Morgunblaðið - 05.09.2019, Síða 6
Morgunblaðið/Hari
Höfði Mike Pence ávarpaði innlenda og erlenda blaðamenn fyrir utan Höfða eftir að formlegri dagskrá lauk þar.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Stórum hluta af Íslandsheimsókn
Mike Pence, varaforseta Bandaríkj-
anna, var varið í Höfða, en forsetinn
og fylgdarlið hans komu þangað um
tvöleytið í gær. Pence og Karen, eig-
inkona hans, hittu þar fyrst forseta-
hjón Íslands, þau Guðna Th. Jóhann-
esson og Elizu Reid. Sagðist Guðni
vonast til þess að hjónin myndu njóta
dvalar sinnar á Íslandi og fá tilfinn-
ingu fyrir þeim gildum sem íslensk
þjóð héldi í heiðri, eins og frelsi, fjöl-
breytileika og náungakærleik.
Pence lagði í máli sínu áherslu á hin
órjúfanlegu bönd ríkjanna tveggja
allt frá stofnun lýðveldisins 1944.
Voru öryggis- og varnarmál honum
efst í huga og vísaði Pence til aukinna
umsvifa Rússa og Kínverja á norður-
slóðum. Samstarf Íslands og Banda-
ríkjanna um að verja hagsmuni sína
væri af þeim sökum afar þýðingar-
mikið. Að ávarpi Pence loknu var tek-
in mynd af honum og Guðna í sömu
sætum og Ronald Reagan Banda-
ríkjaforseti og Mikhaíl Gorbatsjov
sátu í á fundinum í Höfða árið 1986.
Spurði Guðni hvort hann ætti að vera
Gorbatsjov við mikinn hlátur við-
staddra.
Ræddu viðskiptasambandið
Eftir að fundi Guðna og Pence lauk
hélt varaforsetinn til fundar með
Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkis-
ráðherra sem bauð honum til sér-
stakra hringborðsumræðna með
fulltrúum íslensks viðskiptalífs. Var
fundurinn ágætur að sögn viðstaddra
og bar þar ýmis málefni á góma-
.„Þetta var mjög stuttur fundur en
ágætur, þar sem íslensk fyrirtæki
komu sínum sjónarmiðum á framfæri
um hvernig auðvelda mætti viðskipti
á milli landanna,“ segir Birna Einars-
dóttir, bankastjóri Íslandsbanka, um
fundinn með Mike Pence, varaforseta
Bandaríkjanna. Hún segist sjálf hafa
greint frá samstarfi bankans með
sjávarútvegsfélögum í Bandaríkjun-
um. „Og svo nefndi ég mikilvægi
kynjajafnvægis í stjórnum fyrirtækja
og að það þyrfti að huga að loftslags-
breytingum,“ segir Birna. Hún segir
Pence hafa verið jákvæðan í garð ís-
lensku fyrirtækjanna og að hann ætl-
aði sér að færa skilaboð þeirra til
Bandaríkjanna. „Þetta var því mjög
jákvæður fundur,“ segir Birna.
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, tekur í sama streng. „Þetta
var ánægjulegur fundur með varafor-
seta Bandaríkjanna,“ segir Halldór
Benjamín og bætir við að Pence hafi
farið yfir það hversu djúp tengsl
hefðu myndast á milli ríkjanna á und-
anförnum áratugum. „Hann lagði
áherslu á að hann væri kominn til
þess að styrkja þau tengsl enn frek-
ar.“ Halldór Benjamín segir að ís-
lensku fyrirtækin hafi rætt ýmsar
áskoranir í samskiptum ríkjanna,
tækifæri í sjávarútvegi, flutningum,
ferðaþjónustu, iðnaði og fjármála-
þjónustu og hversu mikilvægur frí-
verslunarsamningur milli ríkjanna
yrði fyrir ríkin.
Aðspurður segir Halldór Benjamín
að Pence sé meðvitaður um að slíkur
fríverslunarsamningur sé á óskalista
íslenskra stjórnvalda og bætir við að
það gæti skipt miklu máli fyrir íslensk
fyrirtæki á næstu árum og áratugum
að slíkur samningur yrði gerður.
– En sérðu fyrir þér að þessi fund-
ur geti skapað sóknarfæri fyrir ís-
lenskt viðskiptalíf? „Já, tvímælalaust.
Ef við skoðum söguna eru Bandaríkin
okkar stærsta viðskiptaland, og það
eru mikil tækifæri þar, ekki bara á
sviði viðskipta heldur einnig á sviði
vísinda, mennta og tækni, og auðvitað
hljóta þeir sem trúa á frjáls viðskipti í
heiminum að leggja ríka áherslu á að
eiga fríverslunarsamning og sem best
samstarf við stærsta efnahagsveldi
heims.“
Auðmjúkur gagnvart Höfða
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
Reykjavíkur, sýndi Pence að lokum
Höfða ásamt Önnu Karen Kristins-
dóttur staðarhaldara en ljóst var að
varaforsetinn hafði mikinn áhuga á
sögu hússins, ekki síst leiðtogafund-
inum 1986. Var Pence meðal annars
sagt frá draugnum í Höfða og skoðaði
hann herbergið þar sem viðræður
Reagans og Gorbatsjovs fóru fram.
Ritaði Pence nafn sitt í sömu gesta-
bók og þeir gerðu á sínum tíma árið
1986, og heiðraði Pence í undirskrift
sinni minningu Reagans. Sagðist
Pence vera mjög auðmjúkur yfir að fá
að funda í sama húsi og leiðtogafund-
urinn hefði farið fram í.
Eftir að Pence hafði ávarpað er-
lenda blaðamenn fyrir utan Höfða
sneri hann sér við og hélt að bifreið
sinni sem átti að flytja hann til Kefla-
víkur. Varaforsetinn flýtti sér þó ekki
í sæti sitt, heldur virti hann fyrir sér
hið sögufræga hús í dágóða stund áð-
ur en förinni var haldið áfram til fund-
ar við Katrínu Jakobsdóttur forsætis-
ráðherra í Keflavík.
Áhugasamur um sögu Höfða
Guðni Th. Jóhannesson tók á móti Mike Pence í Höfða Varaforsetinn fundaði með utanríkisráð-
herra og forkólfum í íslensku viðskiptalífi Ritaði nafn sitt í sömu gestabók og Reagan og Gorbatsjov
Morgunblaðið/Hari
Hringborðsumræður Pence ræddi við Guðlaug Þór Þórðarson og fulltrúa íslensks viðskiptalífs
um helstu mál er snúa að viðskiptum ríkjanna. Var fundurinn sagður stuttur en góður.
Morgunblaðið/Eggert
Móttaka Guðni Th. Jóhannesson, forseti lýðveldisins, og kona hans, Eliza Reid, tóku á móti
Pence og Karen, eiginkonu hans, í Höfða við upphaf heimsóknar varaforsetans.
6
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á serlyfjaskra.is.
Haltu þínu striki!
Harpatinum við gigtar- og liðverkjum.
Bætir hreyfigetu og dregur úr stirðleika.
Fæst án lyfseðils. Afsláttur gildir til 16.9.2019 í Lyf og Heilsu og Apótekaranum
20%
afsláttur
Verð frá 69.900 kr. og
15.000 Vildarpunktar
á mann miðað við tvo í íbúð
Flug og hótel í september
Njóttu þess að hlakka til
Kanarí
með VITA
Sjá nánar á vita.is
Verð án Vildarpunkta: 79.900 kr.
Heimsókn varaforseta Bandaríkjanna til Íslands