Morgunblaðið - 05.09.2019, Blaðsíða 70
70 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla
• klassískur gítar
• þjóðlagagítar
• rafgítar
• nótnalestur
• hljómfræði
• leikið eftir eyranu
Einstaklingsmiðað nám.
Áratugareynsla af kennslu á öllum stigum.
Gítarkennsla
í einkatímum
guitar.msc.iceland@gmail.com
Hvítur, hvítur dagur heitir nýjastamynd Hornfirðingsins HlynsPálmasonar. Raunar hefði þessititill líka sæmt fyrstu kvikmynd
hans, Vetrarbræðrum, sem fjallaði um námu-
verkamenn sem voru iðulega ataðir hvítri kísil-
drullu og allir dagar hvítir.
Vetrarbræður flaug örlítið undir radarinn
hér heima, kannski af því að hún var á dönsku.
Hún fékk t.d. frekar fáar Eddutilnefningar og
var ekki tilnefnd fyrir kvikmyndatöku ársins,
sem er skandall því kvikmyndataka Mariu von
Hausswolff var svo sannarlega sú langbesta
það árið. Myndinni gekk hins vegar afar vel á
alþjóðlegum vettvangi; hún fékk góða dóma og
var sýnd á virtum kvikmyndahátíðum um allan
heim.
Hvítur, hvítur dagur fjallar um Ingimund,
sem er fyrrverandi lögreglumaður. Ingi-
mundur hefur nýlega misst konuna sína í bíl-
slysi og er augljóslega í sárum þótt hann reyni
að fela það eftir bestu getu. Hann sökkvir sér í
að gera upp hús fyrir dóttur sína, bæði til að
dreifa huganum og af því að hann heldur að
þannig geti hann kannski gert sjálfan sig upp.
Ingimundur er ekki mannblendinn og eina
manneskjan sem hann á í ekta sambandi við er
Salka dótturdóttir hans. Snemma í myndinni
fær Ingimundur vísbendingar um að konan
hans hafi verið að halda framhjá honum. Hann
bregður sér í gamla löggugírinn og fer að rann-
saka málið. Rannsóknin færir Ingimundi hins
vegar ekki þá friðþægingu sem hann þarfnast,
heldur sendir hann sífellt nær brúninni.
Frásögn í dulargervi
„MacGuffin“ er frásagnarlegt fyrirbæri sem
hefur fyrst og fremst verið tengt við myndir
Alfreds Hitchcock. Myndir hans hverfast
gjarnan um frekar dæmigert glæpaplott, sem
er þá „MacGuffinið“, en glæpaþráðurinn er oft-
ast ekki aðalatriðið í myndinni, heldur er það
eitthvað dýpra. Plottið í Hvítum, hvítum degi
er frekar borðleggjandi en það kemur ekki að
sök því sagan um svikin og lögreglurannsókn-
ina er algjört MacGuffin. Myndin snýst um að
afhjúpa aðalpersónuna, fletta honum í sundur
lag fyrir lag, uns við komumst inn að nöktum
og blæðandi kjarnanum.
Það má líka halda því fram að í myndinni sé
reynt að komast inn að kjarna miðilsins, prófa
mismunandi leiðir til að nota hann, því þetta
snýst meira um hvernig sagan er sögð heldur
en söguna sjálfa. Þetta er alvöru bíómynd sem
notar alla möguleika miðilsins, hljóð, mynd,
tíma og klippingu, til að miðla sögunni og verk-
ið ber þess vitni að Hlynur Pálmason er altal-
andi á tungumál kvikmyndanna.
