Fréttablaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 58
Í dag
17.55 Liverpool - Augsburg Sport 3
19.00 Njarvík - Stjarnan Sport 4
19.00 Honda Classic Golfstöðin
19.00 Meistarad. í hestaíþr. Sport
20.00 Man. Utd. - Mitdjyll. Sport 3
20.00 Tottenham - Fiorent. Sport 5
20.00 Porto - Dortmund Sport 6
Coca-Cola bikar kvenna
17.15 Stjarnan - Fylkir Laugardalsh.
19.30 Grótta - Haukar Laugardalsh.
Reykjavíkurmót kvenna, úrslital.
18.45 Fylkir - Valur Egilshöll
Domino’s-deild karla
18.30 Höttur - ÍR Egilsstaðir
19.15 Snæfell - FSu Stykkishólmur
19.15 Njarðvík - Stjarnan Njarðvík
19.15 KR - Grindavík DHL-höllin
Lengjubikar karla, A-deild
21.00 Valur - Fram Egilshöll
Sögulegur sigur á ógnarsterku liði Ungverjalands
Mögnuð frammistaða Ísland vann stórglæsilegan sigur á sterku liði Ungverjalands, 87-77, í undankeppni EM 2017 í Laugardalshöllinni í gær. Þetta
var fyrsti sigur Íslands í riðlinum en fyrsta tap Ungverja. Helena Sverrisdóttir sýndi ótrúleg tilþrif en hún var með 29 stig, sextán fráköst, átta stoð-
sendingar og aðeins tvo tapaða bolta á rúmum 35 mínútum. Hún fiskaði þar að auki sjö villur. FRéTTAbLAðið/eRNiR
Aldís KArA í FH
Aldís Kara lúðvíksdóttir sneri í
gær heim í FH eftir þriggja ára veru
í Breiðabliki. Hún er sóknarmaður
sem kemur til með að styrkja
nýliða FH í Pepsi-deild kvenna í
sumar en hún á að baki 74 leiki í
efstu deild og hefur skorað í þeim
28 mörk.
Aldís Kara verður 22 ára á þessu
ári en hún á að baki fjölda leikja
með yngri landsliðum íslands.
sigtryggur dAði áFrAm í
Aue
Þrátt fyrir að sigtryggur daði rún-
arsson sé nú frá vegna hnémeiðsla
skrifaði hann í gær undir nýjan
tveggja ára samning við þýska B-
deildarfélagið eHV Aue. sigtryggur
daði er nítján ára leikstjórnandi og
sonur þjálfarans rúnar sigtryggs-
sonar. Hann meiddist á hné fyrr
í mánuðinum og er ekki væntan-
legur aftur inn á völlinn fyrr en
undir lok tímabilsins.
Föðurbróðir hans, árni Þór sig-
tryggsson, leikur með Aue, sem og
markvörðurinn sveinbjörn Péturs-
son og landsliðsmaðurinn Bjarki
már gunnarsson.
2 5 . f e b r ú a r 2 0 1 6 f I M M T U D a G U r26 s p o r T ∙ f r É T T a b L a ð I ð
sport
HanDboLTI Fjórða árið í röð verður
notast við svokallað „Final 4“-fyrir-
komulag í bikarkeppni karla og
kvenna í handbolta. undanúrslita-
leikirnir og úrslitaleikirnir hafa
farið fram sömu helgina síðan 2013
og hefur þetta fyrirkomulag algjör-
lega slegið í gegn.
Úrslitahelgin hefst í dag með
undan úrslitaleikjum í Coca Cola-
bikar kvenna. Klukkan 17.15 eig-
ast við stjarnan og Fylkir og svo
klukkan 19.30 er komið að stór-
leik tveggja efstu liða Olís-deildar
kvenna; gróttu og Hauka. sigur-
vegararnir mætast í bikarúrslita-
leiknum klukkan 13.30 á laugar-
daginn.
Fréttablaðið fékk Alfreð Örn
Finnsson, þjálfara Vals, til að
spá í spilin. Alfreð hefur
mætt öllum liðunum á
tímabilinu, sumum oftar
en einu sinni og oftar en
tvisvar.
Stress að vera í
Höllinni
A l f r e ð Ö r n
hefur meiri trú
á stjörnunni í
fyrri undanúr-
slitaleiknum á
móti Fylki þar
sem mætast liðin
í sjötta og áttunda
sæti deildarinnar. liðin hafa mæst
tvívegis á leiktíðinni og stjarnan
unnið í bæði skiptin. stjarnan vann
átta marka sigur á heimavelli, 30-22,
og þriggja marka sigur í árbænum
í seinni leik liðanna í deildinni,
26-23.
„Ég hef alveg trú á að Fylkir geti
komið á óvart en ég spái stjörn-
unni sigri því það er reynslumeira
lið,“ segir Alfreð Örn. Fylkir hefur
ekki komist í Höllina síðan liðið
spilaði óvænt úrslitaleikinn á móti
stjörnunni 2008 en stjarnan hafði
þá betur.
„Það væri bara styrkur fyrir Fylki
að halda þessu í jöfnum leik. Ég held
að stjarnan verði með þetta allan
leikinn og stressið verði of mikið
fyrir Fylki í Höllinni. Fylkisstúlkur
unnu samt íBV um daginn sem
veitir mér meiri bjart-
sýni fyrir þeirra hönd.
