Morgunblaðið - 05.09.2019, Síða 32

Morgunblaðið - 05.09.2019, Síða 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019 STOFNAÐ 1953Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími: 553 1380 Hreinsum allar yfirhafnir, trefla, húfur og fylgihluti Lumar þú á herðatrjám? Við tökum vel á móti þeim og endurnýtum. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Við ætlum að halda veglega veislu og gera okkur glaðan dag, á sjálfum stofndegi klúbbsins, 6. september,“ segir Þórunn Ósk Sölvadóttir, fram- kvæmdastjóri Klúbbsins Geysis, sem á föstudaginn fagnar 20 ára starfsafmæli sínu. Eins og kemur fram hér til hliðar verður mikið um dýrðir í afmælisveislunni, sem fram fer á Hard Rock Café, salnum niðri, á föstudag frá kl. 16-20. Klúbburinn Geysir, sem er til húsa að Skipholti 29 í Reykjavík, býður upp á atvinnumiðuð end- urhæfingarúrræði fyrir fólk með geðraskanir og heldur uppi marg- víslegri annarri starfsemi. Meg- inmarkmiðið er að virkja félaga klúbbsins til starfa og koma þeim í meiri virkni í samfélaginu. Unnið er eftir hugmyndafræði Fountain House, sem orðin er keðja klúbb- húsa í 33 löndum en upphafið er rak- ið til stofnun klúbbs í New York 1948. Þar kom saman lítill hópur sjúklinga sem ákvað að hittast reglu- lega og reyna að vinna bug á ein- angrun og einmanaleika sem hrjáði þá er glímdu við geðraskanir. Byrjaði í tveimur herbergjum Áhugahópi um stofnun klúbbs hér á landi var komið á í janúar 1997, eft- ir að iðjuþjálfarnir Anna Valdimars- dóttir og Anna Guðrún Arnardóttir höfðu haldið fyrirlestur í húsi Geð- hjálpar og kynnt hugmyndafræði Fountain House. Klúbburinn var síðan formlega stofnaður 6. sept- ember 1999. Starfaði klúbburinn fyrst í tveimur herbergjum í Hátúni 10 og fljótlega myndaðist kjarni 10- 15 félaga. Skömmu síðar bauðst klúbbnum húsnæði á Ægisgötu 7, sem leigt var af Reykjavíkurborg. Það var síðan í október 2001 sem Kiwanishreyfingin stóð fyrir lands- söfnun í þágu geðsjúkra og fékk Geysir 10 milljónir króna í sinn hlut. Þeir fjármunir gerðu klúbbnum kleift að kaupa húsnæði, í félagi við Brynju, hússjóð Öryrkjabandalags- ins. Varð Skipholt 29 fyrir valinu og þar hefur klúbburinn starfað síðan. Í dag eru skráðir félagar um 430 tals- ins. Stjórnarformaður Geysis er Anna Valdimarsdóttir og verndari klúbbsins er frú Vigdís Finn- bogadóttir. Launaðir starfsmenn eru fimm. Gengur út á samvinnu Þórunn Ósk, sem stýrir starfsem- inni ásamt Benedikt Gestssyni að- stoðarframkvæmdastjóra, segir starfsemina hafa gengið vel og hjálp- að mörgum félögum út á vinnumark- aðinn og í nám á ný, sem og aukið fé- lagsfærni fólks og hæfni til að taka þátt í samfélaginu. „Við höfum hjálpað fjölmörgum við að fóta sig aftur í lífinu, þannig að hæfileikar þeirra nýtist. Þetta geng- ur mikið út á samvinnu, að geta unn- ið hlið við hlið og gefa hvert öðru styrk,“ segir Þórunn, en hún hefur unnið hjá Geysi síðan 2004, byrjaði að vinna í eldhúsinu en er nú orðin framkvæmdastjóri. Hún segir Kiw- anismenn alla tíð hafa reynst Geysi mjög vel, sem og fjölmörg önnur góðgerðarfélög, fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar. Klúbburinn er sjálfseignarstofnun, með sérstakri stjórn. Meginhluti rekstrarfjár kem- ur frá Vinnumálastofnun. Einnig hefur klúbburinn fengið styrki hjá Virk starfsendurhæfingarsjóði sem nýst hafa til fjölmargra sértækra verkefna. Geysir fagnar 20 ára starfsafmæli  Klúbburinn Geysir aðstoðar fólk með geðraskanir við að fóta sig í lífinu á ný  Vinnur eftir hug- myndafræði Fountain House  Skráðir félagar um 430  Forsetahjónin viðstödd afmælishóf á morgun Í tilefni 20 ára afmælisins býður Klúbburinn Geysir vinum og vel- unnurum sínum til móttöku í salnum niðri á Hard Rock Café, Lækjargötu 2, á föstudaginn frá kl. 16-20. Þar verður fjölbreytt dagskrá í boði með tónlist, gamanmálum, ræðum og létt- um veitingum. Forsetahjónin, Guðni Th. Jó- hannesson og Eliza Reid, hafa boðað komu sína, einnig borg- arfulltrúar, þingmenn og fleiri boðsgestir. Veislustjóri er Stef- án Helgi Stefánsson söngvari, sem mun slá á létta strengi. Húsband klúbbsins, Kiðling- arnir, stígur á svið, auk annarra. Móttaka á Hard Rock AFMÆLI Á FÖSTUDAG Morgunblaðið/Árni Sæberg Geysir Frá hádegisverði í klúbbnum í gær, f.v. á fremsta borði þau Benedikt Gestsson og Þórunn Ósk Sölvadóttir ásamt Óðni Einissyni, félaga og stjórnarmanni Geysis, og Mörtu Helgadóttur, félaga í klúbbnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.