Morgunblaðið - 05.09.2019, Side 64
EM 2020
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Ragnar Sigurðsson, landsliðs-
miðvörður í knattspyrnu, lætur vel af
sér þessa dagana enda gengur Ro-
stov nánast allt í haginn í Rússlandi.
Hann býr sig nú undir leikinn gegn
Moldóvu í undankeppni EM á Laug-
ardalsvelli sem fram fer á laugardag-
inn.
„Ég veit lítið um þetta lið á þess-
um tímapunkti en ég var með einum
gæja frá Moldóvu í liði í Rostov.
Hann var fyrirliði hjá okkur. Ef rest-
in af þeirra mönnum eru eins og
hann veit ég að þetta verður erfiður
leikur. Hann var mikið fyrir að
hlaupa, berjast og tækla. Þeir eru
með góða tækni og eru góðir í fót-
bolta. Þetta verður því ekki auðvelt,“
sagði Ragnar þegar Morgunblaðið
ræddi við hann á æfingu í gær.
Ísland er í riðli með heimsmeist-
urunum Frökkum, sem eru líklegir
til að komast áfram, og þá hafa Tyrk-
ir byrjað afar vel. Unnu til að mynda
Frakka á heimavelli. Ekki er mikið
svigrúm til að misstíga sig í þessum
riðli ef Ísland ætlar sér á EM.
„Einmitt. Þessir leikir sem okkur
finnst við eiga að vinna eru kannski
mikilvægustu leikirnir. Við verðum
að taka stig í þeim leikjum. Við vitum
að það verður erfitt að ná í stig gegn
Frakklandi og Tyrklandi úti. Nokkr-
ir eru meiddir hjá okkur og ein-
hverjir eru tæpir en við verðum til-
búnir í slaginn þegar leikurinn
verður flautaður á.“
„Gæinn“ sem Ragnar talar um er
Alexandru Gatcan, sem lék með
Rostov í ellefu ár en lagði skóna á
hilluna eftir kveðjuleik með félaginu
í júlímánuði.
Meiri ábyrgð utan vallar
Sjálfur segist Ragnar vera ein-
staklega vel á sig kominn í upphafi
nýs keppnistímabils. Hann hefur
fengið auka ábyrgð í Rússlandi og er
orðinn fyrirliði Rostov.
„Ég hef verið frábær í líkamanum.
Ég er í góðu formi og allt gengur vel.
Maður reynir að taka það með sér
inn í þessa tvo leiki. Það breytir engu
fyrir mig sem leikmann þótt ég sé
orðinn fyrirliði Rostov. Það breytir
engu um það hvernig ég spila.
Ábyrgðin utan vallar er meiri finnst
mér, eins og samskipti við þjálf-
arann. Mesti munurnin felst í því.
Fyrirliðinn okkar fór frá Rostov og
eins og hópurinn var samansettur
var líklega rétt í stöðunni að ég tæki
við þessu,“ útskýrði Ragnar en
Rostov hefur heldur betur farið vel
af stað í rússnesku deildinni og er í
bullandi toppbaráttu.
Ragnar er skiljanlega afskaplega
ánægður með góða byrjun liðsins á
nýju tímabili en bendir á að ekki séu
búnir margir leikir. „Við höfum byrj-
að mjög vel. Við erum með lið sem
getur verið á toppnum eða við topp-
inn. Það eru samt sem áður bara átta
leikir búnir. Ef við höldum ekki
áfram að gera það sem við höfum
verið að gera getum við farið niður
töfluna. Við þurfum að halda okkar
striki.“
Rostov kom mörgum á óvart
Fyrir fram var ekki búist við því í
rússneskum fjölmiðlum að Rostov
yrði eitt af sterkustu liðunum í vetur.
„Þegar ég sá hvaða leikmönnum við
héldum hjá félaginu, og hvaða leik-
menn höfðu bæst við sagði ég við
strákana að ef okkur tækist að sýna
okkar bestu hliðar og hefðum smá
heppni með okkur gætum við unnið
mótið. Fyrir tímabilið var enginn að
spá í okkur en nú er fólk farið að tala
um að við séum alvöru lið. Við meg-
um samt ekki við miklum meiðslum.
