Morgunblaðið - 05.09.2019, Síða 43
43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
Á rölti Þessi unga kona var á göngu um bæinn með símann á lofti, spurning hvort fáninn á bakhlið farsímans hafi
eitthvað með umræðuefnið að gera enda margt að gerast í Bretlandi þessa dagana.
Eggert
Samtök verslunar og
þjónustu hafa und-
anfarin misseri lagt
mikla áherslu á mikil-
vægi menntunar í því
skyni að efla veg þeirra
starfa sem unnin eru í
verslunar- og þjón-
ustufyrirtækjum.
Menntun hefur gríðar-
lega miklu hlutverki að
gegna þegar horft er til
þeirra öru breytinga
sem eru nú að eiga sér stað í öllum
störfum, ekki síst störfum í verslun
og þjónustu. Hin stafræna bylting
hefur þegar haft umtalsverð áhrif á
störf í þessum atvinnugreinum og
þau áhrif munu aðeins aukast á
næstu árum.
Ný námslína við Verzlunarskóla
Íslands, unnin í samstarfi við SVÞ,
er því mikið fagnaðarefni. Markmið
námsins er að koma til móts við nýj-
ar þarfir fyrirtækja í verslun og
þjónustu. Þarfir sem lúta með bein-
um hætti að þeirri stafrænu byltingu
sem er að eiga sér stað. Netverslun
og -þjónusta eykst hröðum skrefum
og upp er að vaxa kynslóð sem mun
sækja meirihluta verslunar sinnar
og þjónustu á netið. Í kjölfarið tekur
umhverfi starfsfólks stórstígum
breytingum og því skiptir öllu máli
að sú hæfni sem nýr veruleiki krefst
sé byggð upp með góðri menntun.
Þessari áskorun hafa SVÞ ákveðið
að mæta með samstarfi við Verzl-
unarskóla Íslands. Nú í haust bauðst
nýnemum að hefja nám á nýrri staf-
rænni viðskiptalínu.
Eftirspurn eftir nám-
inu fór fram úr björt-
ustu vonum og komust
mun færri að en vildu.
Verslunar- og þjón-
ustufyrirtæki munu
gegna lykilhlutverki
við framkvæmd og þró-
un námsins, annars
vegar með því að miðla
af eigin reynslu við inn-
leiðingu stafrænna
lausna innan fyrirtækj-
anna og hins vegar með
því að vera leiðbeinendur og bjóða
upp á vinnustaðanám fyrir ung-
menni á þessari nýju námslínu við
Verzlunarskólann.
Það eru mikil tímamót nú þegar
fyrsti nemendahópurinn leggur af
stað í þessa vegferð. SVÞ vænta
mikils af samstarfinu við Verzl-
unarskólann og munu vinna ötullega
með skólanum að þróun námsins.
Það er trú samtakanna að námið
muni skila af sér öflugu fólki sem
verður í stakk búið til takast á við
krefjandi viðfangsefni í nýju og
breyttu starfsumhverfi verslunar-
og þjónustufyrirtækja.
Eftir Jón Ólaf
Halldórsson
»Ný námslína við
Verzlunarskóla
Íslands, unnin í
samstarfi við SVÞ,
er fagnaðarefni.
Jón Ólafur
Halldórsson
Höfundur er formaður Samtaka
verslunar og þjónustu.
Stafrænt nám við
Verzlunarskólann
Samgöngubætur og
lagning jarðganga sem
hluti af þeim hafa að
vonum verið drjúgur
þáttur í samfélags-
umræðu hérlendis allt
frá því Strákagöng til
Siglufjarðar voru
byggð á árunum 1965-
1967 og Oddsskarðs-
göng um áratug síðar.
Framkvæmdir við
jarðgöng hafa síðan farið stækkandi
með hverjum áratug, nú síðasta með
Vaðlaheiðargöngum og Norðfjarð-
argöngum sem hvor um sig eru um
7,5 km á lengd. Þrígreind Vest-
fjarðagöng eru þó í heild heldur
lengri eða samanlagt rúmir 9 km.
Með lagningu þessara og fleiri jarð-
ganga hefur safnast mikilvæg
reynsla, bæði varðandi verk-
tæknilega þætti við mismunandi
jarðfræðilegar aðstæður og leka.
Óvæntustu erfiðleikarnir sköpuðust
í Vaðlaheiðargöngum og fjár-
mögnun þeirra á undirbúnings- og
framkvæmdatíma varð afar umdeild
og fór langt fram úr áætlunum.
Upphaflegur kostnaður við göngin
var talinn verða tæpir 9 milljarðar
en endanleg tala reyndist nær tvö-
falt hærri.
