Morgunblaðið - 05.09.2019, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 05.09.2019, Qupperneq 34
SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Við komu Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, til Íslands, er við hæfi að rifja upp heimsókn eins af fyrirrennurum hans, Lyndons B. Johnson, hingað um miðjan septem- ber 1963, fyrir nærri sextíu árum. Svo háttsettur maður frá Bandaríkj- unum hafði þá ekki áður sótt Ísland heim. Ekki er fast að orði kveðið þeg- ar sagt er að sú heimsókn hafi verið með nokkuð öðrum brag en sú sem nú er boðið upp á. Öryggisráðstafanir voru t.d. hverfandi miðað við það sem nú tíðkast. Hikaði varaforsetinn þá- verandi ekki við að blanda geði við al- menning á götum úti og ávarpa mannfjölda þétt umhverfis sig. Og ýmis uppátæki hans í heimsókninni þættu nú óviðeigandi þegar svo virðuleg persóna sem varaforseti mesta stórveldis heims er á í hlut. Sendur til Norðurlanda Sagan segir að þáverandi forseti Bandaríkjanna, John F. Kennedy, hafi haft frekar lítið álit á varaforseta sínum og helst kosið að hafa hann sem lengst í burtu frá sér. Til að taka sér frí frá Johnson um skeið hafi Kennedy ákveðið að senda hann í kurteisisferðalag um Norðurlönd haustið 1963. Var Ísland lokaáfanga- staður ferðarinnar. Kom Johnson hingað að morgni mánudags 16. sept- ember og var floginn úr landi að kvöldi sama dags. Í föruneyti varaforsetans voru auk embættismanna kona hans Lady Bird Johnson og nítján ára gömul dóttir þeirra, Lynda Bird Johnson. Skipulögðu íslensk stjórnvöld sér- staka dagskrá fyrir mæðgurnar á meðan Johnson hitti fyrirmenn þjóðarinnar og ávarpaði almennning. Fimm dagblöð komu út hér á landi á þessum tíma og fluttu þau öll ítar- legar fréttir af heimsókninni. Morgunblaðið var þeirra stærst og ákaflega velviljað Bandaríkjunum og stjórnvöldum þeirra. Má heita að allt blaðið hafi verið lagt undir heimsókn- ina þriðjudaginn 17. september. Auk þess að fylgjast með varaforsetanum ferðuðust blaðamenn með frú hans og dóttur og röktu samviskusamlega öll þau orð sem þær létu falla. Reynd- ust þær ákaflega hrifnar af landi og þjóð. Var m.a. farið með Lady Bird á Árbæjarsafn. Sérstaklega hrifningu frúarinnar vakti eldhúsið í gamla bænum. „Þetta er alveg eins kolavél og ég ólst upp við í æsku,“ hrópaði hún upp yfir sig. Lyndu Bird var boð- ið að hitta stúdenta í Háskólanum og efnt var til hádegisverðarboðs fyrir hana í Þjóðleikhúskjallaranum og henni var boðið í Ásmundarsafn þar sem hún hitti listamanninn sjálfan. Með herþyrlu til Reykjavíkur Einkaþota varaforsetans lenti í Keflavík rétt fyrir kl. 11 heimsóknar- daginn í úrhellisrigningu. Voru sex- tán lögregluþjónar við landgöngu- brúna og gekk Guðmundur Í. Guð- mundsson utanríkisráðherra um borð og heilsaði gestunum. Fimm mínútum síðar, þegar stytt hafði upp, steig Johnson úr vélinni með ráð- herranum og föruneyti hans fylgdi í kjölfarið. Fögnuðu bandarískar varnarliðsfjölskyldur varaforset- anum, sem rétti börnunum í hópnum eiginhandaráritanir sínar og tók í hendur svo margra sem hann komst yfir. Á þessum tíma var Keflavíkur- vegur ekki malbikaður og þótti ekki við hæfi að svo tignir gestir þyrftu að aka eftir honum. Flogið var í tveimur herþyrlum til Bessastaða, þar sem Ásgeir Ásgeirsson forseti tók á móti gestunum. Í stuttri móttöku innan- dyra á forsetasetrinu afhenti Ásgeir varaforsetanum silfurhorn að gjöf sem dæmi um nútíma íslenska silf- ursmíði. Johnon gaf forsetanum kortaskáp mikinn og veglegan. Síðan var haldið í mikilli bílalest til Reykja- víkur og var klukkan orðin rúmlega tólf þegar komið var að Stjórnarráðs- húsinu við Lækjartorg þar sem Ólaf- ur Thors forsætisráðherra og aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar biðu varaforsetans. Höfðu á annað þúsund manns safnast saman við húsið til þess að berja fyrirmennin augum. Johnson ávarpaði fólkið nokkrum orðum og kvaðst þakklátur fyrir hlýj- ar móttökur. Hann kvaðst myndu hafa meira að segja eftir að hafa fundað með ríkisstjórninni. Ekki varð sá fundur langur. Að 10 til 15 mínútum liðnum var hann kominn fram í móttökustofu Stjórnarráðsins þar sem blaðamenn biðu og fylgdu ráðherrarnir honum eftir. Tók hann nú upp úr vasa sínum öskju með sígarettukveikjara og afhenti hann Ólafi Thors. „Þið hljótið að geta not- að eld á Íslandi,“ sagði hann. Leit svo í kringum sig og byrjaði að útdeila kveikjurum til allra ráðherranna. Byrjaði hann á Bjarna Benediktssyni með orðunum: „And here is one for you.