Morgunblaðið - 05.09.2019, Qupperneq 67
MENNING 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
Glæsilegir skartgripir
innblásnir af íslenskri sögu
G U L L S M I Ð U R & S K A R T G R I PA H Ö N N U Ð U R
Skólavörðustíg 18 – www.fridaskart.is
Biometric exit nefnist einkasýning
tvíeykisins Jake Laffoley og Lionell
Guzman sem opnuð verður í Mid-
punkt í dag milli kl. 18 og 21. „Inn-
setning þeirra kannar normalíser-
ingu eftirlitskerfa í almennings-
rýmum og innan heimila. Biometric
exit kannar fyrirbrigðið Auto-
nomous Facial Recognition (AFR),
eða sjálfvirka andlitsgreiningu,
sem er eitt af nýjustu afbrigðum
eftirlitssamfélagsins. Tæknin er
mjög ónákvæm þegar kemur að því
að greina fólk í minnihlutahópum
eins og t.d. trans fólk, en einnig
hörundsdökkt fólk og konur. Þetta
hefur leitt til ýmissa óþæginda fyrir
þessa hópa, en algrímarnir eru ekki
síst notaðir við löggæslu til að sigta
út hugsanlega glæpamenn,“ segir í
tilkynningu. Þar kemur fram að
innsetningin samanstandi af „hökk-
uðum og óáreiðanlegum algrími
sem fylgist með og kortleggur í
rauntíma andlit þeirra gesta sem
heimsækja Midpunkt. Forritið
reynir að lesa í andlit og spá fyrir
um hegðun gesta“. Sýningin stend-
ur til 29. september og er opin um
helgar milli kl. 12 og 18.
Dúó Jake Laffoley og Lionell Guzman.
Biometric exit opnuð í Midpunkt
Óútgefin skáldsaga kanadíska rit-
höfundarins Margaret Atwood er á
svonefndum stuttum lista sex verka
sem tilnefnd eru til hinna virtu
Booker-verðlauna en þau eru veitt
fyrir besta skáldverk ritað á ensku.
Bókin, sem nefnist The Testaments
og kemur út 10. september, er
framhald skáldsögunnar The
Handmaid’s Tale frá 1985.
Aðrar bækur á stutta listanum
eru Quichotte eftir Salman Rush-
die, Ducks, Newburyport eftir Lucy
Ellmann, Girl, Woman, Other eftir
Bernardine Evaristo, An Orchestra
of Minorities eftir Chigozie Obioma
og 10 Minutes 38 Seconds in This
Strange World eftir Elif Shafak.
Verðlaunin verða afhent í London
14. október og hlýtur vinningshaf-
inn 50 þúsund bresk pund að laun-
um, sem samsvarar rúmum 7,7
milljónum íslenskra króna.
Bækur Atwood og
Rushdie tilnefndar
Salman Rushdie Margaret Atwood
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Danski kórinn Vocal Line er
væntanlegur til landsins, en hann er
einn fremsti kór Evrópu þegar kem-
ur að blönduðum kórum sem syngja
kórútsetningar af samtímatónlist og
popplögum. Kórinn er frá Árósum,
hefur á að skipa
31 söngvara, þar
af einum íslensk-
um, Gunnari Sig-
fússyni, og syng-
ur í 10-12 röddum
án undirleiks,
sem er afar krefj-
andi og snúið fyr-
ir bæði söngvara
og stjórnanda.
Kórinn mun
halda þrenna tón-
leika hér á landi í næstu viku, þá
fyrstu miðvikudaginn 11. september
kl. 20 í Hamraborg í Hofi á Akureyri,
næstu degi síðar í Skálholtskirkju kl.
20 og þá þriðju 14. september í
Silfurbergi í Hörpu. Þeir síðustu
verða sameiginlegir tónleikar með
íslenska poppkórnum Vocal Project.
Vocal Line fór með sigur af hólmi í
kórakeppni Eurovision á þessu ári
og syngur rytmíska samtímatónlist í
nýjum og skapandi útsetningum sem
unnar eru sérstaklega með kórinn í
huga. Kórinn flytur ábreiður eftir
tónlistarmenn á borð við Bon Iver,
Sting, Auroru, Peter Gabriel, Tori
Amos og Nick Cave og hefur einnig
sungið lög Íslendinga, m.a. eftir
Björk, Ásgeir Trausta og hjónin
Helga Jónsson og Tinu Dickow, sem
búa á Íslandi. Og Íslandstengingar
eru fleiri því tónlistarmyndband við
titillag síðustu plötu Vocal Line,
True North, var unnið af íslenskum
ljósmyndara, Gísla Dúa.
Cohen, Coldplay og Sting
„Ég hef búið í Árósum í sex ár og
hef verið í kórnum í fjögur ár,“ segir
Gunnar, eini Íslendingur kórsins.
„Við höfum kallað þetta „contempor-
ary music“ á ensku,“ segir hann um
tónlistina sem kórinn flytur og að
hljómurinn í kórnum, söngtæknin og
lagavalið sé töluvert frábrugðið því
sem einkenni klassíska kóra.
– Geturðu nefnt mér dæmi um lög
sem þið hafið verið að syngja?
