Morgunblaðið - 05.09.2019, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
NÝR
BÆ
KLINGUR
NÝ
VERSLU
N
Í MÖRK
INNI 3
REYKJA
VÍK
Kristján H. Johannessen
Stefán Gunnar Sveinsson
Varaforseti Bandaríkjanna, Mike
Pence, og eiginkona hans, Karen,
komu hingað til lands um klukkan 13
í gær. Á móti þeim tóku m.a. Georg
Lárusson, forstjóri Landhelgis-
gæslu Íslands, Hannes Heimisson,
prótókollstjóri utanríkisráðuneyt-
isins, og Jeffrey Ross Gunter, nýr
sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.
Varaforsetahjónin virtust afar
ánægð með komu sína til Íslands og
gáfu sér góðan tíma til að heilsa við-
stöddum og gáfu fjölmiðlum færi á
að taka myndir. Að því búnu settust
þau upp í sérbúin ökutæki sem flutt
höfðu verið inn til landsins vegna
heimsóknarinnar og var stefnan þá
tekin á Höfða.
Íslenska lögreglan og bandarískar
öryggissveitir voru með gríðarlegan
viðbúnað vegna komu Pence-
hjónanna. Þannig voru vel á annað
hundrað íslenskir lögreglumenn frá
hinum ýmsu embættum, þ.á m. öll
sérsveit ríkislögreglustjóra, í örygg-
isgæslu. Auk þeirra voru á þriðja
hundrað Bandaríkjamenn, vopnaðir
fulltrúar frá leyniþjónustustofn-
uninni US Secret Service, í fylgd-
inni. Nokkrir tugir ökutækja, bílar,
bifhjól og rútubílar, mynduðu bíla-
lestina. Yfir henni sveimaði svo
þyrla Landhelgisgæslunnar og
fylgdist með öllu úr lofti.
Öryggissveitir voru einnig áber-
andi í og við Höfða. Var götum þar
lokað, girðingar settar upp og vopn-
aðir lögreglumenn víða. Þá voru
skyttur úr sérsveit ríkislögreglu-
stjóra uppi á minnst tveimur háum
byggingum.
Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlög-
regluþjónn hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu, segist afar ánægður
með gærdaginn. Aðgerðir tókust vel
og umferðartafir stóðu eins stutt og
hægt var.
„Lögregluaðgerðin, sem var afar
flókin og umfangsmikil, gekk mjög
vel fyrir sig. Markmiðið var alltaf að
vera með inngripið eins lítið og hægt
væri. Við erum jú aðallega í því að
þjónusta almenning,“ segir Ásgeir
Þór í samtali við Morgunblaðið.
Spurður hvort upp hafi komið ein-
hver óvænt vandamál er sneru að ör-
yggismálum í heimsókn Pence kveð-
ur hann nei við. „Nei, það komu ekki
upp nein vandamál. Að vísu var ein-
hver einn handtekinn eftir að sá tók
upp á því að kveikja í bandaríska
fánanum einhvers staðar í nágrenni
við Höfða. Það má alltaf búast við
einhverju svona í verkefni sem
þessu. Að öðru leyti gekk þetta eins
og smurt,“ segir hann.
Þá segir Ásgeir Þór bílalest vara-
forsetans hafa verið fljóta á milli
Keflavíkur og Reykjavíkur sem dró
mjög úr töfum á almennri umferð.
Þannig var bílalestin t.a.m. einungis
15 mínútur að yfirgefa Reykjavík
þegar varaforsetinn og fylgdarlið
hans settu stefnuna aftur á Keflavík-
urflugvöll.
Morgunblaðið/Hari
Við komuna Mike og Karen Pence voru hæstánægð þegar þau lentu á Keflavíkurflugvelli í vél varaforsetans, Air Force Two. Mikill viðbúnaður var vegna komu varaforsetans til landsins.
Mikill viðbúnaður við komu Pence
Forsetavélarnar Tvær vélar forsetaembættisins lentu í Keflavík með varaforsetahjónin, Mike og Karen Pence.
Heilsað með handabandi Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæsl-
unnar, heilsar varaforsetahjónunum við komuna hingað til lands.
Vopnaðar öryggissveitir víða áberandi Skyttur úr sérsveit ríkislögreglustjóra á byggingum
Heimsókn varaforseta Bandaríkjanna til Íslands