Morgunblaðið - 05.09.2019, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 05.09.2019, Qupperneq 22
BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Bygging nýrra höfuðstöðva Land- bankans við Austurhöfn, sunnan tón- listarhússins Hörpu, hófst í síðasta mánuði. Þessi atburður fór ekki hátt í fréttum en var þó afar merkur. Það eru nefnilega rúm 120 ár síðan Landsbankinn, oft nefndur þjóðar- bankinn vegna langar og merkrar sögu, hóf síðast byggingu höfuð- stöðva. Það var árið 1898, á lóðinni Austurstræti 11. Landsbankinn keypti lóðina Austurbakki 2 árið 2014. Efnt var til arkitektasamkeppni og báru Arkþing ehf. og C.F. Møller sigur úr býtum. Tillaga þeirra heitir Kletturinn. Gerð aðaluppdrátta nýrra höfuð- stöðva Landsbankans lauk í desem- ber í fyrra og í kjölfarið sótti bankinn um byggingarleyfi til byggingar- fulltrúans í Reykjavík. Sótt var um leyfi til að byggja „steinsteypt 5 hæða verslunar- og skrifstofuhús, einangrað að utan og klætt blágrýti, með tveggja hæða bílageymslu fyrir 102 bíla undir hluta húss á reit 6 á lóð nr. 2 við Austur- bakka,“ sagði í umsókn Landsbank- ans. Fram kom í umsókninni að heildarstærð hússins með bílakjall- ara yrði 21.497 fermetrar. Húsið sjálft verður 16.500 fermetrar. Bank- inn hyggst nýta um 10.000 m2 í nýju húsi, um 60% af flatarmáli hússins, en selja eða leigja frá sér um 6.500 m2 sem nýtist fyrir verslun og aðra þjón- ustu. Byggingarkostnaður er áætl- aður tæpir níu milljarðar króna, að lóðarverði meðtöldu, upplýsir bank- inn. Uppsteypa tekur tvö ár Í kjölfar útboðs á uppsteypu húss- ins, sem var auglýst 1. júní sl., var samið við lægstbjóðanda ÞG Verk og var samningur undirritaður 26. júlí sl. Tilboð ÞG verk hljóðaði upp á 2.782 milljónir króna. Verktaki hóf þegar undirbúning framkvæmda og fékk lóðina afhenta 8. ágúst. Áður hafði Landsbankinn tekið þátt í sameig- inlegum framkvæmdum á lóðinni, þ.e. gerð Reykjastrætis, samkvæmt upplýsingum Rúnars Pálmasonar, upplýsingafulltrúa Landsbankans. Gert er ráð fyrir að uppsteypa húss- ins taki tæplega tvö ár, segir Rúnar. Útboð næsta áfanga er ráðgert á fyrri hluta árs 2020. „Landsbanki Íslands hóf starfsemi árið 1886 í litlu, steinhlöðnu húsi sem enn stendur í gömlu Bakarabrekk- unni (nú Bankastæti 3). Í virðingar- skyni við hina nýju bankastofnun þótti við hæfi að nefna götuna upp á nýtt og hefur hún heitið Bankastræti síðan.“ Þetta ritar Pétur H. Ár- mannsson arkitekt í samantekt fyrir bankann. Árið 1898 reisti bankinn veglega, tvílyfta steinbyggingu á lóðinni nr. 11 við Austurstræti eftir uppdráttum dansks húsameistara, Christian Thuren, sem einnig teiknaði Laugar- nesspítala og hús Íslandsbanka við Lækjartorg. Bankahúsið nýja var í ný-endurreisnarstíl eins og Alþingis- húsið, sem reist var 1881. Í samtíma- heimildum var það talið langfalleg- asta og vænsta hús á landinu. Útveggir þess voru hlaðnir úr gróf- hönnuðum steini sem múrað var yfir með láréttum skorum í múrnum og hleðslulíkingu yfir gluggum. Gólf hússins voru steypt milli járnbita, sem var tæknileg nýjung hér á