Morgunblaðið - 05.09.2019, Side 26
VIÐTAL
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Nú er niðursveifla í ferðaþjónust-
unni á Íslandi. Ferðamönnum hefur
fækkað og við þurfum eitthvað til í
það minnsta að gera landið jafn vin-
sælt og áður, ef ekki vinsælla. Ég
held að uppbygging sem þessi hjálpi
til,“ segir Loo Eng Wah sem stendur
fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu að
Leyni 2 og 3 í Landsveit.
Morgunblaðið hefur greint frá um-
ræddri uppbyggingu en íbúar og
sumarhúsaeigendur hafa bundist
samtökum til að mótmæla þeim. Vilja
þeir meina að sveitarfélagið hafi ekki
staðið rétt að kynningu á umræddum
áformum og að þau séu of stórtæk.
Íbúarnir hafa staðhæft að þarna geti
risið allt að 500 manna þorp með til-
heyrandi raski.
Loo segir í viðtali við Morgun-
blaðið að því fari fjarri að áform hans
séu jafn stórtæk og íbúar hafi haldið
fram. Hann vonast til að fram-
kvæmdirnar fari fram í sátt við fólk á
svæðinu.
„Við höfum lagt fram áform okkar
til sveitarfélagsins og þau hafa verið
sett í kynningu. Nú er verið að safna
umsögnum,“ segir Loo. „Við erum
ekki að fara að reisa 350 manna þorp.
Og hvað þá 500 manna, það er
ómögulegt! Við vitum að einn helsti
kosturinn við Ísland er víðáttan og
friðsældin og ætlum ekki að raska
því. Ég hef ferðast um allan heim og
veit vel að svæði sem er krökkt af
byggingum dregur engan að sér.
Fólk kemur til Íslands til að njóta út-
sýnis. Við viljum selja fólki ferðir
hingað til lands, ef það eru hús úti um
allt þá kemur enginn.“
Reisir norðurljósamiðstöð
Loo segir að Leynir 2 og 3 hafi
orðið fyrir valinu vegna heppilegrar
staðsetningar. Mikil umferð ferða-
manna sé á þessum slóðum og veð-
urfar heppilegt. „Það er fallegt alls
staðar á Íslandi og við skoðuðum líka
önnur svæði. En hér er mildari vetur
en víða annars staðar á landinu og við
fengum vinalegar móttökur. Við hitt-
um sveitarstjórann fyrst fyrir tveim-
ur árum og síðan hittum við Bigga
byggingarfulltrúa. Þeir tóku vel á
móti okkur og ráðlögðu okkur hvar
væri heppileg staðsetning fyrir okk-
ar verkefni.“
Hann rekur áform sín og segir að
byrjað hafi verið á að uppfæra gam-
alt tjaldsvæði sem ekki hafi verið í
notkun um hríð. Þar hefur verið
komið fyrir hjólhýsum og stefnt er að
því að við bætist kúluhús sem eiga að
henta einkar vel fyrir þá sem vilja
njóta norðurljósanna. „Við höfum
ekki hreyft við trjám eða gróðri en
höfum þurft að grafa til að tengja
hjólhýsin við vatn. Það hefur svo ver-
ið gengið frá því öllu aftur. Við höld-
um raski á náttúrunni í lágmarki.“
Næsta skref uppbyggingarinnar
verður uppbygging sumarhúsa. Loo
bendir á að fyrir séu sumarhús á
nærliggjandi jörð og því verði húsin
sem rísa einskonar framhald af þeirri
byggð.
„Við munum reisa nokkra bústaði
og gróðursetja svo tré svo hver og
einn geti verið út af fyrir sig. Þarna í
kring verður svo áfram stórt grænt
svæði. Í fyrstu voru uppi hugmyndir
að útbúa golfvöll að Leyni en það hef-
ur verið horfið frá þeim. Við viljum
að gestir okkar geti kynnst hefð-
bundnum lífsháttum á svæðinu og
notið þess að sjá norðurljósin.“
Hann segir að þar sem Leynir 2 og
3 séu fjarri þéttbýliskjarnanum á
Hellu sé stefnt að því að reisa eins-
konar norðurljósamiðstöð á svæðinu.
