Morgunblaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 6
VIÐTAL Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Elskulegi bróðir! Hér um bil hafa 45 ár liðið síðan við sáumst. Ég hefi oft hugsað til þín, en aldrei getað dragnast til að taka upp penna og hripa fáeinar línur. Á þessum orðum hefst áratuga- gamalt bréf sem Guðrún Dóra Þórudóttir fann fyrir tilviljun fyrir nokkrum árum. Síðan þá hefur hún velt fyrir sér sögunni á bak við bréfritarann og viðtakandann og freistar þess nú að finna afkom- endur þeirra með hjálp samfélags- miðla. Guðrún Dóra og eiginmaður hennar, Hermann H. Hermanns- son, fóru í fjársjóðsleit uppi á háa- lofti í húsi sínu á Háteigsvegi 20 á dimmu vetrarkvöldi fyrir um sjö árum. Þar fundu þau m.a. gamlar bækur og dagblöð og í kassa fundu þau sendibréf sem dagsett var í mars 1948. Þau reyndu árangurs- laust að hafa uppi á afkomendum bréfritara með aðstoð Íslendinga- bókar og ákváðu að lokum að af- henda Þjóðskjalasafninu bréfið, eftir að hafa tekið myndir af því. Áhugaverð saga á milli lína Guðrún birti nýverið myndir af bréfinu á facebook þar sem hún spurði hvort einhver kannaðist við fólkið sem skrifað er um í bréfinu. „Það er áhugaverð saga á bak við þetta bréf. Það má alveg lesa það á milli línanna,“ segir hún. Bréfið er frá Magnúsi nokkrum til bróður síns. Bréfritari var þá búsettur í borginni Virginíu í Minnesotaríki og bróðirinn, sem óvíst er um nafnið á, virðist hafa búið hér á landi. Magnús biðst for- láts á að hafa ekki skrifað fyrr, segist ekki hafa haft hugmynd um hvar bróðirinn væri staddur, en hafði þó frétt að hann væri búinn að missa sjónina. „Ég mun vera latasti penna maður í heimi,“ skrifar Magnús og svo virðist sem bréfinu hafi fylgt úr sem hann gerir sér þó grein fyrir að viðtakandinn hafi lítið gagn af þar sem hann sé blindur. … „Sem gæti á sinn hátt sagt þér, ef þú héldir því við eyrað, að ég væri enn lífs og hugsaði til þín.“ Magnús segir bróður sínum síðan undan og ofan af högum sínum og lýkur bréfinu á að óska honum alls hins besta. Greinileg bræðraást „Mér brá þegar ég fór að lesa bréfið,“ segir Guðrún Dóra. „Mér fannst það svo persónulegt. Það er greinilegt að einhver óuppgerð mál voru á milli þessara bræðra en líka augljóst að þrátt fyrir að þeir hafi ekkert verið í sambandi í 45 ár er mikil bræðraást þeirra á milli. Magnúsi, sem skrifar bréfið, finnst skipta miklu máli að bróðir hans viti að hann sé að hugsa til hans.“ Guðrún segist ekki hafa fundið fleiri bréf á háaloftinu sem tengd- ust Magnúsi. Hún hafi, síðan hún fann bréfið, hugsað um það af og til og þegar hún frétti af hóp á face- book, þar sem birtar eru gamlar ljósmyndir, datt henni í hug að þar væri kominn vettvangur til að finna fólkið sem tengist bréfinu. Sú leit bar ekki árangur. „Hefur ekki látið mig í friði“ Nú hefur Guðrún einnig birt bréfið í facebookhópi fyrir Íslend- inga í Ameríku, þar sem Magnús bréfritari var búsettur í Bandaríkj- unum og einnig börn hans. Hún vonast til þess að einhverjir þar kannist við fólkið sem fjallað er um í bréfinu. „Þegar ég var krakki dreymdi mig alltaf um að finna gamalt bréf, flöskuskeyti eða eitthvað annað slíkt. Ég er mjög forvitin að eðlis- fari og þetta bréf hefur bara ekki látið mig í friði öll þessi ár. Það væri virkilega gaman ef einhver gæfi sig fram sem kannast við mál- ið,“ segir Guðrún Dóra og segist vonast til að í hópi lesenda Morg- unblaðsins sé einhvern slíkan að finna. Hverjir eru bræðurnir í bréfinu?  Guðrún Dóra fann sendibréf frá 1948 á háalofti  Leitar nú af- komenda bréfrit- ara og viðtakanda Guðrún Dóra „Þegar ég var krakki dreymdi mig alltaf um að finna gamalt bréf, flöskuskeyti eða eitthvað annað slíkt,“ segir Guðrún Þóra sem vonast til þess að einhver í hópi lesenda Morgunblaðsins viti deili á fólkinu í bréfinu. Elskulegi bróðir Í bréfinu, sem dagsett er í mars 1948, segir Magnús bréfritari m.a. frá högum fjölskyldu sinnar sem búsett er víða í Bandaríkjunum. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019 „Ég hefi upp á síðkastið haft í hyggju að senda þér einhvern grip sem tákn upp á það að ég væri ekki alveg búinn að gleyma þér,“ skrifar Magnús í bréfinu. Hann minnist á dóttur við- takanda, Aðalheiði að nafni, og segir hana hafa skrifað sér frá Detroit í Michiganríki og beðið sig að hitta sig þar. „Svaraði ég um hæl og sagði henni að mér væri ómögulegt að ferðast suður […] Henni hefir líklega ekki líkað bréf mitt, ég var fremur berorður; en það sem ég sagði var í gamni meint.“ Í bréfinu segir hann bróður sínum m.a. frá högum barna sinna sem öll eru uppkomin. Sonurinn Ólafur er giftur, býr í Fort Worth í Texas og „hefir þar góða stöðu“. Dóttirin Ragnhildur er líka gift og býr í Los Angeles í Kaliforníu. „Hún gekk á háskólann hér í Minnesota og útskrifaðist í dietetics, sem ég gæti kannske gjört þér skiljanlegt með því að segja að hún á að geta valið þær matartegundir sem bezt hæfa sjúkdómi hvers sjúklings,“ skrifar Magnús og bætir við að hún starfi á Presbyterian Hospital í Holly- wood. Bréfinu lýkur svo á orð- unum: „Þinn elskandi bróðir.“ „Þinn elsk- andi bróðir“ BRÉF MAGNÚSAR BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík / 525 8000 /www.bl.is EIGUMBÍLAÁSÉRKJÖRUM LAFHENDINGARSTAX Renault gengur í öll verk með rétta bílinn. Hvort sem þig vantar langan 6 manna, 7 manna pallbíl fyrir vinnuflokkinn eða snarpan og rúmgóðan rafbíl í útköllin. Komdu og veldu þér vinnufélaga. E N N E M M / S ÍA / N M 9 5 5 9 3 6 SÆTA/FARANGURSRÝMI, DÍSIL, BEINSKIPTUR Listaverð: 5.590.000 kr. TILBOÐ:3.830.645 kr. án vsk. TILBOÐ: 4.750.000 kr.m. vsk. RENAULT KANGOO EV 100% RAFBÍLL, SJÁLFSKIPTUR Listaverð: 4.190.000 kr. TILBOÐ:3.560.000 kr. ENAULTMASTER DOUBLE CAB 7 SÆTA/PALLBÍLL, DÍSIL, BEINSKIPTUR Listaverð: 5.519.000 kr. TILBOÐ:3.782.258 kr. án vsk. TILBOÐ: 4.690.000 kr.m. vsk. TI N R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.