landi, segir í samantekt Péturs. Önnur nýjung í húsinu var að það var hitað upp með gufu og var hita- vélin í kjallaranum, að því fram kem- ur í riti Páls Líndal um Reykjavík. Tryggvi Gunnarsson bankastjóri átti frumkvæðið að byggingunni og hafði veg og vanda af framkvæmdum. Í Reykjavíkurbrunanum mikla í apríl 1915 skemmdist Landsbanka- húsið mikið. Veggir og gólf stóðust eldinn og bankinn missti ekki neitt af skjölum sínum og fé. Þá skipti miklu að „Landssjóðskassinn“ stóðst hitann og skemmdist innihald hans ekki. Eftir brunann starfaði bankinn til bráðabirgða í pósthúsinu handan göt- unnar og eftir það á götuhæð stór- hýsisins við Austurstræti 16, en Landsbankinn átti þátt í að fjár- magna byggingu þess. Bankahúsið endurreist Stjórn bankans ákvað fljótlega að endurreisa bankahúsið á rústum hins eldra. Leitaði hún til Guðjóns Sam- úelssonar um gerð teikninga, en hann varð árið 1919 fyrstur Íslendinga til að ljúka háskólaprófi í byggingarlist. Ári síðar var hann skipaður í embætti húsameistara ríkisins. Guðjón fékk þó ekki frjálsar hendur um hönnun bankans, þar sem ákveðið var að nýta það sem eftir stóð af útveggjum gamla hússins. Til að breytingin á hlöðnu veggjunum yrði sem minnst ákvað Guðjón að teikna stækkunina í sama stíl og gamla húsið enda þótt önnur stílbrigði væru honum tamari. Viðbætur Guðjóns voru gerðar úr steinsteypu, sem þá var orðin algeng- asta byggingarefnið hér á landi. Metnaðarfullt verk „Ekki er ofmælt að Landsbanki Guðjóns Samúelssonar hafi verið vandaðasta og metnaðarfyllsta verk íslenskra hönnuða og handverks- manna á 3. áratug þessarar aldar,“ segir Pétur H. Ármannsson. „Smíði hússins var boðin út vorið 1922 og það fullgert í mars 1924. Ekkert var til sparað svo það mætti verða sem best úr garði gert. Það var hæðinni hærra og tæpum helmingi lengra en gamli bankinn. Enda þótt útfærsla á klassísku skreyti á yfir- borði steinsteyptrar byggingar væri síðar gagnrýnd sem stílbrot er þessi óvenjulega efnisnotkun eitt af því sem helst markar listræna sérstöðu gamla Landsbankahússins nú á tím- um, en fáar þjóðir eiga steinsteypta byggingu með kórréttum skreyt- ingum í nýendurreisnarstíl,“ segir Pétur í samantektinni. Bankabygging rís í miðbænum  Uppsteypa er hafin á nýjum höfuðstöðvum Landsbanka Íslands í Austurhöfn  Liðin eru 120 ár síðan bankinn byggði núverandi höfuðstöðvar í Austurstræti  Nýja húsið verður 16.500 fermetrar Morgunblaðið/sisi Landsbankalóðin Uppsteypa nýja hússins hófst í síðasta mánuði. Byrjað var á botnplötu á nyrðri enda lóðarinnar. Í grunninum má sjá nokkra starfsmenn ÞG verks. Myndin sýnir vel hversu stór grunnur hússins er í raun. Ljósmynd/Sigfús Eymundsson Í byggingu Myndin er tekin árið 1898, daginn sem „reisugildi“ nýbyggingarinnar við Austurstræti var haldið. Hið nýja hús setti mikinn svip á bæinn sem von var. Þarna hafði áður verið kálgarður og síðar leikvöllur skólabarna. Kletturinn Tölvuteikning af hinu nýja húsi. Það mun setja mikinn svip á miðborgina næstu aldirnar. 22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.