Morgunblaðið - 19.09.2019, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Það var margt um manninn í opn-
unarathöfn á stærri og endurbættri
íþróttamiðstöð Seltjarnarness á
laugardaginn. Formleg dagskrá fór
fram í fimleikasalnum þar sem há-
punkturinn var sýning 160 fimleika-
barna á öllum aldri undir stjórn
Berglindar Pétursdóttur og fleiri
þjálfara.
Í árslok 2016 undirrituðu þau Ás-
gerður Halldórsdóttir bæjarstjóri
og Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri samstarfssamning á milli Sel-
tjarnarnesbæjar og Reykjavíkur-
borgar um að standa sameiginlega
að stækkun íþróttaaðstöðu Gróttu
til að bæta aðstöðu til fimleikaiðk-
unar. Upphaf viðræðna var í kjölfar
samþykktar á fundi sambands sveit-
arfélaga á höfuðborgarsvæðinu árið
2010, en þá stefndu sveitarstjórnir á
aukið samstarf á sviði íþróttamála.
Sameiginlegur rekstur
Samstarfssamningur Seltjarnar-
nesbæjar og Reykjavíkurborgar fól
í sér að sveitarfélögin tvö myndu
standa sameiginlega að rekstri fim-
leikadeildar Gróttu og mun Reykja-
víkurborg greiða leigu á fimleika-
aðstöðunni fyrir iðkendur sem
búsettir eru í Reykjavík. Leigu-
samningurinn er til 20 ára með
ákvæði um framlengingu á fimm
ára fresti.
Hinn 25. mars 2018 tóku svo
borgar- og bæjarstjóri fyrstu
skóflustunguna að stærri og endur-
bættri íþróttamiðstöð Seltjarnar-
ness að viðstöddum fjölda ungra
íþróttaiðkenda. Nú tæpum 18 mán-
uðum síðar iðar nýtt og endurbætt
hús af lífi, segir í frétt á vef Sel-
tjarnarness. Iðkendur hafa aldrei
verið fleiri hjá Íþróttafélaginu
Gróttu eða um 1.200. Þess má geta
að þar af er fjöldi iðkenda í fim-
leikadeildinni um 575 manns þar
sem 65% þátttakendanna eru frá
Reykjavík.
Framkvæmdin á íþróttamann-
virkinu var afar umfangsmikil því
auk nýrrar viðbyggingar fyrir stór-
bætta aðstöðu fimleikadeildarinnar,
sem hefur nú fengið 1.300 fermetra
undir starfsemi sína, ákvað Sel-
tjarnarnesbær að ráðast samhliða í
endurbætur á íþróttamiðstöðinni
sjálfri. Stóri íþróttasalur hússins
var færður til vesturs, öll búnings-
aðstaða bætt til muna og 170 fer-
metra styrktarsalur útbúinn fyrir
félagsmenn. Gerð var breyting á að-
komu í íþróttamiðstöðina, anddyrið
stækkað sem og afgreiðslan og að-
staða starfsmanna.
Það var Munck ehf. á Íslandi sem
annaðist framkvæmdirnar á hús-
næðinu en Þjónustumiðstöð Sel-
tjarnarnesbæjar annaðist breyt-
ingar á lóðinni og aðkomu að
íþróttamiðstöðinni. Eftirlit með
verkinu hafði Strendingur ehf.
Undirritaður var verksamningur
milli Munck og Seltjarnarnesbæjar
um stækkun og endurbætur á
íþróttamiðstöð bæjarins hinn 16.
janúar 2018. Tilboðið hljóðaði upp á
703 milljónir króna. Var það mjög
nálægt upphaflegri kostnaðar-
áætlun bæjarins sem var 690 m.kr.
Líf og fjör í nýjum fimleikasal
Seltjarnarnes og
Reykjavík byggðu
húsið Iðkendur
eru nú 575 talsins
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Tímamót Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Guðjón Rúnarsson, formaður fimleikadeildar Gróttu, héldu ávörp í til-
efni tímamótanna. Athöfninni í fimleikasalnum lauk með flottu hoppi og sterku klappi allra í salnum með bæjarstjóra og borgarstjóra í fremstu röð.
Tvö áhyggjulaus ár á
notuðum Mercedes-Benz.
Klettháls 2 · 110 Reykjavík · Sími 590 2160 · notadir.is
Opnunartímar
Virka daga 10–18, laugardaga 12–16
Þú finnur okkur á Facebook
facebook.com/askjanotadirbilar
Verð 15.990.000.–
GLS 350d 4MATIC
Árgerð 2019, ekinn 2 þús. km,
dísil, 2.987 cc., 259 hö,
sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn.
Raðnúmer: 170298
Verð 7.490.000.–
GLE 250d 4MATIC
Árgerð 2017, ekinn 60 þús. km,
dísil, 2.143 cc., 205 hö,
sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn.
Raðnúmer: 994386
Verð 9.950.000.–
GLC 350d 4MATIC
Árgerð 2017, ekinn 48 þús. km,
dísil, 2.987 cc., 259 hö,
sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn.
Raðnúmer: 993566
Verð 6.490.000.–
CLA 220d 4MATIC
Árgerð 2018, ekinn 19 þús. km,
dísil, 2.143 cc., 177 hö,
sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn.
Raðnúmer: 341356
Tveggja ára ábyrgð og þjónusta innifalin með
viðurkenndum Mercedes-Benz.
Skoðaðu úrvalið á notadir.is
Verð 6.890.000.–
C-Class 200 4MATIC
Árgerð 2018, ekinn 9 þús. km,
bensín, 1.991 cc., 184 hö,
sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn.
Raðnúmer: 994006
Draumaferð til
Siglufjarðar.
Gisting á Sigló Hótel fylgir
notuðum Mercedes-Benz frá
17.september til 31. október.
Tvær nætur í tveggja manna
herbergi, ásamt morgunverði.