Áformuð voru 1993
þrenn samþætt jarðgöng
Á árunum 1988-1993 vann sérstök
nefnd á vegum samgönguráðuneytis
ásamt með fulltrúum austfirskra
sveitarfélaga og Byggðastofnun að
mati á jarðgangakostum á Aust-
fjörðum og skilaði áliti sem gerðu
ráð fyrir að rjúfa vetrareinangrun
Seyðisfjarðar og Norðfjarðar með
jarðgöngum til Mjóafjarðar og það-
an inn úr botni Mjóafjarðar undir
Mjóafjarðarheiði upp á Eyvindardal
(framhald af Fagradal)
áleiðis í Egilsstaði.
Þessi tillaga, sem gekk
undir nafninu „T-
göngin“, fékk allgóðar
viðtökur heima fyrir og
í hópi okkar þáverandi
þingmanna Austur-
lands. Af fram-
kvæmdum hennar varð
þó ekki, heldur voru
byggð Fáskrúðsfjarð-
argöng á árunum 2003-
2005 og jafnframt kom-
ust á dagskrá áður-
nefnd Norðfjarðargöng í tengslum
við byggingu álvers Alcoa á Reyðar-
firði, grafin 2013-2017.
Seyðfirðingar róa fast
fyrir 13,4 km göngum
Eftir að ákvarðanir lágu fyrir um
göng milli Norðfjarðar og Eski-
fjarðar (Norðfjarðargöng) hertu
Seyðfirðingar róðurinn fyrir beinni
tengingu frá Seyðisfirði upp á Hér-
að. Lái þeim hver sem vill. Bar það
þann árangur að samkvæmt sam-
gönguáætlun vorið 2012 var kveðið á
um að miða undirbúning „Seyðis-
fjarðarganga“ við að hægt verði að
hefja framkvæmdir við jarðgöng
undir Fjarðarheiði í kjölfar Norð-
fjarðarganga og Dýrafjarðarganga,
en framkvæmdir við þau síðar-
nefndu eru nú vel hálfnaðar. Jafn-
framt hefur samkvæmt samgöngu-
áætlun verið veitt nokkurt fé til
jarðfræðirannsókna og í núverandi
áætlun miðað við að framkvæmdir
við Seyðisfjarðargöng geti hafist á
árabilinu 2024-2028 en meginþungi
þeirra verði á árunum 2029-2033.
Samkvæmt þessu ættu slík göng að
geta komist í gagnið að um 15 árum
liðnum, enda standi hvorki á fjár-
veitingum né óvæntir erfiðleikar við
gangagröftinn tefji fyrir. – Haustið
2017 skipaði Jón Gunnarsson sam-
gönguráðherra í skammlífri ríkis-
stjórn Bjarna Benediktssonar fimm-
manna verkefnishóp „um undirbún-
ing að ákvarðanatöku um Seyðis-
fjarðargöng. Göngin hafi það hlut-
verk að rjúfa vetrareinangrun Seyð-
isfjarðar, styrkja byggð og atvinnu-
líf á Seyðisfirði og á Austurlandi
öllu.“ Meðal verkefna hópsins var að
fara yfir ofangreinda skýrslu um T-
göngin frá 1993 og hugmyndir um
göng undir Fjarðarheiði til saman-
burðar. Þáverandi vegamálastjóri
var skipaður formaður hópsins, en
auk hans tveir Seyðfirðingar, einn
Norðfirðingur, svo og forstöðumað-
ur Byggðastofnunar.
Ruglingsleg framsetning
og tvísýn niðurstaða
Hinn 9. ágúst sl. bárust fréttir um
afrakstur þessa vinnuhóps og nú
liggur fyrir skýrsla hans undir heit-
inu Seyðisfjarðargöng. Valkostir og
áhrif á Austurlandi. Heldur er þetta
tyrfin lesning og afar óskipulega
fram sett og illskiljanleg, jafnvel
staðkunnugum. Henni fylgir sam-
antekt frá erlenda ráðgjafafyrirtæk-
inu KPMG um samfélagsleg áhrif
(Jarðgöng á Austurlandi. Mars
2019), aðallega byggð á viðtölum og
með sérstakri áherslu á Seyðisfjörð.
