Fréttablaðið - 26.11.2019, Síða 39

Fréttablaðið - 26.11.2019, Síða 39
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Siggeir F. Ævarsson, fram-kvæmdastjóri Siðmenntar, hefur verið trúlaus í langan tíma, en lætur það ekki truf la jólahaldið. „Ég man eftir því að þegar ég var frekar ungur og fór að pæla í Biblíusögum fannst mér það allt svo órökrétt,“ segir hann. „Ég man sérstaklega eftir að finnast sagan um Adam og Evu mjög furðuleg, því ég vissi af því að maður ætti nú ekki að giftast skyldmennum sínum. Seinna átti svo að hafa komið syndaf lóð og allir strokast út, mér fannst þetta allt svolítið skrítið. Ég hef í raun verið efahyggju- maður mjög lengi. Ég man að þegar ég missti fyrst tönn setti ég hana undir koddann en lét mömmu ekki vita af því, til að kanna hvort tannálfurinn væri í raun til,“ segir Siggeir. „Það gerðist náttúrulega ekkert og þá fattaði ég að það væri eitthvað skrítið í gangi.“ Siggeir segir að sér finnist ekki erfitt að halda upp á jólin án þess að trú komi málinu við. „Ég ólst upp á heimili þar sem foreldrar mínir og afi og amma voru trúuð. Ég man til dæmis eftir því að einu sinni fór ég með afa í kirkju til að stytta biðina eftir jólum,“ segir Siggeir. „Ég hef aldrei upplifað meiri leiðindi og steinsofnaði í kirkjunni. Svo þegar ég kom heim voru jólin ekki einu sinni komin! Ég man að mér fannst þetta versta mögulega nýting á tíma. Þegar ég var lítill voru jólin mjög hefðbundin hjá mér og ég vissi að þetta tengdist Jesú, en það var aldrei nein áhersla á trúar- lega hlutann,“ segir Siggeir. „Jólin hafa alltaf verið tími til að hitta fjölskylduna. Svo eftir að ég varð sjálfur fjölskyldumaður er allur tíminn undirlagður af því að hitta vini og fjölskyldu og njóta þess að vera saman. Fyrir mér eru jólin tími ljóss Alltaf verið efahyggjumaður Siggeir F. Ævarsson, framkvæmdastjóiri Siðmenntar, hefur verið efahyggjumaður nánast frá því hann man eftir sér. Hann heldur upp á ósköp hefðbundin jól þrátt fyrir trúleysið og segir jólin vera hátíð ljóss og friðar, alveg óháð öllum trúarbrögðum. Siggeir segir erfitt að svara því hvers vegna sífellt fleiri Íslendingar verði trúlausir, en að líklega sé það vegna þess kirkjan hafi misst þá sterku samfélagslegu stöðu sem hún hafði áður. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR og friðar, tími til að koma saman og fagna því að eiga vini og fjölskyldu sem maður getur notið samvista með og nýtt tímann í eitthvað annað en stress daglegs lífs,“ segir Siggeir. Ósköp hefðbundin jól „Ég held að jólin hjá mér séu lítið öðruvísi en hjá kristnum. Ég á gamla upptrekkta kirkju með ljósi sem spilar fallegt jólalag og stendur alltaf uppi á hillu. Hún er frá ömmu minni og er tengd æskuminningum mínum,“ segir Siggeir. „Ég er líka með jólaskraut með Jesúbarninu í jötu og hefðbundið jólatré í stofunni, það er engin satanísk stjarna eða neitt svo- leiðis,“ segir hann og hlær. Ég lendi stundum í því að fólk haldi að það hafi náð mér með því að spyrja „hva, ert þú að halda upp á jólin? Ertu ekki trúlaus?“ Þá bendi ég þeim á að hátíðin sé eldri en kristnu jólin og spyr af hverju þau haldi upp á heiðna hátíð,“ segir Siggeir. „Ég skil ekki alveg hvað fólki gengur til með svona spurningu. Það eru allir að fagna og hafa gaman en samt vill fólk eitthvað fara að pota í mig.