Fréttablaðið - 25.02.2016, Síða 76
Jóhannes segist þrælspenntur
fyrir komandi tímum og hefur
þegar fengið fyrirspurnir um verk-
efni inn á sitt borð.
„Það er mikið í pípunum. Ég
hræðist það ekkert og það er fullt
að gerast og þegar komið fullt af
fyrirspurnum til okkar. Þetta lítur
bara vel út enda er þetta vaxandi
iðnaður á Íslandi og góð búbót
fyrir þjóðina. Gefur samfélaginu
fullt og það er engin spurning
að þeir sem standa að þessu hafa
verið að gera gríðarlega góða hluti
og vinna þetta vel í gegnum árin og
það er að skila sér núna og hefur
verið að gera. Það er búið að taka
ófáar myndirnar hér á landi, stórar
og miklar,“ segir hann spenntur
fyrir framhaldinu og glaður í
bragði að lokum.
gydaloa@frettabladid.is
Ég er nú búinn að
kokka ofan í svo
marga einstaklinga að Ég er
ekkert mikið að velta mÉr
upp úr því. mÉr er nú eigin-
lega alveg sama, aðalmálið
er að gera þetta vel.
Jóhannes Stefánsson hjá Múlakaffi
flutti á dögunum inn tvo veitinga-
vagna sem innihalda meðal annars
eldhús og aðstöðu fyrir ferða-
mannahópa eða tökuteymi sem
stödd eru á afskekktum stöðum
við tökur á kvikmyndum eða aug-
lýsingum og langt er í næsta eldhús.
Hann segir svo sannarlega vera
tækifæri fyrir þess lags þjónustu hér
á landi enda hefur ferðaþjónustan
svo sannarlega blómstrað líkt og
flestum ætti að vera kunnugt og
sífellt að færast í aukana að erlend
tökulið taki hér upp auglýsingar og
kvikmyndir.
„Það er svona verið að reyna að
hasla sér völl í þessari tegund af
„catering“ og blanda þessu svolítið
inn í ferðaþjónustuna líka,“ segir
Jóhannes ánægður með viðbótina
sem hann segir eldhús og matsal á
hjólum.
„Þetta er fullbúið eldhús og mjög
huggulegur salur sem tekur fjörutíu
og fimm manns í sæti.“ Hann segist
ekki mikið hafa verið að hasla sér
völl í þessari tegund af matseld
fram til þessa en nú standi til að
hella sér í þennan bransa af fullum
krafti og þá koma nýju tólin að
góðum notum enda hægt að fara
með þau hvert á land sem er svo
lengi sem greiðfært er.
Hann segir að um
talsvert stórar og miklar
græjur sé að ræða og mögu-
leikar til matseldar og fram-
reiðslu veitinga miklir. „Það er
nánast hægt að gera hvað sem er
í þessu. Þetta er bara fullkomið eld-
hús á hjólum og mjög flottur mat-
salur, kælibíll og uppvask og bílar
sem eru hafðir fyrir „crash-service“
hvar sem er. Þetta er hörku „gear“,
mjög vandað og reynt að gera þetta
eftir kröfum þessara snillinga sem
hafa verið í þessum bransa.“
Jóhannes segist ekki velta því
mikið fyrir sér hvern hann sé að
kokka ofan í, mestu máli skipti að
fólk sé ánægt. „Ég er nú búinn að
kokka ofan í svo marga einstaklinga
að ég er ekkert mikið að velta mér
upp úr því. Mér er nú eiginlega alveg
sama, aðalmálið er að gera þetta
vel,“ segir hann glaður í bragði.
fullbúið eldhús
og huggulegur
matsalur á hjólum
Jóhannes í Múlakaffi haslar sér völl og flutti á dögunum inn
tvo veitingavagna sem hann lýsir sem fullkomnu eldhúsi
á hjólum. Þeir eru ætlaðir til að elda og framreiða mat á af-
skekktum slóðum og taka þeir fjörutíu og fimm manns í sæti.
– fyrst og fre
mst
ódýr!
AFGREIÐSLUTÍMAR OG FLEIRI TILBOÐ Á WWW.KRONAN.IS
1699kr.kg
Verð áður 2179 kr. kg
Miðjarðarhafs fiskréttur, Fiskverslun Hafliða
2299kr.kg
Verð áður 2899 kr. kg
Lax í Teriyaki og sesam, Fiskverslun Hafliða
1259kr.kg
Verð áður 1588 kr. kg
Fiskibollur - Fjarðarbollur, Fiskverslun Hafliða
Fiskidagar
í Krónunni
1489kr.kg
Verð áður 1865 kr. kg
Ýsu- og þorskflök, roð- og beinlaus, Ísland
1359kr.kg
Verð áður 1598 kr. kg
Ýsa í raspi, Ísland
2369kr.kg
Verð áður 2798 kr. kg
Fjallableikja, Ísland
15 %afsláttur
20 %afsláttur22 %afsláttur20 %afsláttur
20 %afsláttur
Tilbúið
í ofninn!
Ö
ll verð eru birt m
eð fyrirvara um
prentvillur og/eða m
yndabrengl.
2 5 . f e b r ú a r 2 0 1 6 f I M M T U D a G U r44 L í f I ð ∙ f r É T T a b L a ð I ð