Myndin hefur vissan tilraunakenndan vinkil,
þótt hér sé ekki gengið jafn langt í tilrauna-
mennskunni og í Vetrarbræðrum. Stundum er
staldrað við óhlutbundnar senur sem tengjast
söguþræðinum ekki beinlínis en gefa sögunni
engu að síður vigt. Ein slík sena er í upphafi
myndarinnar þar sem við horfum á húsið hans
Ingimundar í nokkrar mínútur. Við sjáum hús-
ið alltaf frá sama sjónarhorni en við mismun-
andi aðstæður, um vetur, sumar, nótt og dag,
og fylgjumst með því hvernig húsið breytist
þegar framkvæmdirnar byrja. Táknrænan er
augljós, þarna á sér stað þróun, tíminn líður,
þetta er lífið sjálft. Þetta verður mjög sláandi
þegar við kynnumst svo Ingimundi, sem er
augljóslega fastur í sama farinu, sama hvað
tímanum líður. Fleiri svona augnablik, eins og
þegar við sjáum stein rúlla niður brekku og
þegar staldrað er við „barnaefni“ í sjónvarp-
inu, eru þýðingarmikil og undarleg innslög
bæta heilmiklu við myndina. Ég er afskaplega
hrifin af þessum útúrdúrum, hér er tekin
áhætta og það virkar.
Það sem ég er kannski hvað ánægðust með
er að hér er ekki verið að skorða sig of fast við
raunsæið. Íslensk kvikmyndahefð er raunsæis-
hefð og það er virkilega hressandi þegar hrist
er aðeins upp í því. Myndin gefur tilfinningu
fyrir raunsæi en með smá aukaplássi. Við
sjáum t.a.m. nokkur skot af sjónvörpum sem
sýna umferð um vegina í sveitinni, líkast til
eiga þau að sýna myndefni frá einhvers konar
öryggismyndavélum. Það liggur milli hluta
hvar eða hvort slík öryggismyndavélasjónvörp
fyrirfinnist í alvörunni. Ingimundur fer líka
reglulega til sálfræðings, sem er hvorki
óvenjulegt né óraunsætt, en sálfræðingurinn
hans er annaðhvort versti sálfræðingur í heimi
eða hann er ekki til í alvörunni. Áhorfandinn
fær að ákveða það.
Fagmennska
Ingvar E. Sigurðsson hefur nú þegar unnið til
verðlauna bæði á Cannes og í Transylvaníu
fyrir túlkun sína á Ingimundi. Hann er frábær
leikari sem verður bara betri með árunum og
er virkilega góður í hlutverki Ingimundar. Ída
Mekkín Hlynsdóttir er algjörlega æðisleg í
hlutverki Sölku og ljær persónu sinni afslöpp-
un, gáska og kraft. Einnig langar mig að nefna
Þór Tulinius, sem er reglulega skemmtilegur
sem furðusálfræðingurinn Georg.
Þótt Hvítur, hvítur dagur eigi sér stað á
hefðbundnum íslenskum slóðum er hún ein-
hvern veginn erlend á að líta, nema má áhrif
frá dönskum dogma-hreyfingunni, þarna er
svolítill Bresson og svolítill Andrei Tarkovskíj.
Í Solaris (1972) eftir Tarkovskíj er t.a.m. frægt
atriði sem sýnir mann aka bíl og umferð um
hraðbrautir. Atriðið líður afar hægt og dregur
fram einmanaleika þess að sitja einn í bíl. Svip-
uðum brögðum er beitt í Hvítum, hvítum degi
með mjög góðum árangri. Endurtekið sjáum
við Ingimund keyra um sveitina, keyra inn og
út úr göngum, inn og út úr ljósinu. Þetta er af-
skaplega táknrænt, endurtekið erum við send
inn í göngin, minnt á að við erum á ferðalagi
inn að myrkvuðum kjarna. Ingimundur og
Salka heyja svo lokaviðureign við skrímslið í
Ingimundi inni í slíkum göngum.
Hlynur er menntaður í Danska kvikmynda-
skólanum, sem er einhver virtasti og besti
kvikmyndaskóli í heiminum og ekki að ástæðu-
lausu, fólk sem útskrifast þaðan er nánast und-
antekningalaust mikið hæfileikafólk sem gerir
flottar myndir. Áður en hann hóf kvikmynda-
nám lagði hann stund á myndlist. Það leynir
sér ekki að Hlynur er myndlistarmaður, bak-
grunnur hans liggur í ljósmyndun og kvik-
myndir hans einkennast af frábærri notkun á
myndmáli, lýsingu og innrömmun.
