Morgunblaðið - 19.09.2019, Síða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
á Sauðárkróki, FNV, fagnar því á
laugardaginn að 40 ár verða liðin frá
því að skólinn var fyrst settur, eða
22. september árið 1979. Hann hét
til að byrja með Fjölbrautaskólinn á
Sauðárkróki.
Á þessum 40 árum hafa aðeins
tveir skólameistarar verið við
stjórnvölinn. Jón F. Hjartarson var í
heil 32 ár, eða frá stofnun til haust-
annar 2011, og Ingileif Oddsdóttir
tók þá við starfinu fyrir átta árum,
en hún hafði í nokkur ár verið kenn-
ari og náms- og starfsráðgjafi við
skólann. Aðstoðarskólameistari í
dag er Þorkell V. Þorsteinsson, sem
hóf störf við skólann fyrir tæpum 40
árum sem enskukennari.
Eins og kemur hér fram til hliðar
verður tímamótanna minnst með
ýmsum hætti. Afmælisdagskrá verð-
ur í bóknámshúsi skólans og síðan
verða öll húsakynnin opin.
Framhaldsmenntun á sér lengri
sögu á Sauðárkróki en 40 ár. Áður
en FNV tók til starfa hafði Iðnskól-
inn á Sauðárkróki verið starfræktur
frá 1946 og framhaldsdeild verið við
Gagnfræðaskólann á Sauðárkróki
frá 1977. Stofnendur fjölbrautaskól-
ans voru sveitarfélög á Norðurlandi
vestra, ásamt ríkissjóði.
Nemendur hafa verið í kringum
500 undanfarin ár, bæði í bóknámi,
verknámi og starfsnámi. Svonefnt
dreifnám hefur verið í boði á
Blönduósi, Hvammstanga og
Hólmavík. Heimavist hefur verið frá
upphafi en flestir nemendur koma af
Norðurlandi vestra. Starfsmenn
skólans í dag eru hátt í 60 talsins.
Tveir skólameistarar á fjörutíu árum
Á laugardag verða 40 ár síðan Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki var fyrst settur
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Tímamót Fjölbrautaskólinn er með bóknámshús, verknámshús og heima-
vist, auk aðgangs að íþróttahúsi og sundlaug á Sauðárkróki.
Jón F.
Hjartarson
Ingileif
Oddsdóttir
Í tilefni af 40 ára afmæli FNV
eru allir velunnarar skólans
boðnir velkomnir til afmælis-
dagskrár sem hefst á sal bók-
námshússins kl. 13 næstkom-
andi laugardag. Að dagskrá
lokinni verður opið hús í öllu
húsnæði skólans frá kl. 14 til
15.30, eða í bóknámshúsinu,
verknámshúsinu og heima-
vistinni. Núverandi og fyrrver-
andi starfsmenn koma síðan
saman í borðhaldi í Frímúr-
arahúsinu að kvöldi laug-
ardagsins.
Afmæli og
skólinn opinn
upp á gátt
DAGSKRÁ Á LAUGARDAG
Verslun – Snorrabraut 56, 105 Reykjavík
Sími 588 0488 | feldur.is
VINDUR
rauðrefstrefill
15.500
DRÍFA
skinnkragi
31.900
HREFNA
refaskinnsvesti
69.000
BYLGJA
silfurrefskragi
24.600
Velkomin í hlýjuna
SARA
mokkakápa
238.000
SIF – vesti úr
íslensku lambaskinni
50.400
JAPANSKT
12 MÁNAÐA BÓN
FUSSO 12 mánaða bílabón
Útsölustaðir: Verkfæralagerinn • ET verslun • RS partar
GLACO 12 mánaða rúðubón
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Sáralítið hefur veiðst af makríl síð-
ustu tvær vikur á alþjóðlega haf-
svæðinu norðaustur af landinu. Þar
voru fjögur íslensk skip í gær, en
eins og staðan er núna er útlit fyrir
að allt að tvær vikur hafi klippst aft-
an af makrílvertíðinni miðað við síð-
ustu ár. Flest uppsjávarskipanna
eru nú á síld fyrir austan land og
hafa veiðar gengið vel.
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi,
SFS, hafa farið þess á leit við
sjávarútvegsráðuneytið að heimilt
verði að flytja 20% aflaheimilda á
milli ára til að koma í veg fyrir að
heimildir falli niður. Samkvæmt
reglugerð er heimilt að flytja 10% á
milli ára, en frá 2015 hafa þessar
heimildir í makríl árlega verið
rýmkaðar í 15-30%. Mest mátti
flytja á milli ára 2015 þegar Rússar
settu bann á innflutning á sjávar-
afurðum frá Íslandi.
Eftir að veiða 28 þúsund tonn
Makrílaflinn á vertíðinni er alls
orðinn rúmlega 123 þúsund tonn og
hugsanlega er einhver slatti í skip-
um, sem eiga eftir að landa. Úthlut-
un ársins var samtals upp á um 140
þúsund tonn og miðast geymslu-
heimildir við þá tölu, samkvæmt
upplýsingum blaðsins. Með flutningi
heimilda frá síðasta ári mátti veiða
151 þúsund tonn í ár og er því eftir
að veiða um 28 þúsund tonn af
heildarkvótanum.
Eftir fyrstu dagana í september
fór að draga mjög úr makrílveiði og
ótíð hefur verið á veiðisvæðinu í
Síldarsmugunni, sem hefur gert leit
erfiða. Þá hefur minna verið af mak-
ríl þar undanfarið miðað við sama
tíma síðustu ár, en makríllinn held-
ur nú suður á bóginn eftir fæðu-
göngu á norðurslóð í sumar.
Betra hráefni eftir því
sem líður á vertíðina
Útgerðarfyrirtækin eiga mismikið
eftir að veiða af kvóta ársins og flest
þeirra gerðu ráð fyrir veiði fram
undir lok mánaðarins. Makríllinn
verður betra hráefni eftir því sem
líður á vertíðina og á þetta er bent í
bréfi SFS til sjávarútvegsráðu-
neytisins. Margar útgerðir hafi því
reynt að haga veiðum þannig að þær
fari frekar fram seinni hluta tíma-
bilsins.
Bent er á að í ár hafi verið góð
veiði í ágúst en erfiðlega gengið að
veiða í september. Þessu hafi verið
öfugt farið undanfarin ár og áætl-
anir fyrirtækja hafi miðast við að
hægt yrði að veiða til 20. september
og jafnvel lengur.
Morgunblaðið/Börkur Kjartansson
Vertíð Beitir NK á togi í leiðindaveðri á kolmunnaveiðum síðasta vor.
September hefur
verið erfiður á
makrílveiðum
Útgerðarmenn vilja fá að flytja 20% á
milli ára svo aflaheimildir falli ekki niður