Morgunblaðið - 05.09.2019, Síða 63

Morgunblaðið - 05.09.2019, Síða 63
KA Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Andri Snær Stefánsson, fyrirliði handknattleiksliðs KA, telur að Ak- ureyringar séu vel í stakk búnir til þess að komast í úrslitakeppnina í vetur, þrátt fyrir litlar mannabreyt- ingar fyrir norðan. KA hefur leik í úrvalsdeildinni á sunnudaginn þegar liðið heimsækir Aftureldingu í Mos- fellsbæ en KA endaði í níunda sæti deildarinnar á síðustu leiktíð og var aðeins einu stigi frá sæti í úr- slitakeppninni. KA var spáð sama sæti, eða níundi sæti, í spá fyrirliða og þjálfara deildarinnar. „Við erum mjög brattir hérna fyr- ir norðan og staðráðnir í því að bæta árangurinn okkar frá því í fyrra. Markmiðið fyrir síðasta tímabil var fyrst og fremst að halda sæti sínu í deildinni og það tókst. Við erum búnir að æfa mjög vel í allt sumar, við viljum gera ennþá betur núna en á síðustu leiktíð og við erum meira en tilbúnir í fyrstu leiki tímabilsins. Það kemur manni í sjálfu sér ekki á óvart að okkur séð spáð níunda sæt- inu enda erum við mjög svipað lið og frá því á síðustu leiktíð þegar við enduðum einmitt í níunda sæti. Það vantaði aðeins upp á stöðugleikann hjá okkur á síðustu leiktíð og við vorum mikið upp og niður en við er- um allir reynslunni ríkari núna og vonandi getum við náð upp stöð- ugleikanum sem til þarf í efstu deild.“ Samheldni fyrir norðan KA-menn hafa aðeins bætt við sig tveimur nýjum leikmönnum í vetur og þá hefur reynsluboltinn Heimir Örn Árnason lagt skóna á hilluna en Heimir var mikilvægasti varn- armaður Akureyringa á síðustu leik- tíð. „Við höfum bætt við okkur leik- mönnum sem smellpassa inn í hóp- inn og auka þannig breiddina í lið- inu. Að sama skapi missum við Heimi sem var mjög drjúgur í varn- arleiknum hjá okkur á síðustu leik- tíð. Það verður mikil áskorun fyrir okkur og yngri leikmenn liðsins að fylla hans skarð en ég hef fulla trú á því að það takist. Daníel Griffin sem kom til okkar frá ÍBV eykur breidd- ina mikið hægra megin á vellinum. Hann er frábær varnarmaður og sterkur í sókninni líka. Það var sterkt líka að fá Patrek aftur heim enda getur hann spilað bæði vörn og sókn og eykur þannig breidina í öllu liðinu. Þá hefur Jónatan Ingi Magn- ússon komið frábærlega inn í þjálf- arateymið, með góðar áherslur, sem munu sjást á leik KA í vetur. Það er því mitt mat að við séum með sterk- ara lið en í fyrra, þótt við höfum ekki endilega bætt við okkur mörgum leikmönnum.“ KA var hluti af liði Akureyrar í ellefu ár en tímabilið 2017-2018 sendi félagið lið til keppni undir merkjum KA í 1. deildina. Liðið fór upp um deild í fyrstu tilraun og er nú á leið inn í sitt annað tímabil í röð í efstu deild. „Það er frábært að vera í hand- boltaliði KA. Við keyrum þetta batt- erý áfram á jákvæðni og stemningu og við höfum lagt mikla áherslu á það að vera með samhent lið. Leik- menn, stuðningsmenn og stjórn eru öll að róa í sömu átt og það eru ákveðin lífsgæði að fá að taka þátt í þessu verkefni. Það er mikil ánægja með starf KA, það er fullt af sjálf- boðaliðum sem taka þátt í starfinu og heimavöllurinn okkar er gríð- arlega sterkur. Þessi tvö ár hafa ver- ið hrikalega skemmtileg og við ætl- um okkur að sjálfsögðu að halda áfram að byggja upp gott hand- boltaveldi í KA-heimilinu.