Fréttablaðið - 26.11.2019, Side 33
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Sylvía Haukdal er menntaður pastry chef frá matreiðslu-skólanum Le Cordon Bleu í
London. Það verður stór stund
hjá henni í desember þegar hún
byrjar með nýja þætti á Stöð 2
Maraþon sem nefnast Bakað með
Sylvíu Haukdal. „Í þáttunum ætla
ég að baka allt frá smákökum í
að búa til girnilega áramótaeftir-
rétti,“ segir hún og sannarlega
verður spennandi að sjá þættina
og læra af þessum snillingi í
bakstri.
Sylvia starfar við áhugamálið
hjá Sætum syndum og er með
eigin uppskriftarvef undir nafn-
inu sylviahaukdal.is sem vakið
hefur mikla athygli. Þá hefur hún
einnig stóran hóp fylgjenda á
Instagram. Sylvía er yngri systir
Birgittu Haukdal, söngkonu og
barnabókahöfundar.
Sylvía gefur hér uppskriftir að
glæsilegri jólatertu og Bismark
jólabollakökum. Hún segist
hlakka mikið til að kveikja á
kertum og eiga notalegar stundir
með fjölskyldu sinni í eldhúsinu.
Eiginmaður hennar er Atli Björg-
vinsson en þau eiga tvær dætur,
Önnu Hrafnhildi, 4 ára og Marín
Helgu sem er ársgömul.
JÓLAKAKA SYLVÍU
HAUKDAL
Súkkulaðibotnar
600 g sykur
315 g Kornax hveiti
120 g kakó
¼ tsk. lyftiduft
¼ tsk. matarsódi
½ tsk. salt
3 egg
165 ml olía (grænmetis)
330 ml mjólk
330 ml heitt vatn
3 tsk vanilludropar
Við byrjum á því að hita ofninn í
175°C (blástur).
Næst setjum við öll þurrefnin
saman í hrærivélarskál og hrærum
saman.
Þegar við höfum blandað þurrefn-
unum vel saman bætum við eggjum,
mjólk, olíu, heitu vatni og vanillu-
dropum saman við og hrærum þar
til allt hefur blandast vel.
Næst smyrjum við þrjú 20 cm form
með olíu, setjum bökunarpappír í
botninn og smyrjum aftur.
Svo hellum við deginu jafnt í öll
form og bökum í 20-25 mínútur eða
þar til pinni kemur hreinn upp úr
kökunum (mér þykir best að vigta
deigið og skipta því jafnt niður í
formin til þess að fá alla botna jafn
stóra).
Um leið og botnarnir koma úr
ofninum losum við hliðarnar á
formunum og hvolfum botnunum á
bökunarpappír eða kæligrind.
Hvítsúkkulaðikrem
(á milli botna)
150 g smjör (við stofuhita)
150 g flórsykur
200 g hvítt súkkulaði (brætt)
100 g rjómaostur
100 g frosin hindber
Við byrjum á því að þeyta smjörið
þar til það verður ljóst og létt.
Síðan er flórsykri bætt saman við
og þeytt þar til kremið verður hvítt
og létt.
Að lokum er rjómaosti hrært saman
við og hvítu súkkulaði.
Þegar kakan er sett saman er hind-
berjum stráð yfir kremið.
Smjörkrem (utan um köku)
500 g smjör (við stofuhita)
500 g flórsykur
2 tsk. vanilludropar
Við byrjum á því að þeyta smjörið
vel og lengi þar til það verður létt og
ljóst.
Næst bætum við flórsykri og van-
illudropum saman við og höldum
áfram að þeyta.
Að lokum bætum við rjómanum
saman við og þeytum í smá stund í
viðbót.
BISMARK
JÓLABOLLAKÖKUR
Súkkulaðibollakökur
125 g dökkt súkkulaði
170 ml mjólk
290 g púðursykur
105 g smjör (við stofuhita)
2 egg
180 g Kornax hveiti
½ tsk. salt
½ tsk. matarsódi
½ tsk. lyftiduft
10 g kakó
Við byrjum á því að hita ofninn
í 175°C (blástur).
Næst setjum við súkkulaði,
mjólk og helminginn af
púðursykrinum í lítinn pott og
hitum upp að suðu á vægum hita.
Við þeytum saman smjöri og
hinum helmingnum af sykrinum
saman og bætum síðan eggjunum
varlega saman við.
Næst hrærum við þurrefnunum
varlega saman við.
Að lokum fer heita súkkulaðibland-
an í mjórri bunu saman við.
Við bökum bollakökurnar við 175°C
í um það bil 18 mínútur.
Bismark súkkulaði ganache
150 g Bismark rjómasúkkulaði
90 ml rjómi
Við byrjum á því að saxa súkku-
laðið í smáa bita og setjum í skál.
Næst hitum við rjómann upp að
suðu og hellum yfir súkkulaðið.
Hrærum síðan blönduna vel
saman og leyfum henni að kólna
og þykkna áður en við setjum
hana í bollakökurnar.
Smjörkrem
300 g smjör (við stofuhita)
300 g flórsykur
2 tsk. vanilludropar
Við byrjum á því að
þeyta smjörið vel og
lengi þar til það
verður létt og
ljóst.
Næst bætum
við flórsykri
og vanilludropum
saman við og höldum áfram að
þeyta.
Að lokum bætum við rjómanum
saman við og þeytum í smá stund í
viðbót.
Samsetning
Við byrjum á því að gera göt í
miðjuna á öllum bollakökunum.
Næst sprautum við Bismark súkku-
laði-ganache í gatið
Svo fer krem ofan á bollakökurnar
og þær skreyttar að vild.
Sylvía er að byrja með nýja þætti á Stöð 2 Maraþon, þar mun hún baka fyrir landsmenn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Hún er
heldur betur
glæsileg jóla-
tertan hennar
Sylvíu. Hand-
bragðið er
hrein snilld
og bragðið
sömuleiðis
mjög gott.
Fallegar
Bismark jóla-
bollakökur.
Jólaterta sem lætur jólin koma
Jólin eru í miklu uppáhaldi hjá Sylvíu Haukdal Brynjarsdóttur sem er einstaklega hæfileikarík þegar kemur að bakstri. Hún bakaði jóla-
tertu fyrir lesendur sem er ekki bara falleg heldur einstaklega góð. Sylvía er að byrja með nýja bakstursþætti á Stöð 2 Maraþon.
Gjöf sem
gleður alla
arionbanki.is
Gjafakort Arion banka er alltaf rétta gjöfin
Þú velur fjárhæðina, þiggjandinn velur gjöfina.
Gjafakort Arion banka er hægt að nota hvar sem
er og fæst í öllum útibúum okkar.
JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 912