Einnig greinargott minnisblað um
veðurfarslegar aðstæður frá Einari
Sveinbjarnarsyni veðurfræðingi
(Veðurvaktin, júní 2019). Tillaga
vinnuhópsins er tvíþætt: 1) að graf-
in verið 13,4 km jarðgöng undir
Fjarðarheiði frá Gufufossi í Fjarð-
ará í um 130 m hæð að Dalhúsum á
Eyvindardal í svipaðri hæð, kostn-
aður áætlaður 33-34 milljarðar. 2) að
til framtíðar litið eigi einnig að
tengja Seyðisfjörð og Norðfjörð með
göngum gegnum Mjóafjörð og
skapa með því hringtengingu
fjarðanna og Héraðs, kostnaður
áætlaður um 30 milljarðar. – Mesta
athygli mína vekur frávísun hópsins
á þeim kosti sem fram var settur
þegar árið 1993, eða skv. skýrslunni
„að fara ekki með göng frá Seyð-
isfirði undir Fjarðarheiði heldur til
Mjóafjarðar og önnur göng undir
Mjóafjarðarheiði til Héraðs. Kostn-
aður við þessa lausn er um 36,3
milljarðar eða tæplega 3 milljörðum
hærri en göng undir Fjarðarheiði.“
Þó viðurkenna höfundar að: „Kost-
urinn við þessa lausn er hins vegar
sá að þá er aðeins eftir að bæta við
göngum milli Mjóafjarðar og Norð-
fjarðar til að skapa eitt atvinnu-
svæði á fjörðunum án fjallvega og
með stuttum vegalengdum á milli
þéttbýlisstaða.“ Hér sýnist mér trú-
in á löngu göngin undir Fjarðarheiði
(Seyðisfjarðargöng) bera skynsemi
höfundanna ofurliði!
Beita í sameiningar-
tilraunum eystra
Hugmynd um sameiningu fjög-
urra sveitarfélega eystra hefur verið
í deiglu um skeið, þ.e. Fljótsdalshér-
aðs, Seyðisfjarðar, Borgarfjarðar-
hrepps og Djúpavogshrepps. Könn-
un á vilja íbúa sveitarfélaganna til
slíkrar sameiningar á að fara fram í
almennum íbúakosningum 26. októ-
ber nk. Í því sambandi lesum við í
Mbl. 29.8.2019: „Fram hefur komið
að Samstarfsnefnd um sameiningu
sveitarfélaganna á Austurlandi vill
að hönnun og framkvæmd Fjarðar-
heiðarganga verði flýtt. Segir nefnd-
in göngin vera „lykilinn að eflingu
atvinnulífs á Austur- og Norður-
landi.“ Hér skal ekki gert lítið úr
gildi slíkrar sameiningar, en hæpið
er að byggja hana á hugmyndum um
jarðgöng sem enn vantar mikið á að
hafi verið tæknilega útfærð og fjár-
hagslega tryggð.
Áhættuþættir sem
brýnt er að meta
Af reynslu við jarðgangagerð hér
heima og erlendis er ljóst að miklu
skiptir góður undirbúningur og
áhættumat, bæði jarðfræðirann-
sóknir, kostnaðargreining og að-
gerðir vegna slysahættu. Í skýrslu
vinnuhópsins segir réttilega: „Frá
öryggissjónarmiðum hafa menn
áhyggjur af löngum göngum og
Fjarðarheiðargöng yrðu löng, bæði
á íslenskan og alþjóðlegan mæli-
kvarða. Enn hefur ekki verið kannað
nægilega vel hvaða áhrif það hefur á
kostnað (ljóst að það eykur kostnað
við loftræstingu bæði á fram-
kvæmda- og rekstrartíma) og því er
í grófri nálgun miðað við sama ein-
ingarverð og í öðrum göngum , þ.e.
um 2,5 milljarða á km í göngum.“
Hér er heldur ekki minnst á þá um-
talsverðu lekahættu sem jarðfræð-
ingar hafa bent á, ekki síst í Fjarð-
arheiðargöngum, m.a. út frá stóru
miðlunarlóni Fjarðarárvirkjunar
uppi á Fjarðarheiði.
Akstur í löngum jarðgöngum er
afar þreytandi, að ekki sé talað um
sjónarsviptinn í samanburði við þá
glæsisýn sem oft birtist mönnum á
ferðum um fjallvegi, t.d. af norður-
brún Fjarðarheiðar. Þannig er fjöl-
margt sem athuga þarf áður en
ákvarðanir eru teknar um tilhögun
og legu nýrra jarðganga á Aust-
fjörðum. Hér sem oftar á við lat-
neska máltækið Festina lente – að
flýta sér hægt.
Eftir Hjörleif
Guttormsson »Hæpið að byggja
tillögu um samein-
ingu sveitarfélaga
á hugmyndum um
jarðgöng sem mikið
vantar á að hafi verið
tæknilega útfærð og
fjárhagslega tryggð.
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Hlutlæga úttekt vantar um framhald
jarðgangagerðar á Austfjörðum