Morgunblaðið - 05.09.2019, Page 45

Morgunblaðið - 05.09.2019, Page 45
UMRÆÐAN 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019 Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - hitataekni.is - Sími 588 6070 - hitataekni@hitataekni.is Hitatækni útvegar allt sem vantar í nútíma loftræsingu. Hafðu samband og við leiðbeinum þér í vali á loftræsikerfum eftir því sem hentar þér. Loftræsistæðurnar frá Komfovent eru mjög einfaldar í uppsetningum og koma með fullkomnu stjórnkerfi • Alltaf ferskt loft inn á heimilinu • Viðheldur jafnara rakastigi • Fullkomið hitastig allan ársins hring • Innblástursloft er síað, sem kemur í veg fyrir lúsmý í vistverum • Losnar við ofnæmisvaldandi eindir og ryk frá útiloftinu • Kemur í veg fyrir þungt loft og hreinsar út koltvísýring • Minnkar verulega líkur á myglu • Það þarf ekki lengur að opna glugga • Sparar orku og upphitunar kostnað Loftræsing með varmaendurvinnslu fyrir öll heimili þegar aðeins það besta kemur til greina Sitthvað í skipulags- tillögum að nýrri ásýnd miðbæjar Hafnarfjarðarbæjar vekur ugg og furðu og einkum þó áætlanir um að byggja fyrir framan Hafnarfjarðarkirkju, inniloka hana og byrgja bæði útsýn frá og að henni og vega með því að stöðu kirkj- unnar í miðbæjarmyndinni, sem kjarna og hjarta hennar. Forystumenn í atvinnu- og bæjar- lífi hins nýja og framsækna kaup- staðar, Hafnarfjarðar, í byrjun fyrri aldar réðu mestu um að kirkjunni var valinn staður undir Hamrinum við sjávarströnd og fjöruborð. Þeir höguðu því svo að hún varð ná- kvæmt leiðarmerki og stefnuviti fyr- ir skip og sæfarendur, er sigldu inn í Hafnarfjarðarhöfn og varpaði ljósi og blessun sinni yfir útgerð og at- vinnulíf, sjósókn og siglingu, sem ekkert mátti á skyggja. Stakkstæði og útbreiddur salt- fiskur rétt við Hafnarfjarðarkirkju sjást á gömlum ljósmyndum og vitna um hve nátengd hún var afkomu og lífsfarnaði fólksins í bænum. Allt frá vígslu kirkjunnar 1914 hafa skip og bátar siglt frá og að henni og notið óbyrgðs leiðarljóss hennar og vernd- ar og líka frá Fríkirkjunni sem var skammt undan á hamrahól. Mann fram af manni hafa íbúar hins vaxandi Hafnarfjarðarbæjar virt fagnaðarerindi Frelsarans og skynjað og viðurkennt, að kirkjan, sem oft var nefnd Þjóðkirkjan í Hafnarfirði, þurfti sitt svigrúm og litið á svæðið fyrir framan hana sem frá- tekið og helgað, svo að þeir fengju sem best notið fegurðar hennar og blessandi áhrifa- máttur kirkjunnar breiðst yfir byggð og bæ og út á sjó og mið. Þess gættu for- ystumenn bæjarins, sem betur fer, sem í byrjun síðasta áratugar liðinnnar aldar stóðu að stækkun miðbæj- arsvæðisins með mikilli uppfyllingu við ströndina og efndu ásamt for- ystuliði Hafnarfjarðarkirkju til arki- tektasamkeppni um hönnun að safn- aðarheimili við hana og tónlistarskóla bæjarins. Byggt var eftir fyrstu verðlaunatillögunni og byggingarnar sem risu samkvæmt henni við kirkjuna hafa hrifið með formfegurð sinni, útliti og yfir- bragði. Hafnarfjarðarkirkja ásamt glæstu safnaðarheimili sínu, Strand- bergi, og listilegum Tónlistarskóla Hafnarfjarðar hafa enda verið taldar með allra fegurstu byggingum hér á landi og þeirra verið getið í fagtíma- ritum víða um veröld sem frábærrar húsagerðarlistar. Hið góða og vandaða bílastæði sem lagt var fyrir framan kirkjuna og nýbyggingarnar og fellur sérlega vel að þeim, og þáverandi bæj- ararkitekt og starfsmenn hans hönnuðu og bæjaryfirvöld létu gera að ósk forystuliðs kirkjunnar, dreg- ur athygli að listfengi bygginganna og gegnir mikilvægu hlutverki fyrir starfsemi þeirra. Sláandi er í hinum framkomnu skipulagstillögum að afleggja eigi þetta bílastæði og byggja þar. Það sýnir litinn skilning á gildi þess sviðs og svigrúms, sem kirkjan þarfnast og nýbyggingarnar við hana til að þær njóti sín, og einnig hirðuleysi um þarfir þess fólks á mismunandi aldri og misheilsuhrausts er kemur til kirkju og sækir þar oft fjölmenn- ar athafnir. Að ætla því fremur að koma gangandi úr bílageymslum eða knýja það til að nýta opinber sam- göngutæki og koma gangandi tölu- verðan veg er virðingarleysi við það fólk og ónærgætni. Vel getur farið á að þétta byggð í Hafnarfirði sem og annars staðar en það verður að gera með aðgát og virðingu gagnvart sögulegu sam- hengi og verðmætum. Bæjarstjórn og skipulagsyfirvöld mega ekki láta stjórnast af ásækni, ásælni og gróða- von og láta undan kröfum sem van- virða söguleg verðmæti og fagur- fræðileg og listræn gildi í mótun umhverfis og bæjarmyndar. Hinar nýframlögðu skipulagstil- lögur að nýrri miðbæjarásýnd Hafn- arfjarðar bera því miður vott um skilningsskort á slíkum verðmætum í hjarta og kjarna miðbæjarins í Hafnarfirði, sem Hafnarfjarðar- kirkja með safnaðarheimili sínu, Strandbergi, og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar minna á og bera með sér. Yrði þeim fylgt fæli það í sér ólíðandi yfirgang, skemmdarverk og helgispjöll. Því ber eindregið að and- mæla þessum tillögum, að minnsta kosti hvað miðbæjarkjarnann varð- ar, og gefa skýrt til kynna að ekki megi með neinum húsabyggingum vega og þrengja að því andrými og svigrúmi sem Hafnarfjarðarkirkja og nýbyggingarnar glæstu við hana njóta nú og munu áfram þarfnast til að fegra og blessa Hafnarfjörð og mannlíf hans og menningu um ókomna tíð. Hafnarfjarðarkirkja – hjarta miðbæjarmyndar Eftir Gunnþór Ingason »Hinar nýframlögðu skipulagstillögur að nýrri miðbæjarásýnd Hafnarfjarðar bera því miður vott um skilningsskort á slíkum verðmætum. Gunnþór Ingason Höfundur var sóknarprestur Hafn- arfjarðarkirkju 1977-2009. gunnthor.ingason@gmail.com Ljósmynd/Sigurjón PéturssonHafnarfjarðakirkja Hjarta miðbæjarins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.