Fréttablaðið - 25.02.2016, Side 60
Frændi okkar,
Guðmundur Hjörleifsson
trésmiður,
áður til heimilis á Grettisgötu 20a,
lést á Hjúkrunarheimilinu
Klausturhólum, Kirkjubæjarklaustri,
laugardaginn 20. febrúar.
Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík,
miðvikudaginn 2. mars kl. 13.00.
Hjörleifur Guðni Bernharðsson Hugrún Þorsteinsdóttir
Ágústa Guðrún Bernharðsdóttir Hákon Arnar
Sigurbergsson
Bernharð Margeir Bernharðsson
Okkar elskulegi,
Guðmundur Gunnar
Einarsson
málarameistari,
lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð,
20. febrúar síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 26. febrúar 2016 kl. 13.00.
Bestu þakkir til starfsfólks Seljahlíðar fyrir hlýlegt viðmót,
stuðning og góða umönnun.
Margrét Ámundadóttir
Nanna María Guðmundsdóttir Hörður Adólfsson
Þórunn Svava Guðmundsdóttir Bjarni Bjarnason
Gunnar Örn Guðmundsson
Ingigerður H. Guðmundsdóttir Sveinn Sveinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigurbjörg Óskarsdóttir
Gullsmára 9, Kópavogi,
lést á Landspítalanum v/Fossvog
fimmtudaginn 11. febrúar.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju,
föstudaginn 26. febrúar kl. 14.00.
Hreinn Sveinsson Svanhildur Sigurjónsd.
Bylgja Björk Guðmundsdóttir Bragi Ingvason
Óskar Karl Guðmundsson Helga Guðný Jónsdóttir
Vilhelm Guðmundsson
Gunnbjörn Guðmundsson Kristjana Möller
Sigurbjörn L. Guðmundsson Halldóra S. Sigurþórsd.
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur bróðir minn,
Axel Wilhelm Carlquist
eðlisfræðingur,
lést 17. febrúar sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Innilegar þakkir til starfsfólks 13E Landspítala við
Hringbraut, fyrir alúð og umönnun.
Kristín Salóme Karlsdóttir og fjölskylda.
Hetjan okkar,
elskandi eiginmaður,
sonur, bróðir, dóttursonur
og tengdasonur,
Kári Örn Hinriksson
blaðamaður,
Hjallahlíð 25, Mosfellsbæ,
f. 15.10. 1988,
lést á gjörgæsludeild LSH miðvikudaginn 17. febrúar 2016.
Útför hans fer fram frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn
25. febrúar kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent
á styrktarsjóð ljóssins í lífi hans, ungu ekkjunnar,
0549-14-401696, kt. 220991-2539.
Júlíana Haraldsdóttir
Erna Arnardóttir Hinrik Gylfason
Halla Margrét Hinriksdóttir
Halla Mjöll Hallgrímsdóttir Örn Harðarson
Ingibjörg Einarsdóttir Haraldur Júlíusson
Ármann Haraldsson
Margeir Haraldsson
Þorbergur Haraldsson
„Aðstaðan hefur tekið algerum stakka-
skiptum hjá okkur,“ segir Erna Magnús-
dóttir, forstöðukona Ljóssins, um þær
breytingar sem orðið hafa á húsakynn-
um heimilisins við Langholtsveg 43.
Ljósið er endurhæfingar- og stuðn-
ingsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda
og aðstandendur þeirra og þangað
komu vel yfir fimmtán þúsund manns
á síðasta ári. Húsnæðið var orðið of
þröngt og því segir Erna það hafa verið
fagnaðarefni þegar Styrktar-og líknar-
sjóður Oddfellow ákvað að fjármagna
stækkun þess og endurbætur.
Bak við gamla húsið (sem áður hýsti
Landsbankann) var byggður lyftu- og
stigagangur og fullkominn sjúkraþjálf-
unarsalur ofan á flatt þak sem tengist
rishæð gamla hússins. Auk þess var allt
húsið klætt utan, innviðir eldri bygg-
ingarinnar teknir í gegn og gamlir
stigar fjarlægðir. „Þetta stækkar hús-
næðið okkar um 120-130 fermetra og
gjörbreytir allri aðstöðu. Allt er eins
og nýtt en hinn heimilislegi andi hefur
alveg haldið sér. Það skiptir öllu máli
hjá okkur,“ segir Erna kát.
Ljósið varð tíu ára á síðasta ári.
Erna hóf starfsemina ein í gamla safn-
aðarheimilinu í Neskirkju haustið
2005, með hugsjónina að vopni. „Ég
var sjálfboðaliði hjá sjálfri mér með
tvær hendur tómar,“ rifjar hún upp.
„Svo var sjálfseignarstofnunin Ljósið
sett á laggirnar 2006 og þá var skipuð
stjórn.“
Nú er Ljósið með ellefu föst stöðu-
gildi. „Við eigum þetta hús skuldlaust
en erum alltaf að safna fyrir helmingi
þess sem við þurfum til að reka þetta
apparat. Ríkið sér um hinn. Til dæmis
erum við núna að hringja út og safna
Ljósavinum sem borga árgjald einu
sinni á ári. Afmælistónleikar í haust
öfluðu okkur fjár og við tökum þátt í
Reykjavíkurmaraþoninu. Oddfellow
hefur styrkt okkur frá upphafi og líka
Kiwanis og Lions. Það bjargar okkur.“
Eldmóður er í Ernu sem fyrr. „Við
erum alltaf að þróa starfsemina og
bæta og það er þverfaglegur hópur
sem starfar hér núna. Stefnan er alltaf
að styðja alla fjölskylduna. Það eru til
dæmis fimmtán börn á námskeiði hjá
okkur núna, á aldrinum sex til þrett-
án ára. Ég held þetta sé eina endur-
hæfingin á Íslandi sem aðstandandi
getur komið með í. Krabbamein er
ekki einkamál þess sem greinist. Það
skiptir máli að allir séu þátttakendur
og hjálpist að.“ gun@frettabladid.is
Heimilisandinn heldur sér
Ljósið fær í dag afhenta viðbyggingu við Langholtsveg 43 sem Oddfellowreglan hefur al-
farið kostað auk endurbóta á fyrra húsnæði. Erna Magnúsdóttir forstöðukona er ánægð.
Hér er Erna í hinum nýja endurhæfingarsal Ljóssins. FréttabLaðið/anton brink
Þessa mynd tók ragnar th. Sigurðsson með dróna af húsi Ljóssins eftir stækkun.
Ég held þetta sé eina
endurhæfingin á Íslandi
sem aðstandandi getur komið
með í. Krabbamein er ekki
einkamál þess sem greinist.
2 5 . f e b r ú a r 2 0 1 6 f I M M T U D a G U r28 T í M a M ó T ∙ f r É T T a b L a ð I ð
tÍmamót