Ljósmyndarahliðin opinberast sérstaklega í
niðurlagi myndarinnar þegar við sjáum port-
rett af aðalpersónum myndarinnar sem minna
á ljósmyndir, þau standa kyrr og horfa í
myndavélina. Einnig gerir hún vart við sig í
eins konar kyrralífsmyndum af hlutum sem
tengjast bílslysinu, skóm á víðavangi, hjól-
barða o.fl. Myndin er skotin á filmu, sem telst
heljarinnar vesen nú til dags. Mikil ósköp hvað
það er samt þess virði, það er dýrt og það er
vesen en það er svo miklu, miklu fallegra.
Kvikmyndatakan er líka algjörlega óaðfinn-
anleg.
Ný rödd
Hvítur, hvítur dagur er gerð á sígilda vísu en
er jafnframt fersk og frumleg. Hún er æsi-
spennandi en líka hjartnæm og ískrandi kóm-
ísk á köflum. Það eina sem er ekki ferskt er að
hún fjallar um fullorðinn karl í krísu, minni
sem kannski er bara kominn tími á að hvíla
svolítið. Það má samt taka fram að myndin
glamúrvæðir ekki karlalega tilfinningahörku
og þvermóðsku, þvert á móti sýnir hún hvernig
hún getur eitrað út frá sér.
Í rýni minni um Vetrarbræður sagði ég m.a.:
„Vetrarbræður inniheldur eitthvað pönk, ein-
hverja rödd, sem ég fagna að sé komin inn í ís-
lenskt kvikmyndasamhengi og ég hlakka til að
sjá verk eftir höfundinn á íslensku. Það er eng-
um blöðum um það að fletta að Hlynur og
teymi hans eru rísandi stjörnur.“ Ég við-
urkenni að ég iðaði í skinninu að sjá nýju
myndina og var reglulega spennt að sjá hverju
Hlynur tefldi fram næst. Niðurstaðan er opið,
fallegt og smekklegt verk sem sýnir mikla virð-
ingu fyrir miðlinum og viðfangsefninu. Hvítur,
hvítur dagur er frábær mynd og með henni
sannar Hlynur og teymi hans að þau eru ekki
einungis rísandi stjörnur heldur listamenn á
heimsmælikvarða. Farið í bíó og sjáið þessa
mynd.
Inn að kjarna
Fersk Kvikmyndin er gerð á sígilda vísu en er jafnframt fersk og frumleg, að mati gagnrýn-
anda. Hér sjást Ingvar og Ída í hlutverkum sínum, hlutverkum Ingimundar og Sölku.
Smárabíó, Háskólabíó, Laugarásbíó,
Borgarbíó Akureyri og Bíó Paradís
Hvítur, hvítur dagur bbbbb
Leikstjórn og handrit: Hlynur Pálmason.
Kvikmyndataka: Maria von Hausswolff. Klipping:
Julius Krebs Damsbo. Tónlist: Edmund Finnis.
Aðalhlutverk: Ingvar E. Sigurðsson, Ída Mekkín
Hlynsdóttir. Hilmir Snær Guðnason, Elma Stefanía
Ágústsdóttir, Þór Tulinius, Arnmundur Ernst
Björnsson og Sigurður Sigurjónsson.
Ísland, 2019. 109 mín.
BRYNJA
HJÁLMSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Ljósmynd/Hlynur Pálmason
Dan Reehil,
prestur hjá St.
Edward-barna-
skólanum í Nash-
ville í Bandaríkj-
unum, hefur látið
fjarlægja allar
bækur um
galdrastrákinn
Harry Potter af
bókasafni skól-
ans, þar sem
hann telur að notkun J.K. Rowling
á „raunverulegum göldrum“ geti
kallað fram illa anda.
Í frétt The Guardian um málið
kemur fram að skólinn sé einkarek-
inn kaþólskur barnaskóli. „Bæk-
urnar kynna galdra sem bæði já-
kvæða og neikvæða, sem er ekki
sannleikanum samkvæmt, heldur
snjöll blekking,“ skrifaði Dan Ree-
hil í tölvupósti sem hann sendi öll-
um foreldrum skólabarnanna.
Bækur um Harry
Potter fjarlægðar
J.K. Rowling