Morgunblaðið - 05.09.2019, Síða 44
44 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
Öldrunarheimili eru
mörgum framandi um-
hverfi sem fáir kynn-
ast af eigin raun fyrr
en nákominn ættingi
flytur þangað búferl-
um. Við sem störfum á
fjölmennustu öldrun-
arstofnun landsins,
Hrafnistu, sem er ríf-
lega tvö þúsund
manna samfélag íbúa
og starfsfólks, verðum
þess gjarnan vör í daglegum störf-
um. Almennt má segja að aðstand-
endur geri ráð fyrir að flutningur á
hjúkrunarheimili hafi í för með sér
létti fyrir aðstandendurna, en inn-
lendar og erlendar rannsóknir sýna
að svo þarf ekki að vera. Þvert á
móti gefa þær til kynna að margir
þeirra sem þjást af kvíða og þung-
lyndi vegna áhyggja af bágri heilsu
ættingja sinna þjást áfram af sömu
meinum þrátt fyrir flutninginn.
Blendnar tilfinningar
Þegar kemur að flutningi á
hjúkrunarheimili ríkja sem eðlilegt
er oft blendnar tilfinningar í hjört-
um aðstandenda vegna verkefnisins
framundan. Á sama tíma og ákveð-
inn léttir bærist innra með fjöl-
skyldunni yfir því að senn verði
endir bundinn á það mikla álag á
fjölskylduna, sem annast hefur um
sinn nánasta, ríkir einnig sorg og
jafnvel sektarkennd yfir þeim óum-
flýjanlegu aðstæðum sem koma í
veg fyrir áframhaldandi sjálfstæða
búsetu ættingja. Þegar pláss býðst
þarf gjarnan að taka skjóta ákvörð-
un og hafa hraðar hendur því lítill
tími gefst til undirbúnings vegna
þess skamma tíma sem hjúkr-
unarheimilin hafa til að kalla í laust
rými.
Mikil breyting
Það fylgir því mikil breyting fyr-
ir bæði einstaklinginn sjálfan og
ekki síður aðstand-
endur þegar sjálf-
stæðri búsetu lýkur
og við tekur annars
konar búseta á
hjúkrunarheimili. Að-
dragandinn reynist
sumum aðstandendum
erfiður en ekki síður
að honum loknum
þegar nánustu að-
standendur, sem ann-
ast hafa um helstu
þarfir hins veika, fær-
ast úr sérfræði-
hlutverkinu yfir í
ákveðið gestahlutverk. Sú staða
getur auðveldlega myndað tog-
streitu milli aðstandenda og starfs-
fólks hjúkrunarheimilanna. Við tek-
ur nauðsynleg aðlögun aðstandenda
að nýjum aðstæðum.
Mikil og góð samskipti
mikilvæg
Góð samskipti og samvinna
starfsfólks og aðstandenda hafa já-
kvæð áhrif á lífsgæði hins aldraða,
þveröfugt við þau áhrif sem tog-
streita hefur í för með sér. Þekking
á starfsemi hjúkrunarheimilisins,
vinnufyrirkomulagi og mönnun
auðveldar aðstandendum að fóta
sig í hinu nýja umhverfi. Hjúkr-
unarheimilin starfa í samræmi við
opinberar kröfulýsingar Sjúkra-
trygginga Íslands og fjárheimildir
Alþingis á hverjum tíma. Þeim er
naumt skorinn stakkur, að raun-
gildi minni og minni síðastliðin ár
og fyrirsjáanlega einnig næstu tvö
ár. Fjárheimildir hafa bein áhrif á
reksturinn og ekki hvað síst á
mönnun hjúkrunarheimilanna.
Heimilin hafa engin önnur ráð en
að aðlaga sig að ríkjandi rekstrar-
aðstæðum hverju sinni. Upplýs-
ingar og fræðsla í þágu aðstand-
enda og gott samstarf er því afar
mikilvægt í starfi hjúkrunarheim-
ila.
Umboðsmaður íbúa
og aðstandenda
Stjórn Hrafnistuheimilanna tók
þá ákvörðun í lok síðasta árs að
stofna nýtt stöðugildi við Hrafn-
istu, starf umboðsmanns íbúa og
aðstandenda, og hefur Soffía Eg-
ilsdóttir félagsráðgjafi verið ráðin í
starfið. Soffía, sem hefur meistara-
gráðu í öldrunarfélagsráðgjöf, hef-
ur starfað hjá Hrafnistu í rúm
tuttugu ár og á að baki farsælan
feril í starfi með öldruðum og með
þátttöku sinni á vettvangi málefna
aldraðra á Íslandi, s.s. á vettvangi
Öldrunaráðs og Félags aðstand-
enda alzheimersjúklinga. Fyrir
faglegt starf á Hrafnistu er mikill
styrkur að því að íbúar og að-
standendur geti leitað til umboðs-
manns sem hefur m.a. það hlut-
verk að halda kynningarfund með
aðstandendum í kjölfar flutnings
ættingja til Hrafnistu. Á fund-
unum er m.a. gerð grein fyrir
mikilvægustu þáttum í starfsemi
heimilisins, mönnun og vaktafyrir-
komulagi og hvert sé árangursrík-
ast að leita vakni spurningar og
með hvaða hætti ættingjar geta
gert dvöl ástvina þeirra sem
ánægjulegasta, svo fátt eitt sé tal-
ið. Forsenda mestu mögulegra lífs-
gæða íbúa hjúkrunarheimila eru
samstarf og samvinna starfsfólks
og aðstandenda þar sem traust og
virðing eru höfð í hávegum. Að-
standendur og starfsfólk eru mik-
ilvægir hlekkir í lífi íbúa hjúkr-
unarheimilanna, þar sem allir hafa
mikilvægu hlutverki að gegna og
enginn getur án hins verið.
