Morgunblaðið - 19.09.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019
Jón Elvar Guðmundsson, lögmað-ur á Logos, ritar um hlutfall
skatts af arði og
tekjuskatt af launum
og hvort fyrrnefndi
skatturinn er of lág-
ur eins og stundum
er haldið fram. Jón
Elvar bendir á að áð-
ur en kemur til arð-
greiðslna greiða
hlutafélög 20% skatt
af hagnaði. Þegar þessi skattur hef-
ur verið greiddur þarf svo að greiða
22% skatt af arðinum.
Niðurstaðan af þessu er sú aðskatthlutfallið sem í raun er
greitt er ekki 22% eins og stundum
er haldið fram, heldur 37,6%.
Sá sem er með mánaðarlaun upp á500 þúsund krónur greiðir í
raun 26,43% í skatt og það er ekki
fyrr en launin eru komin upp í 1,5
milljónir króna sem skattgreiðslan
er orðin svipuð af launatekjunum og
af arðgreiðslunum, eða 37,54%.
Þetta felur í sér að það er ekki fyrr
en við hærri laun en 1,5 milljónir
sem skatthlutfall arðgreiðslna getur
verið lægra en hefðbundið skatthlut-
fall af launagreiðslum.
Þá þarf að hafa í huga að almennthefur fólk greitt tekjuskatt af
tekjum sínum áður en það fjárfesti
og fór að afla fjármagnstekna. Þeg-
ar þetta er tekið með í reikninginn
er augljóst að skattlagning arð-
greiðslnanna er umtalsverð.
Í því sambandi er svo ástæða til aðvelta því fyrir sér hvernig stend-
ur á því að nýlega var fjármagns-
tekjuskatturinn hækkaður. Engin
frambærileg skýring hefur verið
gefin á því og ekki heldur á því að
ekki hefur enn verið gripið til
mótvægisaðgerða til að draga úr
óæskilegum áhrifum af því, eins og
talað hafði verið um.
Jón Elvar
Guðmundsson
Skattar á arð
eru háir, ekki lágir
STAKSTEINAR
Vegagerðarappið verður lagt niður
þar sem notkun þess stóðst engan
veginn væntingar og kostnaður er
töluverður. „Bæði er nokkur kostn-
aður við rekstur appsins og einnig
við óhjákvæmilega áframhaldandi
þróun til að viðhalda því. Notendur
kjósa frekar að nota vef Vegagerð-
arinnar fyrir þessar upplýsingar,“
segir í frétt á vegagerdin.is.
Fyrir nokkrum árum bjuggu
nokkrir háskólanemar til app (smá-
forrit) fyrir Vegagerðina. Appinu
var ætlað að miðla upplýsingum í
snjalltæki vegfarenda um færð á
vegum, vegalengdir o.fl. Notkun á
þessu appi hefur því miður ekki ver-
ið mikil að mati Vegagerðarinnar.
Rekstur þess kosti töluverðar upp-
hæðir því reka þarf sérstakar þjón-
ustur til að fæða appið á upplýs-
ingum. Þá liggi fyrir að leggja þyrfti
í töluverða vinnu til að viðhalda app-
inu ef nota ætti það lengur.
Þegar horft er til notkunar sé eng-
an veginn forsvaranlegt að halda
rekstri áfram. Því hafi verið ákveðið
að afleggja appið og mun það smám
saman hverfa úr umferð. Fyrst
lokast fyrir nýjar uppsetningar en
þegar frá líður hverfur appið alfarið
úr tækjum notenda og viðkomandi
þjónustur hætta að senda frá sér
upplýsingar. sisi@mbl.is
Vegagerðarappið verður lagt niður
Notkun smáforritsins stóðst ekki
væntingar Kostnaður er of mikill
Morgunblaðið/Kristján
Ófærð Vegfarendur nota fremur
vef en app til að fá upplýsingar.
Setja þarf af stað verkefni til að
sporna við ofnotkun sterkra verkja-
lyfja sem innihalda ópíóða og geta
valdið alvarlegri fíkn. Þegar hefur
mikill árangur
náðst við að
draga úr notkun
breiðvirkra
sýklalyfja hjá
Heilsugæslu höf-
uðborgarsvæð-
isins á síðustu
misserum. Notk-
unin hefur
minnkað um
nærri fjórðung
frá því sem var
og er skynsamlegri nú en áður. Hóf
í verkjalyfjamálum er því næsta
mál. Þetta segir Emil Lárus Sig-
urðsson, forstöðumaður Þróunar-
miðstöðvar íslenskrar heilsugæslu.
Ár er síðan starfsemi þróunar-
miðstöðvarinnar hófst og var þeirra
tímamóta minnst í gær.
Að sporna við óhófi í notkun
sýklalyfa er mikilvægt því ómark-
viss notkun þeirra er ein af ástæð-
um sýklalyfjaónæmis sem er heil-
brigðisógn á heimsvísu, sagði Emil.
Fleiri verkefni eru í deiglu hjá þró-
unarmiðstöðinni, svo sem að bæta
þjónustu við fólk með sykursýki
með heilsueflandi móttöku. Þangað
geti fólk með aðra kvilla og lífsstíls-
sjúkdóma einnig leitað.
„Það er til mikils að vinna að
heilsugæslan geti verið fyrsti við-
komustaður þeirra sem þurfa á
heilbrigðisþjónustu að halda. Upp-
bygging þróunarmiðstöðvarinnar er
hluti af því,“ sagði Svandís Svav-
arsdóttir heilbrigðisráðherra á
fundinum í gær. Mikilvægt væri
sömuleiðis að sjúklingar leituðu á
réttan stað eftir þjónustu hverju
sinni, í slíku fælust þægindi fyrir
alla og hagræði. Fræðsla væri því
mikilvæg í heilsugæslustarfi.
sbs@mbl.is
Verkjalyfjanotkun
verði minni en nú
Heilsugæslu-
starfið er í þróun
Morgunblaðið/Ómar
Fíkn Vinna á gegn notkun verkja-
lyfja sem innihalda ópíóða.
Emil L.
Sigurðsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKAR EININGAR ÚR
VINNUBÚÐUM TIL SÖLU
Sex nýlegar einingar, 27 fm2 með WC,
sturtu og eldhúskrók, fluttar inn nýjar
2016 og voru notaðar í ca. 14 mánuði.
Rúm og dýnur ásamt lausamunum
fylgja.
Verð pr. stk: 1.860.000 kr. m/vsk
Skrifstofueining, úr timbri, 115fm2.
Samanstendur af 4 einingum,
lítið eldhús og baðherbergi með sturtu
innifalið.
Verð pr. stk: 1.984.000 kr. m/vsk
Tvær einingar úr timbri, 15 fm2 með
WC, sturtu og eldhúskrók. Rúm og
dýnur ásamt lausamunum fylgja.
Verð pr. stk: 744.000 kr. m/vsk
Einingarnar eru staðsettar við
Búrfellsvirkjun, allar nánari upplýsingar
veitir Hjörtur Nielsen í tölvupósti
hjortur@isol.is eða í síma 533 1234.
Hægt er að sjá fleiri myndir a
www.isol.is