Morgunblaðið - 05.09.2019, Qupperneq 18
350 kr.kg
Folaldahakk
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
Folaldakjöt
af nýslátruðu
1999 kr.kg
Folaldagúllas
2199 kr.kg
Folalda Piparsteik innralæri
... hjá ok
ku
r
í
d
a
g
H
já
b
ó
nd
a í gær ...
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti
í síðustu viku beiðni Vegagerðar-
innar um að syðri hluta Bláfjalla-
vegar verði lokað vegna vatns-
verndarsjónarmiða, frá Leiðarenda
austur að afleggjara 417-01.
„Að mati bæjarráðs er þörf á frek-
ara umhverfis- og áhættumati á
vegarkaflanum og er óskað eftir því
að Umhverfis- og framkvæmdaráð
láti vinna slíkt mat sem liggi fyrir í
síðasta lagi fyrir árslok 2021. Að því
loknu verði teknar ákvarðanir um
framtíð vegarins,“ segir í fundar-
gerð bæjarráðs, en ákvörðunin var
samþykkt samhljóða. Syðri hluti
Bláfjallavegar styttir för Hafnfirð-
inga á skíðasvæðin um 15 km.
Norðurhluti Bláfjallavegar verður
hins vegar enn opinn.
„Pólítíkin var tvístígandi“
Ágúst Bjarni Garðarsson, formað-
ur bæjarráðs Hafnarfjarðar, segir
að ekki sé um fjölfarinn veg að ræða
og hann sé oft á tíðum ófær þegar
skíðasvæðin séu opin. „Pólitíkin var
tvístígandi í þessu máli en það er
þannig að sveitarfélögin á höfuð-
borgarsvæðinu hafa samþykkt að
fara í ákveðna uppbyggingu og
framkvæmdir á skíðasvæðinu. Þetta
er það sem heilbrigðiseftirlitið hefur
verið að krefjast til þess að það gæti
gerst. Það þurfti að koma til ákveð-
inna mótvægisaðgerða og þetta er
ein af þeim,“ segir Ágúst í samtali
við Morgunblaðið.
Spurður af hverju það muni taka
rúm tvö ár að fá umhverfismat segir
Ágúst að hann voni að það muni taka
styttri tíma.
„Við ákváðum að gefa okkur þenn-
an tíma þannig að það væri hægt að
vanda vel til verka. Þetta er auðvitað
vatnsból okkar Hafnfirðinga og það
hefur orðið ákveðin vitundarvakning
um þessi mál, umhverfismálin al-
mennt. Við ákváðum að láta vatns-
verndina njóta vafans þangað til
þetta mat okkar liggur fyrir.“
Aðspurður segir Ágúst að það
standi ekki til að uppfæra veginn
eftir að framkvæmdum á skíðasvæð-
inu lýkur. „Það helst ekki í hendur.
Þetta er ein af mótvægisaðgerð-
unum svo að framkvæmdir geta far-
ið af stað. Hinn vegurinn verður
náttúrulega opinn [norðurhluti Blá-
fjallavegar]. Hann er aðeins lengri
en hann er þjónustaður og í mun
betra ástandi. Þetta er 15 km kafli á
þessum vegi sem er verið að loka
sem þyrfti þá að lagfæra. Það er bú-
ið að slá á að það kosti um 100 millj-
ónir á hvern kílómetra. Þannig að
það er einn og hálfur milljarður sem
þyrfti þá að framkvæma fyrir á
þessu svæði. Það er stór biti.“
Flestir sýnt málinu skilning
Spurður hvort Hafnfirðingar sem
sækja skíðasvæðin reglulega hafi
verið ósáttir við ákvörðun bæjarráðs
segir Ágúst flesta hafa skilning á
málinu.
„Auðvitað eru einhverjir sem hafa
skoðanir á þessu en ég held allflesta
hafa skilning á því að vatnsverndin
njóti vafans þangað til að við erum
komin með óyggjandi nýtt mat.“
Ákváðu að láta
vatnsverndina
njóta vafans
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkir
að loka syðri hluta Bláfjallavegar
Morgunblaðið/Golli
Bláfjöll Leið Hafnfirðinga á
skíðasvæðin lengist næstu ár.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Sá möguleiki er enn fyrir hendi að
nýtt sólarmet verði sett fyrir
Reykjavík á þessu sumri. Til að það
gerist þarf sólin að skína glatt það
sem eftir er septembermánaðar.
„Jú, sólin hefur skinið óvenju-
glatt í sumar,“ segir Trausti Jóns-
son veðurfræðingur spurður um
stöðu mála. Þess ber að geta að hjá
Veðurstofu Íslands telst sumarið
vera mánuðirnir júní til september,
að báðum meðtöldum.
Summa júní, júlí og ágúst er
719,1 stund, litlu meira en sumarið
2012 (var þá 704) en annars það
mesta síðan 1929 (758). Mesta sól-
arsumarið var 1928; þá mældust
sólskinsstundir í Reykjavík 768,4.
Sumarið 2019 er þannig í 3.sæti. Sé
maí talinn með dettur það niður
fyrir árið 2012, segir Trausti.
Sólskinsstundir alls ársins 2019
(til mánaðamóta) eru nú 1.292,1
sem er það mesta frá 2007 (1.309)
og það næstmesta frá upphafi mæl-
inga. Veðurstofusumrinu lýkur
ekki fyrr en um næstu mánaðamót.
Til að nýtt sumarmet náist þarf sól
að skína í 175,0 stundir í septem-
ber. Trausti telur reyndar fremur
ólíklegt að það takist.
September fór vel af stað
Hins vegar fór mánuðurinn vel af
stað og þegar þrír dagar voru liðnir
bættust 30 stundir við sumartöl-
urnar. Því vantar ekki nema rúm-
lega 140 til viðbótar það sem eftir
er af mánuði upp á metið frá 1929
(894 stundir).
Septembermeðaltal síðustu tíu
ára er 120 stundir þannig að mán-
uðurinn þarf að gera nokkru betur
en það til að ná nýju sumarmeti.
„Svo vantar enn um 320 stundir
upp á ársmetið,“ segir Trausti.
Hins vegar er óumdeilt að sum-
arið 2019 er margfalt sólríkara en
rigningasumarið 2018 í Reykjavík.
Í nýliðnum ágúst mældust sólar-
stundir í Reykjavík 220,6 sem er
65,8 stundum yfir meðallagi áranna
1961 til 1990. Í júlí mældust sólar-
stundir 194,6 og 304 í ágúst.
Summa mánaðanna þriggja er því
um 719 stundir, samanborið við 345
stundir sömu mánuði í fyrra. Þarna
munar heilum 374 sólskinsstund-
um.
Á vef Veðurstofunnar kemur
fram að á Akureyri hafa sólskins-
stundirnar mælst 437,2 í sumar,
sem er 33 stundum undir meðallagi
áranna 1961 til 1990 en 34 stundum
færra en að jafnaði í sömu mán-
uðum síðustu tíu ára. Sömu þrjá
mánuði í fyrra mældust sólarstund-
irnar sömu mánuði í fyrra 431,5
talsins.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sólarsumarið Sólin sest bak við Snæfellsjökul á einu af mörgum ægifögrum sumarkvöldum á Seltjarnarnesi.
Nýtt sólarmet gæti
litið dagsins ljós
Sólarstundir í Reykjavík í sumar eru 374 fleiri en í fyrra