Umboðsmaður íbúa
og aðstandenda ráðinn
til Hrafnistuheimilanna
Eftir Maríu Fjólu
Harðardóttur
» Í lok síðasta árs var
ákveðið að stofna
stöðugildi umboðs-
manns íbúa og aðstand-
enda á Hrafnistu og hef-
ur verið ráðið í starfið.
María Fjóla
Harðardóttir
Höfundur er framkvæmdastjóri heil-
brigðissviðs Hrafnistuheimilanna.
Takk fyrir, næsti,
gjörðu svo vel – eða
„thank u, next“ eins og
Ariana Grande tónlist-
arkona syngur í nýlegu
lagi sínu um ástarlíf
sitt. Þessi orð eru svo
einstaklega lýsandi fyr-
ir nútímastefnumóta-
menningu. Hún ein-
kennist af
færibandaframleiðslu
og kapítalískri neyslu-
hyggju. Hún snýst um leitina að full-
komnun. Hún snýst um að gera ávallt
meira en næsti maður. Að standa
uppi sem sigurvegari í lífinu – í ást-
inni.
Við höfum gjörsamlega glatað öllu
heilbrigðu sjónarmiði þegar kemur
að ást í nútíma samfélagi. Með til-
komu stefnumótasmáforrita og net-
væðingu höfum við sogast enn lengra
inn í spíral neysluhyggjunnar sem nú
einnig hefur tekið yfir ástina. Það er
búið að normalísera neysluhyggjuna
gjörsamlega og neysluvæða normið.
Við fáum krampa í þumalinn við að
„svæpa“ hægri vinstri.
„Hann er alltof rauðhærður fyrir
mig,“ gómaði ég mig segja upphátt
um daginn. „Ha, hvað meinarðu?“
sagði vinkona mín. „Já, æj, ég myndi
alveg fíla hann ef hárið hans hefði
annars konar rauðlitan blæ“. „Díses
kræst.“ Hvað er að gerast? Þetta er
svo absúrd. Það er auðvitað allt í
besta lagi að hafa sinn smekk, og við
höfum hann öll, en þessi hugsunar-
háttur í sambandi við að finna ástina
er farinn að verða ógurlega vélrænn.
Við myndum örugglega helst vilja
geta hannað okkar eigin Sims-
karakter þar sem við veljum alla út-
litsþætti sjálf og öll karakter-
einkenni. Okkar eigin uppskrift að
maka! Nokkur klikk á símann og
kviss-bamm-búmm. Mikið væri það
þægilegt. Það er
kannski framtíðin?
Ég velti fyrir mér
hvort þessi hugs-
unarháttur muni flytj-
ast yfir á börnin okkar
þegar við höfum fundið
okkar fullkomna maka í
framtíðinni. Munum við
í framtíðinni með til-
komu aukinnar tækni
getað átt við gen í fóst-
urvísi þar sem við get-
um handvalið útlit og
persónueinkenni
barnanna okkar? Þetta fer bráðum
að verða spurning um siðferði.
Við höfum sogast inn í vítahring
kapítalískrar neysluhyggju. Við er-
um sjálfhverfir bavíanar sem þurfum
á sífelldri viðurkenningu að halda frá
umheiminum. Nútímamanneskjan
„deitar“ á þann hátt að hún er ávallt
með nokkra fiska í takinu. Það er
einn heitur á pönnunni löðrandi í olíu,
annar volgur í ofninum á vægum
hita, sá þriðji kaldur til vara í ör-
bylgjunni og svo auðvitað einn í
frystinum, bara svona ef allt klikkar.
Við búum yfir endalausum tækifær-
um í hinum vestræna heimi og leit-
umst sífellt eftir fullkomnun. Við
neitum að trúa að hana sé ekki hægt
að finna. Við getum ekki afborið þá
hugsun að finna ekki fullkomnun sem
gerir það að verkum að við einblínum
á galla fólksins í kringum okkur og
hikum ekki við að losa okkur við
vondan fisk um leið og við finnum
fýlu. En því miður erum við, held ég,
öll vondur fiskur.
Normalísering
neysluhyggjunnar
Eftir Söru Sólveigu
Kristjánsdóttur
Sara Sólveig
Kristjánsdóttir
» Þetta fer bráðum
að verða spurning
um siðferði.
Höfundur er sálfræðinemi.
sarasolveig97@gmail.com
Smurþjónusta
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
SAMEINUÐ GÆÐI
Sími 585 8300 | www.postdreifing.is
VANTAR ÞIG
AUKAPENING?
Óskum eftir starfsfólki í
dreifingu, skoðaðu málið á
www.postdreifing.is
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.