Um leið og við missum einn eða tvo
leikmenn veikist liðið nokkuð. Til að
við getum haldið þetta út þarf allt að
haldast í hendur. Sum af ríkustu lið-
unum eru með breiðari leik-
mannahópa en þó ekki öll. Spartak
Moskva er eitt af ríkustu liðunum en
er ekki með rosalega gott lið né
breiðan hóp. Lokomotiv Moskva og
Zenit eru með breiðustu leik-
mannahópana myndi ég segja,“ sagði
Ragnar Sigurðsson í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Erfiðir ef hinir eru eins og
gæinn sem lék með okkur
Ragnar er orðinn fyrirliði Rostov og býr sig undir erfiðan leik við Moldóvu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Æfing Ragnar Sigurðsson ræðir við Magnús Gylfason, formann landsliðsnefndar karla, og Guðna Bergsson, for-
mann KSÍ, fyrir æfingu landsliðsins á Laugardalsvellinum í gær. Ísland mætir Moldóvu á laugardaginn klukkan 16.
64 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
Vináttulandsleikur kvenna
Bandaríkin – Portúgal............................ 3:0
Carli Lloyd 22., 32.(víti), Lindsay Horan 83.
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
1. deild karla, Inkasso-deildin:
Leiknisvöllur: Leiknir R. – Keflavík .. 17.30
Ásvellir: Haukar – Njarðvík................ 19.15
Í KVÖLD!
Ásdís Hjálmsdóttir, besti spjót-
kastari Íslands um árabil, verður ekki
með á heimsmeistaramótinu sem
hefst í Doha í Katar í lok mánaðarins.
Ásdís skýrði frá því á Facebook-síðu
sinni að hún hefði ákveðið að enda
þetta tímabil og reyna ekki frekar við
lágmarkið fyrir HM. Ásdís varð sænsk-
ur meistari á dögunum þegar hún
kastaði 57,49 metra en Íslandsmet
hennar er 63,43 metrar.
Enska knattspyrnukonan Grace
Rapp sem hefur leikið með Selfyss-
ingum frá miðju sumri 2018 verður
ekki með í síðustu þremur umferðum
Íslandsmótsins. Hún er farin til Frakk-
lands þar sem hún er gengin til liðs við
Stade de Reims. Fyrsti leikur hennar
verður líklega gegn Evrópumeistur-
unum Lyon um næstu helgi.
Kylfingarnir Axel Bóasson og Aron
Bergsson eru komnir í 32ja manna úr-
slit á SM Match-mótinu í Svíþjóð eftir
sigra á sænskum mótherjum. Axel
vann Anton Moström og Aron vann
Axel Ostensson. Haraldur Franklín
Magnús er hins vegar úr leik eftir tap
fyrir Svíanum William Nygård.
Eitt
ogannað
„Þetta eru svipað mikilvægir leikir og voru hjá okkur
í júní. Okkur tókst að vinna báða leikina þá og verðum
að gera það líka núna. Við verðum að ná í sex stig ef
við ætlum að vera með í toppbaráttunni og berjast um
að komast á EM,“ sagði Gylfi Þór við Morgunblaðið
fyrir æfingu landsliðsins í gær en Ísland mætir Mold-
óvu á Laugardalsvelli á laugardaginn og Albaníu í El-
basan næsta þriðjudagskvöld.
„Þetta eru lið sem við setjum kröfu á okkur að taka
sex stig gegn. Við erum byrjaðir að fara yfir lið Mold-
óva og þeir hafa komið mér svolítið á óvart. Þeir hafa
spilað vel í nokkrum leikjum, til að mynda í leiknum
gegn Tyrkjunum. Þetta verður ekkert eins auðvelt og fólk heldur en
þetta er leikur sem við eigum að vinna og ætlum að vinna. Það verður
barátta í þessum riðli fram á síðustu stundu og því megum við alls ekki
tapa neinum stigum í leikjunum sem fram undan eru,“ sagði Gylfi.
gummih@mbl.is
Moldóvar komið mér á óvart
Gylfi Þór
Sigurðsson
Arnór Sigurðsson, leikmaður
CSKA Moskvu í Rússlandi, verður
ekki með íslenska landsliðinu í
knattspyrnu gegn Moldóvu á laug-
ardaginn eða gegn Albaníu á
þriðjudaginn. Arnór hefur misst af
síðustu þremur leikjum CSKA
vegna meiðsla og eftir æfingu í
fyrradag var ljóst að hann yrði ekki
leikfær í tæka tíð. Í gærkvöld hafði
ekki verið kallaður inn leikmaður í
stað Arnórs og ekki verið gefið út
hvort það yrði gert eða farið í leik-
ina með 22 leikmenn.
Arnór missir
af leikjunum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Meiddur Arnór Sigurðsson getur
ekki spilað landsleikina tvo.