Ég hef verið að bíða
eftir þessum kafla hjá
þeim,“ segir Alfreð.
Aðspurður hver helsti
styrkleiki Fylkisliðsins
sé segir hann: „Keyra í
bakið á andstæðingn-
um, hvort
sem það er
eftir mark
e ð a e k k i .
Fylkisliðið er
að spila hraða miðju mjög
vel. Það hefur líka náð upp
fínum varnarleik eftir jól
og er með vopn í Þurí [Þuríði guð-
jónsdóttur] og theu [imani sturlu-
dóttur].“
stjarnan er þekktari stærð:
„stjarnan er með gríðarlega sterkan
varnarleik og Florentinu í markinu.
Þetta eru hennar leikir. Það mæðir
líka mikið á Helenu rut. Það er
gríðar lega erfitt við stjörnuna að
eiga þegar hún er heit,“ segir Alfreð
Örn.
Meistararnir fara alla leið
seinni undanúrslitaleikurinn er
algjört konfekt en þar mætast liðin
í efstu tveimur sætum íslandsmóts-
ins. grótta er einu stigi á undan
Haukum í deildinni, en liðin skildu
jöfn, 21-21, þegar þau mættust á
Nesinu í deildinni fyrr á tíma-
bilinu.
„Haukarnir eiga klár-
lega séns. Það er rosalega
erfitt að spá fyrir um
þ e n n a n
l e i k , “
s e g i r
A l f r e ð .
H a n n v i l l
meina að mark-
varslan verði það
sem skeri úr um sigur-
inn. í marki gróttu er
auðvitað fyrrverandi
landsliðsmarkvörður-
inn íris Björk símonar-
dóttir en hjá Haukum
stendur elín Jóna Þor-
steinsdóttir vaktina. elín Jóna varð
bikarmeistari með gróttu í fyrra.
„elín hefur verið lykillinn að vel-
gengni Haukanna en íris Björk er
bara alltaf góð. Þessi markvarða-
barátta snýst vitaskuld að stóru leyti
um varnarleikinn. gróttuvörnin er
stöðugri en hjá Haukum. Haukarnir
eiga leiki þar sem þeir skella algjör-
lega í lás en stundum gengur ekki
jafn vel,“ segir Alfreð.
Haukarnir eru með sterka útilínu
í þeim ramune Pekarskyte, Karen
Helgu díönudóttur og mariu ines
Pereira en Alfreð er hrifinn af liðs-
heildarframlagi gróttuliðsins.
„á móti okkur var ég mjög hrifinn
af hversu margir leikmenn gróttu
voru að skila framlagi. gróttan
spilar sóknarleikinn skynsamlega
og fær framlag frá mörgum. Kári
þjálfari hefur gert vel í
að dreifa álagi og vera
duglegur að skipta,“
segir Alfreð sem spáir
gróttu ferð í úrslita-
leikinn. en hvaða
lið stendur þá
uppi sem meist-
ari?
„grótta klárar
þetta á móti
s t j ö r n u n n i , “
segir Alfreð Örn
Finnsson.
tomas@365.is
Grótta klárar dæmið í Höllinni
Alfreð Örn Finnsson, þjálfari Vals, spáir Íslands- og bikarmeisturum Gróttu sigri í bikarkeppni HSÍ annað
árið í röð. Úrslitahelgin hefst í dag með undanúrslitum í Coca Cola-bikar kvenna.
Anna Úrsúla Guð-
mundsdóttir er lykil-
maður í varnarleik
Gróttu.
Undankeppni eM 2017
Ísland - Ungverjaland 87-77
Stig Íslands: Helena Sverrisdóttir 29/16
frák./8 stoðs., Gunnhildur Gunnarsdóttir
14, Pálína Gunnlaugsdóttir 12, Sandra
Lind Þrastardóttir 9, Bryndís Guðmunds-
dóttir 7, Margrét Kara Sturludóttir 7, Sigrún
Ámundadóttir 6, Ingunn Kristínardóttir 3.
ísland sýndi að sigurinn á ógnar-
sterku liði ungverjalands var engin
tilviljun. ísland leiddi frá upphafi og
vann alla fjóra leikhluta leiksins.
Nýjast
Meistaradeild evrópu, 16-liða úrslit
PSV - Atletico Madrid 0-0
madrídingar eru í ágætum málum
fyrir síðari leik liðanna í 16-liða
úrslitum eftir að hafa haldið hreinu
á útivelli í gærkvöldi. PsV missti þó
mann af velli með rautt spjald og
náði Atletico ekki að færa sér það
í nyt.
Dynamo Kiev - Man. City 1-3
0-1 Sergio Agüero (15.), 0-2 David Silva (40.),
1-2 Vitaly Buyalsky (59.), 1-3 Yaya Toure
(90.).
2-0 forysta City í hálfleik var síst of
stór en heimamenn í dynamo Kiev
minnkuðu muninn í þeim síðari og
gerðu sig líklega til að jafna metin.
en mark yaya toure í uppbótartíma
fór langt með að tryggja City sæti í
fjórðungsúrslitunum.
Thea imani Sturludóttir er
lykilmaður Fylkis.
elín Jóna Þorsteins-
dóttir varð bikar-
meistari með Gróttu
í fyrra.
Florentina Stanciu elskar
stórleikina.