Morgunblaðið - 05.09.2019, Síða 16
Undanfarin misseri hefur oftverið minnst í fjölmiðlum áþá ógn sem stafar af bakter-
íum sem sýklalyf bíta ekki á. Bent
hefur verið á að óskynsamleg notkun
sýklalyfja sé ein meginástæða fjölg-
unar þessara baktería. Sýkingum af
völdum slíkra baktería hefur fjölgað
ört undanfarin ár í heiminum og í
Evrópu og Bandaríkjunum einum
saman deyja nú árlega ríflega hundr-
að þúsund manns af þeim sökum.
Vinna eingöngu á bakteríum
Til að stemma stigu við þessari
ógnvænlegu þróun er afar mikilvægt
að almenningur og heilbrigðisstarfs-
fólk taki höndum saman við að stuðla
að skynsamlegri notkun sýklalyfja.
Því er ekki úr vegi, nú þegar kvef-
pestirnar fara að banka á dyrnar hjá
okkur, að staldra aðeins við og velta
fyrir sér hvenær eigi ekki að grípa til
sýklalyfja.
Langstærstur hluti loftvegasýk-
inga sem herja á landann, eins og
kvef, hálsbólgur, berkjubólgur og
ennis- og kinnholubólgur sem dæmi,
eru af völdum sýkils sem kallast
veirur. Hefðbundin sýklalyf gera
ekkert gagn þegar um veirusýkingar
er að ræða enda vinna þau eingöngu
á bakteríum. Meðferð við veirusýk-
ingum er fyrst og fremst fólgin í því
að fara vel með sig á meðan líkaminn
læknar sig sjálfur. Holl ráð um hvað
maður getur gert sjálfur til að bæta
líðan meðan veikindin ganga yfir er
að finna á upplýsingavef heilsugæsl-
unnar www.heilsuvera.is og auk þess
er hægt að leita upplýsinga um þörf á
heilbrigðisþjónustu í 1700-síma
heilsugæslunnar. Einnig er mikil-
vægt að átta sig á því að einkenni
veirusýkingar geta varað allt frá ör-
fáum dögum upp í margar vikur og
getur vægt kvef verið dæmi um
veirusýkingu sem gengur hratt yfir
en berkjubólga dæmi um veirusýk-
ingu sem oft getur tekið jafnvel sex
vikur að verða góður af.
Síðastliðin ár hefur verið mark-
visst unnið að því innan heilsugæsl-
unnar að stuðla að skynsamlegri ávís-
un sýklalyfja. Þetta starf hefur skilað
umtalsverðum árangri og á þeim
stöðvum þar sem hvað mest vinna
hefur verið lögð í þetta hefur notkun
ákveðinna breiðvirkra sýklalyfja
dregist saman um allt að 70% árið
2018 miðað við árið 2016.
Við Íslendingar eigum þó enn langt
í land með að ná þeim skynsamlegu
markmiðum sem nágrannaþjóðir
okkar hafa sett sér varðandi ávísanir
sýklalyfja. Árangur þeirra er okkur
innblástur að halda áfram á þeirri
vegferð sem við erum á enda hlýtur
markmið okkar að vera að nota þetta
mikilvæga lækningatæki skynsam-
lega og rétt. Annars er hættan sú að
komandi kynslóðir sitji eftir með sárt
ennið, varnarlausar gagnvart algeng-
um bakteríusýkingum eins og
lungnabólgum og húðsýkingum sem
fyrr á öldum voru dauðadómur og
eiga á hættu að verða það aftur.
Holl heimaráð
Vonandi er þér ljóst, lesandi góður,
að í langsamlega flestum tilvikum
þarf ekki og á ekki að notast við
sýklalyf við kvefpestum. Hægt er að
mæla með hvíld og hollum heima-
ráðum á heilsuvera.is Þó er gott að
hafa í huga eftirfarandi þumalputta-
reglu: ef einkenni versna skyndilega
mikið þegar þau hafa verið skánandi
er skynsamlegt að leita til heilsu-
gæslunnar að fá mat á stöðunni og
ráðleggingar, eins og við á hverju
sinni.
Þarf ég sýklalyf í kvefpest?
Morgunblaðið/Hari
Sprautað Síðastliðin ár hefur verið markvisst unnið að því innan heilsugæsl-
unnar að stuðla að skynsamlegri ávísun sýklalyfja og þykir árangur góður.
Heilsuráð
Steinar Björnsson
heimilislæknir Heilsu-
gæslunni Efstaleiti
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mannlíf Holl ráð um hvað maður getur gert sjálfur til að bæta líðan meðan
veikindin ganga yfir er að finna á upplýsingavef heilsugæslunnar.
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
AROUNDTHEWORLD.IS
S. 564 2272
Aðventuferð til Dresden
28.11. – 2. 12. 2019
Innifalið flug með Icelandair, gisting í
4 nætur á 4* hóteli með morgunmat,
kvöldverður, dagsferð til Meissen,
allar skoðunarferðir, íslensk fararstj.
Verð í tvíbýli kr. 167.500 á mann.
