Morgunblaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Jólin virðast hefjast fyrr í Kauptúni en annars
staðar á landinu og hefur sala á jólavarningi
byrjað snemma í gegnum árin í verslun hús-
gagnarisans IKEA. Þar á bæ hefst sala jóla-
skrauts og -varnings í október. Önnur verslun
byrjar þó enn fyrr en IKEA og það er ná-
granni hennar sem heitir Costco.
Jólavörur fóru að tínast þar inn í síðustu
viku og hafa nú þegar nokkur jólatré selst, þar
af eitt þriggja metra hátt.
Samkvæmt upplýsingum frá Costco tínast
jólavörurnar inn í flestar verslanir keðjunnar á
heimsvísu um þetta leyti.
Brot á óskrifuðum reglum
Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Há-
skóla Íslands, sem hefur rannsakað jólahefðir
Íslendinga og annarra í gegnum tíðina, segir
mjög óvenjulegt hér á landi að jólaundirbún-
ingur hefjist um miðjan september. „Þetta er
nokkuð sem maður sér oftar erlendis en hér.
Íslendingar hafa haft einhverjar reglur um það
hvenær má byrja að spila jólalög og svona.
Hérlendis sér maður viðbrögð ef einhver setur
jólaljós upp allt of snemma, svo samfélagið hef-
ur sínar leiðir til að undirstrika óskrifaðar
samfélagsreglur,“ segir Terry.
Það að Costco hefji sölu á jólavörum svo
snemma segi ekki endilega að siðir Íslendinga
í þessum efnum hafi breyst. „Þetta eru nátt-
úrlega fyrst og fremst verslanir sem eru að
hugsa um að selja vörur. Í Bretlandi leiðist
fólki það ef sala á jólavarningi hefst svona
snemma. Þegar jólin koma loksins er maður
búinn að fá alveg nóg af þeim. Við þurfum bara
að sjá hvernig við Íslendingar tökum í þetta.
Þetta verður ekki að sið Íslendinga fyrr en þeir
taka siðinn upp.“
Terry bendir á að framboð verslana geti haft
áhrif. Costco geti vissulega fært bandarískjar
venjur inn í íslenskt samfélag, þó einungis ef
Íslendingar hafi áhuga á þeim venjum.
Costco byrjar jólin á undan IKEA
Jólatréssalan er byrjuð í Garðabæ Þjóðfræðingur segir svo snemmbúinn jólaundirbúning vera
óvenjulegan en ekki til marks um breytta siði Íslendinga Jólin í IKEA munu byrja í október
Rugguhestur Jólavörurnar eru af ýmsum toga þetta árið. Vangaveltur Snjókarlakaup krefjast úthugsaðra ákvarðana.
Morgunblaðið/Eggert
Leikur Það er spurning hvort þessir Íslendingar séu tilbúnir að laga sig að nýjum jólasiðum.
Skrautleg Jólatrén eru komin í sölu og farin að seljast.
Notalegt Viðskiptavinur skoðar jólahús.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra og Halldór Benjamín Þor-
bergsson, framkvæmdastjóri SA,
ávarpa stofnfund Samstarfsvett-
vangs um loftslagsmál og grænar
lausnir í dag kl. 14 á Grand Hótel
Reykjavík. Forstöðumaður vett-
vangsins, Eggert Benedikt Guð-
mundsson, kynnir hlutverk, verk-
efni og tilhögun vettvangsins.
Hlutverk vettvangsins er að efla
samstarf atvinnulífs og stjórnvalda
við að draga úr losun gróðurhúsa-
lofttegunda og stuðla að kolefnis-
hlutleysi árið 2040. Þá mun vett-
vangurinn vinna með fyrirtækjum
að markaðssetningu grænna lausna
á alþjóðamarkaði auk þess að
styðja við orðspor Íslands sem leið-
andi lands á sviði sjálfbærni.
Nýr samstarfsvettvangur kynntur í dag
Fiðlusnillingurinn snýr aftur Jónas Sen — 24.11.2017
Eldborg 20.okt. kl.19:30
Píanisti Alessio Bax
Miðasala á harpa.is og í síma 528 5050
@harpareykjavik
HAUSTTILBOÐ
20% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
INNRÉTTINGUM
Í SEPTEMBER
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Mán. – Fim. 9–18
Föstudaga. 9–17
Laugardaga. 11–15