„Já, í tilefni af ferðinni til Íslands
erum við að taka upp „King and
Cross“ með Ásgeiri Trausta og svo
syngjum við mörg af þessum þekkt-
ari lögum, „Hallelujah“ eftir Leon-
ard Cohen og „Viva la Vida“ eftir
Coldplay. Það eru þekktustu lögin en
annars höfum við mikið verið að
sækja í fólk eins og Sting og lagahöf-
unda frá Norðurlöndunum, m.a. hina
norsku Auroru,“ svarar Gunnar en
þeir sem vilja heyra tóndæmi geta
fundið slík á fésbókarsíðu kórsins,
YouTube-rás hans og heimasíðu á
slóðinni vocalline.dk.
Gimsteinar grafnir upp
– Þið syngið þá ekki alltaf vel
þekkt lög?
„Nei, það er allur gangur á því og
mörg þeirra eru óþekkt. Þetta geng-
ur mikið út á að grafa upp einhverja
gimsteina sem liggur eitthvert efni í,
það er að segja góð melódía, texti og
svoleiðis og endurtúlka lagið,“
svarar Gunnar.
– Eruð þið líka að stappa og
klappa og búa til takta?
„Nei, við erum með svona „beat
box“-ara, þrjá stráka sem skiptast á
að búa til trommur með munninum.
Þeir eru í kórnum og mismunandi
hvernig þeir hljóma, valið á þeim fer
eftir því hvað lagið býður upp á.“
– Er erfitt að komast í kórinn?
„Já, það er það. Það er 31 söngvari
í honum og ef einhver hættir er sú
staða auglýst. Síðan eru haldin inn-
tökupróf og það eru yfirleitt 15-30
sem sækja um, allt eftir því hvort um
kven- eða karlrödd er að ræða,“
svarar Gunnar.
Gunnar er spurður hvort meðlimir
kórsins þurfi að vera lærðir söngv-
arar. „Það er engin krafa gerð um
það, besta röddin er frekar valin.
Margir lærðir söngvarar hafa ekki
komist inn því þeir voru ekki með
réttu röddina. En 90% þeirra sem
eru í kórnum eru með einhvers kon-
ar tónlistarmenntun að baki,“ segir
Gunnar og vissulega sé kostur að
geta lesið nótur.
Gunnar er sjálfur sönglærður og
auk þess trompetleikari. Hann segist
líka sinna kóra- og hljómsveitar-
stjórn. „Það hentar mér því vel að
vera í kórnum,“ segir hann, „maður
lærir mikið af þessu og þetta er kór í
hæsta gæðaflokki.“
Lag Dickow um Ísland
Berst þá talið að Eurovision
Choir, kórakeppni söngvakeppn-
innar víðfrægu. „Þetta er ný keppni í
rauninni og frekar nýtt fyrir-
komulag,“ segir Gunnar, en keppnin
var haldin í annað sinn í ár og úrslit
réðust 3. ágúst. Kórar frá tíu löndum
öttu kappi í Partille-íþróttahöllinni í
Gautaborg í Svíþjóð og leiddi kór-
stjóri og stofnandi Vocal Line, Jens
Johansen, sitt fólk til sigurs en
danska ríkisútvarpið hafði samband
við Vocal Line og spurði hvort kór-
inn væri til í að fara í keppnina.
Lagið sem Vocal Line flutti nefn-
ist „True North“ og er eftir Tinu
Dickow fyrrnefnda, en hún er vel
þekkt tónlistarkona í heimalandi
sínu. Þess má geta að þau Helgi
munu að öllum líkindum taka eitt lag
eða tvö á tónleikunum í Silfurbergi
14. september. „Það er skemmtileg
tenging við Ísland í þessu lagi því
textinn fjallar um þá ákvörðun
Dickow að flytja með Helga til Ís-
lands og í textanum lýsir hún ís-
lensku landslagi og er að velta því
fyrir sér hvort þetta hafi verið rétt
ákvörðun,“ segir Gunnar.
Brautryðjendastarf
Kórinn er orðinn 28 ára og hefur
hlotið fleiri verðlaun og viðurkenn-
ingar. Í ár hlaut hann verðlaunin
European Voices, fær þau afhent í
næsta mánuði. Verðlaunin eru veitt
fyrir brautryðjendastarf kórstjórans
og kórsins, en Johansen þykir hafa
unnið mjög merkilegt starf og marg-
ir kórar hafa líkt eftir stíl Vocal Line,
að sögn Gunnars.
– Eru ekki margir svona kórar í
Evrópu?
„Jú, og við erum með mjög góð
tengsl við marga kóra í Þýskalandi
sérstaklega, förum einu sinni eða
oftar á ári í stuttar tónleikaferðir
þangað. Við erum þá að gera svipað
og við gerum í Hörpu með Vocal
Project, hittum einhvern kór á
staðnum og höldum tónleika með
honum,“ svarar Gunnar.
Vocal Line mun flytja nokkur af
þekktustu lögum sínum á tónleik-
unum í næstu viku og líka lög sem
kórinn hefur verið að syngja undan-
farið og lög af plötu sem kórinn gaf
út í fyrra. „Svo er slatti af nýju efni
líka sem hefur ekki heyrst áður á
tónleikum,“ segir Gunnar. „Við höf-
um verið að undirbúa þessa tónleika
í um tvö ár.“
Miðasala á tónleikana fer fram á
vefjunum harpa.is og tix.is.
Sigursöngur Vocal Line fagnaði innilega sigri í kórakeppni Eurovision 3. ágúst síðastliðinn í Gautaborg.
Í hæsta gæðaflokki
Vocal Line, sigurvegari kórakeppni Eurovision árið
2019, heldur þrenna tónleika hér á landi í næstu viku
Gunnar
Sigfússon
Ljósmynd/EBU