“ Löngu seinna rifjaði einn við- staddra, Elín Pálmadóttir blaðamað- ur, upp athöfnina í móttökunni. Einn bandarísku ljósmyndaranna hafði kallað til varaforsetans að hann hefði ekki náð mynd af því þegar kveikj- arinn var afhentur forsætisráðherra, en hann hafði stungið honum í jakka- vasa sinn. Hafi Johnson þá vaðið um- svifalaust í vasa Ólafs Thors, án þess að afsaka sig, dregið upp kveikjarann og kveikt á honum með breiðu brosi fyrir ljósmyndarann. „Svipurinn á Ólafi Thors var dálítið skondinn,“ sagði Elín, sem kvaðst aldrei hafa getað liðið Johnson eftir þetta atvik. Klifrað upp á girðingu „Lyndon B. Johnson hugði nú að hatti sínum, en fann hann ekki þegar í stað,“ segir í frásögn Morgunblaðs- ins. „Fleiri komu honum til aðstoðar en fundu ekki hattinn og þá heyrðist varaforsetinn muldra í barm sér: „Öryggislögreglan ætti að geta fund- ið hattinn minn’. En ekki þurfti þó að grípa til svo alvarlegra ráðstafana eins og þeirra að senda öryggis- lögregluna út af örkinni, þv nú kom hatturinn í leitirnar og varaforsetinn gekk út og niður stéttina og til mann- fjöldans, sem þar beið.“ Þeir sem beðið höfðu varaforset- ans utandyra fengu nú þolinmæðina ríkulega endurgoldna. Þegar John- son var kominn út fyrir hliðið klifraði hann óvænt upp á járngirðinguna með aðstoð Ragnars Stefánssonar, starfsmanns bandaríska sendiráðs- ins, og hóf að ávarpa mannfjöldann. Þýddi Ragnar orð hans jafnóðum. „Komið nær,“ sagði Johnson við fólk- ið og hafði greinilega engar áhyggjur af öryggi sínu á Ísland. Lét hann síð- an fögur orð falla um gildi vestræns lýðræðis og varnarsamstarfs. „Við viljum ekki nýlendur, heldur sam- verkamenn, við viljum ekki leppríki heldur vini,“ sagði hann m.a. áður en hann klifraði niður aftur og hóf að dreifa eiginhandaráritunum meðal fólks. Besti maturinn á Íslandi Nú var klukkan að verða eitt og varaforsetinn þurfti að rjúka í há- degisverðarboð forseta Íslands á Hótel Sögu. Upp úr þeirri veislu fékkst sú mikilvæga yfirlýsing vara- forsetans, sem slegið var upp í Morgunblaðinu, að íslenska dilka- kjötið væri besti maturinn sem hann hefði snætt á öllu ferðalaginu til Norðurlanda. Glæddi þessi yfirlýsing áreiðanlega þjóðernisstolt lands- manna. Eftir málsverðinn gerði varafor- setinn smáhlé á ferðalagi sínu en rétt fyrir klukkan fimm var hann mættur í aðalbyggingu Háskólans með bóka- gjöf sem Ármann Snævarr rektor veitti móttöku. Fékk Johnson ljósritaða útgáfu Guðbrandsbiblíu sem endurgjald. Síðan var haldið með hraði í Há- skólabíó, þar sem skipulögð hafði verið hátíðardagskrá með ávarpi for- setans. Voru um 1.500 manns í hús- inu og talsverður mannfjöldi hlýddi á ávarpið utandyra. Rabbaði við mótmælendur Að dagskránni lokinni gengu Johnson og föruneyti hans að Hótel Sögu, þar sem hans beið kvöldverður forseta Íslands og ríkisstjórnarinnar. Stóðu skátastúlkur heiðursvörð á leiðinni ásamt lögregluþjónum. Var varaforsetanum vel fagnað á göng- unni en utandyra reyndust þó einnig vera nokkrir sem mættir voru til að mótmæla heimsókninni og héldu þeir á spjöldum sem á var letrað: „Hlut- leysi Íslands – Herinn burt“ og fleira í þeim dúr. Morgunblaðið var mjög hneykslað á þessum veisluspjöllum, sem það kvað um 200 manna hóp kommúnista standa fyrir, og sá ástæðu til að nafngreina fjölda manns sem þarna hefðu orðið sér til skammar. Varaforsetinn virtist ekki hafa minnstu áhyggjur af mótmælendum og tók brosandi á móti skjali sem þeir afhentu honum í mannþrönginni og lét vinsamleg orð falla. Við dyr Hótel Sögu ávarpaði hann mannfjöldann á ný og hélt síðan í matarboðið og með því lauk þessari stuttu en litríku heimsókn hans til Íslands. Fáeinum vikum síðar var Johnson orðinn for- seti Bandaríkjanna í kjölfar þess að John F. Kennedy var myrtur í Dallas í Texas. Seildist í vasa Ólafs Thors  Lyndon B. Johnson, varaforseti Bandaríkjanna, heimsótti Ísland haustið 1963  Óvenjuleg uppá- tæki hans vöktu athygli  Klifraði upp á girðingu Stjórnarráðsins og ávarpaði mannfjöldann Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Ljósmynd/Ljósmyndasafn Reykjavíkur/Sv. Þorm. Ljósmynd/Ljósmyndasafn Reykjavíkur/Sv. Þorm. Ávarp Varaforsetinn ávarpaði mannfjöldann ofan af girðingunni og uppskar mikið lófatak. Litríkur Johnson fær aðstoð til að klifra upp á járngirðinguna við Stjórnarráðshúsið við Lækjargötu. Heimsókn Lyndon B. Johnson heilsar fólki á leið í hádegisverð- arboð á Hótel Sögu. 34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.