Hún verði byggð í víkingastíl og þar
geti gestir sótt sér vistir og keypt
minjagripi. „Og kannski geti íbúar í
sveitinni komið og selt vörur sínar og
afurðir þar.“
Auk þess sé áformað að reisa stórt
upphitað gróðurhús með trjám og
gróðri. „Það geta allir slakað á í ná-
vist túlípana og annarra blóma,“ seg-
ir Loo sem er sannfærður um að
áform sín geti orðið mikil lyftistöng
fyrir Rangárþing ytra. „Við getum
gert Hellu að nýrri „stórstjörnu“ á
Íslandi.“
Eftirsóttir ferðamenn frá Asíu
Loo er frá Malasíu og rekur ferða-
þjónustuna New Horizons sem sér-
hæfir sig í að koma með ferðamenn
frá Asíu hingað til lands. „Ég hef
markaðssett Ísland í Malasíu og
fjöldi ferðamanna þaðan hefur aukist
mikið. Svo höfum við fært út kvíarn-
ar og kynnum Ísland á nýjum slóð-
um, til dæmis í Indónesíu, Taílandi
og Víetnam,“ segir hann og leggur
áherslu á að ferðamenn frá Asíu séu
eftirsóttir.
„Kaupmáttur er að aukast í Asíu
og það hafa sífellt fleiri efni á því að
ferðast til Íslands. Asíubúar sækja í
kuldann og norðurljósin. Evr-
ópumenn koma ekki mikið hingað á
veturna en það gera Asíubúar og mín
sýn er að við verðum að hafa eitthvað
fyrir þetta fólk. Það verður að geta
notið norðurljósanna á veturna. Ég
hef skipulagt ferðir til Finnlands og
Noregs og margir Asíubúar hafa val-
ið að njóta norðurljósanna í Finn-
landi vegna þess að þar eru kúluhús.
Fleiri munu koma ef þau eru reist
hér. Svo er mun hentugra að hita
húsin hér með heita vatninu, í Finn-
landi þurfa þeir að brenna við til að
hita þau. Hver veit, kannski munu Ís-
lendingar vilja reisa sér kúluhús þeg-
ar þeir sjá þau.“
Loo játar því að verkefni sem þetta
kosti mikla peninga. „Allt svona lýtur
fjárfestingu. Sem betur fer njótum
við stuðnings frá stóru byggingafyr-
irtæki í Malasíu. Fulltrúar þess
heimsóttu bæjaryfirvöld á Hellu,
hittu sveitarstjórann og Bigga og
sýndu hvað þeir hafa gert í Malasíu.
Þetta er upprunalega mín hugmynd
en ég hef fengið góðan stuðning.“
Loo er með stór áform í Landsveit
Stórfelld uppbygging ferðaþjónustu í Leyni 2 og 3 í Landsveit Loo Eng Wah segir af og frá að
hann ætli að reisa 500 manna þorp Á að laða að eftirsótta ferðamenn frá Asíu í norðurljósaferðir
Morgunblaðið/Eggert
Stórhuga Malasíumaðurinn Loo Eng Wah stýrir uppbyggingu á Leyni 2 og 3 í Landsveit. Þar eiga að rísa sumarhús, norðurljósamiðstöð og gróðurhús.
Ljósmynd/Iceland Igloo Village
Vinsælt Þegar er farið að selja gistingu í hjólhýsum á svæðinu.
Yt
ri-
Ra
ng
á
1
Hella
H o l t a - o
g L a n d s
v e i t
Leynir ■
MiðfellÞjórs
á
Þjórs
á
Leynir í Landsveit
K
o
rt
a
g
ru
n
n
u
r:
O
p
e
n
S
tr
e
e
tM
a
p
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
Dolorin 500 mg paracetamól töflur - 20 stk og 30 stk
Lesið vandlega upplýsingarnar á umbúðum og fylgiseðli fyrir
notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið áwww.serlyfjaskra.is
Dolorin
Hita- og verkjastillandi paracetamól
Á HAGSTÆÐUVERÐI!
Reykjavíkurvegur62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is
Þú færð
Dolorin í næsta
apóteki