Bókaðu á www.aroundtheworld.is
Ferðaskrifstofan Nonni Travel mun
bjóða upp á tveggja vikna ferð til
Kína um páskana 2020. Flogið verð-
ur 6. apríl frá Keflavík til Helsinki
og þaðan svo með Finnair til Beij-
ing, en það er ein þægilegasta flug-
leið sem í boði er frá Íslandi til
Kína. Heimkoma er svo 22. apríl.
„Nonni er ein elsta ferðaskrif-
stofa landsins
með mikla
reynslu af skipu-
lögðum hópferð-
um til spennandi
áfangastaða í
Evrópu. Núna
bætum við Kína
við í úrval okkar
og hlökkun til
ferðarinnar, því
um þessar mund-
ir er margt
áhugavert að gerast í þessu fjar-
læga landi,“ segir Ingi Þór Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Nonna Travel. „Þá býr landið yfir
stórkostlegri sögu og áhugaverðri
menningu, svo að ferð þarna austur
er ávísun á mikla upplifun sem
fylgir fólki væntanlega út alla æv-
ina.“
Dvalið verður í höfuðborginni
Beijing í fjóra daga og ómissandi
ferðamannastaðir sóttir heim,
meðal annars Forboðna borgin,
Sumarhöllin og Kínamúrinn, sem
margir telja vera merkasta mann-
virki í veröldinni. Næsti áfanga-
staður er hin forna höfuðborg Xi-
an, en farið verður með
háhraðalest milli borganna. Á
sjötta degi er ferðinni heitið til
borganna Guilin og Yangshuo, sem
eru margrómaðar fyrir ótrúlega
náttúrufegurð, og eftir fimm daga
skoðunarferðir, kvöldskemmtanir
og matreiðslunámskeið þar um
slóðir verður flogið til Shanghai.
Þar verður dvalið í þrjár nætur,
vatnabærinn Tongli heimsóttur, en
þar er fjöldi verslana með úrvali
varnings á góðu verði. Fararstjóri í
ferðinni er Arnar Steinn Þor-
steinsson, kínverskufræðingur og
sölustjóri Nonni Travel, en hann
bjó í Kína í rúm fimm ár, talar reip-
rennandi mandarín og hefur mikla
reynslu af kínverskri menningu og
ferðalögum í Kína. Allar ítarlegri
upplýsingar um ferðina verða að-
gengilegar á vefsíðunni nonnitra-
vel.is á allra næstu dögum.
Nonni býður í Kínaleiðangur um næstu páska
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Austurlönd Kínamúrinn, sem margir telja vera merkasta mannvirki í veröld-
inni, verður einn viðkomustaður Nonnafarþega í leiðangrinum næsta vor.
Ingi Þór
Guðmundsson
Ferðaskrifstofa á Akureyri fer á nýjar slóðir
Nemendur úr 9. bekk Vættaskóla í
Grafarvogi í Reykjavík voru þeir
fyrstu sem komu til dvalar í Ung-
mennabúðum Ungmennafélags Ís-
lands sem nú hafa verið fluttar að
Laugarvatni. Alls eru þetta 36 ung-
menni sem komu ásamt Júlíu Guð-
mundsdóttur og Renate Brunovska
umsjónarkennurum sínum að
Laugarvatni í byrjun vikunnar og
verða þar út morgundaginn. Með því
er boltinn farinn að rúlla, enda koma
nýir hópar að Laugarvatni allar vikur
á því skólaári sem nú var að hefjast.
Efla félagsfærni
Júlía segir, í frétt frá UMFÍ, hópinn
hafa nóg að gera alla dagana og
dagskrána þéttbókaða frá klukkan 8
á morgnana til 9 á kvöldin. Nóg er
um að vera, íþróttatengdir leikir, æf-
ingar hvers konar og viðburðir af
ýmsum toga sem tengjast útivist og
hreyfingu og ætlað er að efla fé-
lagsfærni. Markmiðið með dvölinni
er að efla vitund ungmennanna fyrir
umhverfi sínu og samfélagi ásamt
því að gera heilbrigðum lífsstíl hátt
undir höfði.
Hvorki tölvur né sími
Nemendum sem koma á Laugar-
vatn er hvorki heimilt að koma með
síma, tölvur eða nesti að heiman og
þurfa að haga sér innan þess ramma
sem þar er settur.
UMFÍ hefur starfrækt Ungmenna-
búðir á Laugum í Sælingsdal frá
árinu 2005. Starfsemin hefur nú
verið flutt í gömlu íþróttamiðstöðina
að Laugarvatni og er verið að byggja
þar upp frábæra aðstöðu fyrir nem-
endur sem þar dvelja. Nóg verður
um að vera í vetur því um 2.000
nemendur eru bókaðir í Ungmenna-
búðum á Laugarvatni yfir skólaárið
þótt það sé nýhafið og inn í næsta
sumar. Sem fyrr eru Anna Margrét
Tómasdóttir og Jörgen Nilsson
stjórnendur ungmennabúðanna.
Ungmennabúðir UMFÍ fluttar að Laugarvatni
Þéttbókuð dagskrá nemenda
og lífsstíllinn er heilbrigður
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Laugarvatn Ungmennabúðirnar eru í húsunum sem sjást hér neðst til hægri.
Leikur Pönnuboltinn er kominn til að vera og þykir ljómandi skemmtilegur.