“ Leyfir börnunum að ráða Siggeir á tvær dætur, 12 og sex ára, sem fá trúarhlut- laust uppeldi. „Eldri dóttirin er orðin mjög harður trúleysingi, þó að við höfum ekki haldið neinu að henni,“ segir hann. „Hún hefur verið í trúarbragða- fræði í skólanum og fyrir ári var hún hörð á því að hún ætlaði að fermast í kirkju en um daginn sagði hún að það væri ekki séns, því að hún trúi ekki á guð. Hún fær bara að ráða þessu sjálf. Yngri dóttirin á vini af mjög fjölbreyttum uppruna sem hafa alls konar trú. Ég held að hún sé ekki sérstaklega trúuð heldur. Mér finnst eins og börnin hafi vit á að komast að gáfulegum niðurstöðum sjálf ef það er engin innræting í gangi,“ segir Siggeir. „Ég fullyrði aldrei að guð sé ekki til eða neitt slíkt, en ég er opinn með að ég trúi ekki á hann og leyfi þeim svo bara að komast að eigin niðurstöðu. Þetta er svipað eins og í fermingarstarfi Siðmenntar. Þar leggjum við áherslu á að þetta sé val fyrir börnin og foreldrar velji ekki fyrir þau,“ segir Siggeir. „Sumir eiga erfitt með að sætta sig við það en f lestir styðja ákvarðanir barnanna. Í fræðslunni reynum við svo ekki að innræta börnum neitt, heldur leyfum við þeim að vera litlir heimspekingar, pæla í hlutunum og komast að eigin niðurstöðu,“ segir Siggeir. Kirkjan misst stöðu sína Siggeir segir erfitt að svara því hvers vegna sífellt f leiri Íslend- ingar verði trúlausir. „Þetta er spurning sem ég fæ víða,“ segir hann. „Þetta er líka búið að vera svo hröð þróun, það er ekki langt síðan það var eiginlega sjálfsagt að allir væru í kirkjunni. Mér dettur helst í hug að þetta sé vegna þess að kirkjan hefur misst þessa sterku samfélagslegu stöðu sem hún hafði áður fyrr,“ segir Siggeir. „Hún var samfélags- legt af l og að mörgu leyti eins og félagsheimili. Prestar höfðu líka sterkt samfélagslegt hlutverk sem hefur minnkað með tímanum. Ég held að stór hluti af þeim fjölda sem var í þjóðkirkjunni á seinni hluta 20. aldar hafi ekki verið trúaður, þó þetta fólk hafi verið skráð í hana. Þó að ég sé ánægður með þessa þróun þýðir það samt alls ekki að ég vilji banna fólki að fara í kirkju eða leggja niður þjóðkirkjuna,“ segir Siggeir. „Ég vil bara að öll trúfélög séu á jöfnum grundvelli og það sé ekki eitt trú- félag með milljarða frá ríkinu umfram hin.“ Siðmennt stækkar hratt „Siðmennt er félagsskapur þar sem líklega allir eru trúlausir, en Siðmennt snýst ekki um trúleysi, heldur siðrænan húmanisma. Fólk í Siðmennt er f lest rosalega umburðarlynt og hefur gagn- rýna hugsun að leiðarljósi,“ segir Siggeir. „Félagið stækkar hratt, en meðlimafjöldi hefur tífaldast á sex árum, frá 300 í um 3.300. Við höfum upplifað ýmsa vaxtar verki, en við viljum gera meira en bara að halda athafnir. Við höfum t.d. verið með heim- spekilegar samkomur sem kallast Efast á kránni, þar sem fólk getur komið saman, rætt málin og hlustað á fyrirlestra,“ segir Siggeir. „Við erum alltaf að leita nýrra leiða til að virkja félagið og finna hlutverk fyrir það.“ Kirkjan hefur misst þessa sterku sam- félagslegu stöðu sem hún hafði áður fyrr. Hún var samfélagslegt afl og að mörgu leyti eins og félags- heimili. Prestar höfðu líka sterkt samfélagslegt hlutverk sem hefur minnkað með tímanum. Siggeir F. Ævarsson. Ertu að upplifa kulnun í lí eða star? Er þráðurinn stuttur og neistinn farinn? Ertu með stöðuga kvíðatilnningu? Langar þig að ná aftur tökum á eigin lí? Námskeiðið er fyrir einstaklinga sem upplifa sig á barmi kulnunar í lí og/eða star. Þátttakendur skoða hverjir eru þeirra helstu streituvaldar og streitueink- enni. Samspil sjálfsmyndar, meðvirkni og streitu er skoðað og kenndar leiðir til að takast á við streitu. Lögð er áhersla á mikilvægi hvíldar, slökunar, hælegrar hreyngar og holls mataræðis. TÖKUM STJÓRNINA STREITA OG KULNUN 22.-27. mars 2020 Umsjón: Margrét Grímsdóttir, BSc, MSW Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur Verð 140.000 kr. Innifalið: Gisting, ljúengur og hollur matur, fræðsla og hóptímar, núvitund, jóga og göngur, leikmi eða vatnsþrek, aðgangur að baðhúsi, sundlaugum og líkamsræktarsal. Fimm daga námskeið frá sunnudegi til föstudags á Heilsustofnun í Hveragerði. Berum ábyrgð á eigin heilsu www.heilsustofnun.is JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 918
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.