“ Markmið Akureyringa fyrir kom- andi keppnistímabil eru skýr en liðið ætlar sér sæti í úrslitakeppninni á næstu leiktíð. „Við þurfum að nýta heimavöllinn okkar betur en við gerðum í fyrra. Að sama skapi þurfum við að auka hraðann fram á við og nýta hraða- upphlaupin okkar betur. Ef við lög- um þessa þætti og náum svo upp meiri stöðugleika í okkar leik þá eig- um við að geta komist í úr- slitakeppnina sem er okkar mark- mið fyrir tímabilið,“ sagði Andri Snær við Morgunblaðið. Ákveðin for- réttindi að spila með KA  Andri Snær telur raunhæft markmið hjá KA að stefna á úrslitakeppnina Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason Fyrirliðinn Hornamaðurinn Andri Snær Stefánsson er í lykilhlutverki hjá KA sem var einu stigi frá því að komast í átta liða úrslitin síðasta vetur. ÍÞRÓTTIR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019 www.gilbert.is VELDU ÚR MEÐ SÁL  KA-menn verða mun ofar en þeim er spáð ef úti- leikirnir ganga betur.  Heimavöllurinn og það að erlendu leikmennirnir spili betur eru mikilvæg atriði fyrir þá.  KA-menn mega ekki við neinum meiðslum lykil- leikmanna.  Áhugavert: Hvernig smellur nýtt þjálfarateymi, Jónatan Magnússon og Stefán Árnason? Sebastian Alexandersson um KA MARKVERÐIR: Bruno Bernat Jovan Kukobat Svavar Sigmundsson HORNAMENN: Allan Norðberg Andri Snær Stefánsson Dagur Gautason Daníel Örn Griffin Þorri Starrason LÍNUMENN: Daði Jónsson Daníel Matthíasson Einar Birgir Stefánsson ÚTISPILARAR: Arnór Ísak Haddsson Áki Egilsnes Jóhann Einarsson Jón Heiðar Sigurðsson Patrekur Stefánsson Sigþór Gunnar Jónsson Tarik Kasumovic Þjálfarar: Jónatan Magnússon og Stefán Árnason. Árangur 2018-19: 9. sæti. Íslandsmeistari: 1997, 2002. Bikarmeistari: 1995, 1996, 2004.  KA sækir Aftureldingu heim í fyrsta leik sínum í deildinni á sunnudaginn klukkan 17. Lið KA 2019-20 KOMNIR Daníel Örn Griffin frá ÍBV Patrekur Stefánsson frá Akureyri FARNIR Heimir Örn Árnason, hættur Breytingar á liði KA-manna Ég pantaði mér á dögunum flug til Búdapest. Verður flogið út aðra helgina í október. Ég komst að því fljótlega eftir að ég gekk frá kaupunum að ég missi af leikjum íslenska karlalands- liðsins í fótbolta við Frakkland og Andorra í undankeppni EM á Laugardalsvelli. Um smá áfall er að ræða, þar sem ég hef ekki látið mig vanta á heimaleik með landslið- inu í mörg ár. Í staðinn skelli ég mér á leik Ungverjalands og Aserbaídsjan í sömu keppni og fæ því smá sárabót. Ég hef einu sinni áður mætt á landsleik í Austur-Evrópu. Ég „sá“ Króatíu vinna 2:0-sigur á Íslandi í umspili um sæti á HM í Brasilíu 2014 þann 19. nóv- ember 2013, á hinum ein- staklega ófagra Maksimir-velli. Króatía fór á HM og Ísland sat eftir með sárt ennið. Mér tókst að steinsofna í stúkunni í Króat- íu einhvern tímann um miðjan fyrri hálfleik. Þrátt fyrir ótrúleg- an hávaða á vellinum vaknaði ég ekki fyrr en eftir leik og hafði ekki hugmynd um hvernig fór. Vonbrigðin voru mikil þegar ég komst að því. Um mánuði fyrr fór ég til Noregs og varð vitni að 1:1- jafntefli á Ullevaal-vellinum, sem tryggði sætið í umspilinu. Fyrir leik var ég einstaklega stress- aður og ákvað að reyna að slá á stressið með eins og einum bjór, sem síðan varð að fleirum. Ég man takmarkað eftir leiknum en sá sjálfan mig í sjónvarpinu dag- inn eftir grátandi úr gleði í stúk- unni. Það var ekki eitt fallegt tár, heldur var ég háskælandi. Ég hef lofað sjálfum mér að haga mér betur í Ungverjalandi. Ég mun reyna mitt besta við að ná öllum leiknum í Búdapest og jafnvel halda aftur af tárunum í leiðinni. BAKVÖRÐUR Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.