi
mæður að koma og fá gott nudd þar
sem við erum með sérútbúinn bekk
fyrir þær svo þær geta legið á mag-
anum.
Í Laugum Spa er boðið upp á líf-
rænar og náttúrulegar líkams- og
andlitsmeðferðir. „Við notum Laug-
ar Spa-vörurnar sem eru búnar til
úr jurtum og lífrænum olíum úr
Dauða hafinu og blöndum þeim
ávallt eftir þörfum hvers og eins. Þá
erum við með bæði líkams- og and-
litsmeðferðir frá Comfort Zone sem
er mjög virt ítalskt vörumerki og
sömuleiðis mjög virka ávaxtasýru-
meðferð frá Murad. Eins erum við
með snillinga í brasilísku vaxi og
mótun augabrúna.
Nýjasta andlits- og líkamsmeð-
ferðin í Laugum Spa er svokölluð
LPG-meðferð. „Við erum mjög stolt-
ar af henni en hún mun koma í stað-
inn fyrir margar minniháttar lýta-
aðgerðir. Þetta er sogæðanudd með
endermology-aðferð. Meðferðin er
framkvæmd með LPG-tæki af fag-
aðila sem hefur sérhæft sig í notkun
þess. Tækið er eins konar ryksuga
sem hefur sérstakan stút sem renn-
ur eftir húðinni og nær þannig fram
miklu og góðu djúpnuddi sem eykur
súrefnisflæði í húðinni. Meðferðin
vinnur vel á appelsínuhúð, harðri
fitu og misfellum sem geta myndast
eftir örvefi eða mikið þyngdartap.
Húðin verður stinn, slétt og ungleg
á eftir. Andlitsmeðferðin frískar
upp á og stinnir húðina, viðskipta-
vinir okkar tala um að þeir taki
eftir því að hrukkurnar minnka og
langflestir koma aftur og aftur,“
segja þær.
Betri stofan er að þeirra sögn
alltaf mjög vinsæl en þangað geta
jafnt einstaklingar, pör, vina- og
vinkonuhópar komið til að slaka á
og endurnæra sig á líkama og sál.
Eins er hægt að fá mat og drykk
í veitingastofu Betri stofunnar. Í
Betri stofunni eru sex mismun-
andi heitar blaut- og þurrgufur
ásamt heitum og köldum pottum
og fótlaugum. Í arinstofunni er svo
gott að leyfa sér að taka blund eða
stunda hugleiðslu.
Allar nánari upplýsingar er að finna
á laugarspa.is.
Rík áhersla á góða upplifun
Laugar Spa hefur verið starfrækt síðan 2004. Boðið er upp á ótal meðferðir og mikla fjölbreytni. Nuddað er upp úr súkkulaði, kókosolíu og
Epsom-salti svo eitthvað sé nefnt og boðið upp á allt frá 10 mínútna nuddi í heilan dekurdag þar sem hugsað er fyrir öllum þörfum.
„Við notum Laugar Spa-vörurnar sem eru búnar til úr jurtum og lífrænum olíum,“
segir Ástríður. MYNDIR/HANNA
Nýjasta andlits- og líkamsmeðferðin í Laugar Spa er svokölluð LPG-meðferð. „Hún
mun koma í staðinn fyrir margarar minniháttar lýtaaðgerðir,“ segir Sigríður.
HeILSA oG feGuRð Kynningarblað
25. febrúar 201614