Morgunblaðið - 05.09.2019, Side 58
Tilefni útsendingarinnar var það að
Akureyri fagnaði afmælinu sínu með
hinni árlegu Akureyrarvöku sem er
menningarhátíð þeirra. Það er ekki
ofsögum sagt að menningarlífið á
Akureyri sé öflugt og fengu hlust-
endur K100 að kynnast því.
Meðal gesta Sigga voru t.d. Hilda
Jana Gísladóttir sem sjónvarps-
áhorfendur kannast við af N4 en hún
söðlaði um og fór í pólitíkina og er í
dag oddiviti Samfylkingarinnar á
Akureyri sem er í meirihluta. „Há-
tíðin er menningarafmælishátíð okk-
ar sem endurspeglar Akureyri á svo
fallegan hátt,“ sagði hún um hátíð-
ina.
Gellur sem mála í bílskúr komu
einnig í heimsókn. Þetta er hópur
sem fór á myndlistarnámskeið sam-
an og hefur haldið hópinn síðan þá og
hittist einu sinni í viku og málar sam-
an, í bílskúr. Að vísu er einn karl-
maður í hópnum, en í þessum hópi
eru allir gellur! Hópurinn stendur
reglulega fyrir sýningum og hægt er
að fylgjast með Gellum sem mála í
bílskúr á Facebook og Instagram.
Magni Ásgeirsson hefur búið á Ak-
ureyri í sex ár og kann því vel. Hann
sagði hlustendum m.a. frá lífinu á
Akureyri. Annar tónlistarmaður sem
fluttist norður til Akureyrar úr
skarkalanum í Reykjavík er Þorvald-
ur Bjarni. Hann starfar sem fram-
kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands og Sinfonia Nord. Hann
sagði okkur m.a. frá því að sveitin
hefði unnið að mörgum spennandi
verkefnum í kvikmyndum og sjón-
varpi í Hollywood.
Stefán Elí er ungur og upprenn-
andi tónlistarmaður frá Akureyri
sem sagði okkur frá sjálfum sér og
öflugu tónlistarlífi á Akureyri. Kraft-
inn í tónlistarlífinu megi rekja til
deildar innan Tónlistarskólans á Ak-
ureyri sem sérhæfir sig í skapandi
tónlist.
Loks kom Jóhanna Björg lista-
kona og sagði frá listalífinu á Akur-
eyri sem er öflugt. Bæði eru bæj-
arbúar móttækilegir fyrir listinni og
listamennirnir standa saman og
styrkja hver annan.
K100 heldur áfram að setja Akur-
eyri í fókus og mun næstu helgi setja
fyrirtæki í bænum á oddinn en Heið-
ar Austmann verður í beinni útsend-
ingu frá Glerártorgi, verslunar-
miðstöð bæjarins, á laugardag.
Upptökur frá þætti Sigga Gunnars
um síðustu helgi, ásamt fullt af öðru
skemmtilegu efni er hægt að finna á
k100.is
Akureyri var í brennidepli á K100 sl. föstudag þegar
Siggi Gunnars færði þáttinn sinn norður yfir heiðar
og sendi beint út frá Múlabergi á Hótel KEA.
Akureyringur Pétur Guðjóns stýrir þætti á
K100 alla sunnudaga frá Akureyri, okkar
maður á staðnum!
Sveitastrákur Magni er alinn upp í fámenn-
inu á Borgafirði eystri og unir sér vel í róleg-
heitunum á Akureyri.
Framkvæmdastjóri Þorvaldur Bjarni starfar
í dag sem framkvæmdastjóri Sinfonia Nord
og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.
Ljósmyndir (Stefán Valmundar
Gellur Jóhanna Bára Þórisdóttir
og Anna María Hjálmarsdóttir
eru gellur sem mála í bílskúr.
Oddviti Hilda Jana Gísladóttir söðlaði um og
fór úr sjónvarpinu í pólitíkina.
Akureyri í brennidepli
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
Sérstakur K100-dagur
verður í Sporthúsinu í
dag, fimmtudaginn
5.september milli
16.00 og 19.00. K100
verður í beinni út-
sendingu, plötusnúður
frá K100 hækkar að-
eins í græjunum og
býr til stemningu og
auk þess verður Ás-
geir Páll á svæðinu í
beinni útsendingu.
Hin ýmsu fyrirtæki verða á
svæðinu að kynna vörur og þjón-
ustu. Perform.is kynna vörurnar
sínar og gefa smakk, Kíróprak-
torstofa Íslands kynnir starfsemi
sína ásamt fleirum.
Allir sem koma fá K100-passa
sem gildir í heila viku. Með
passanum getur þú æft í Sport-
húsinu eða Sporthús Gull eða
farið í þá hóptíma sem eru í
boði.
Þeir sem skrá sig og fá viku-
passa geta átt von á því að verða
dregnir úr potti sem inniheldur:
Áróra Joga námskeið
Grunnnámskeið í Bootcamp
Grunnnámskeið í Crossfit
Ólympískar lyftingar hjá Jens
ISR- neyðarvarnarnámskeið
ISR-neyðarvarnarnámskeið fyr-
ir konur
Power pilates námskeið
Mánuð í einkaþjálfun
Gjafabréf frá Kírópraktorstofu
Íslands
Það er um að gera fyrir þá sem
hyggjast taka á því í vetur að
koma og kynna sér starfsemi
Sporthússins með K100 í dag.
Sporthúsið opnar
dyrnar fyrir öllum í
samstarfi við K100
Sporthúsið, í samstarfi við K100, opnar dyrnar sínar
og býður alla velkomna í heimsókn í dag frá 16 til 19.
Samstarf Sporthúsið opnar dyrnar fyrir öllum.