Morgunblaðið - 19.09.2019, Page 29
Er hárið farið
að þynnast?
Hair Gro™
P
A
LL
O
eh
f.
Hair Gro frá New Nordic inniheldur frábæra blöndu náttúrulegra afurða sem
rannsóknir hafa sýnt fram á að auki hárvöxt og sé einstaklega gott fyrir
hársvörðinn og hársrótina.
• Procyanidin B2 úr eplum getur aukið hárvöxt.
• Hirsi, efltingu, amínósýrur, bíótín og sink, allt efni sem styrkja hárið og
stuðla að eðlilegum hárvexti.
• Tocotrienol er einstaklega gott fyrir hársvörðinn og hársekkina (hárrótina)
þar sem ný hár myndast.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilshillum verslana
Virkar fyrir
konur og karla
Kynning
Að léttast á
heilbrigðan hátt
Fat Burner™ inniheldur sérvalin innihaldsefni
sem styðja við heilbrigða og skilvirka fitu-
brennslu. Jurtir, rætur og fræ ásamt kólíni sem
getur stuðlað að eðlilegu niðurbroti á fitu
Flestar jurtir, rætur og fræ hafa veriðnotaðar í lækningaskyni í aldaraðir ogjafnvel árþúsundir. Vestræn samfélög
hafa á sl. áratugum kannski ekki verið
nógu dugleg að leita í þennan „lyfjabrunn
náttúrunnar“ þar sem kröfur um faglega
þekkingu og viðurkenndar rannsóknir hafa
aukist mikið. Sem betur fer hefur bæði
þekkingu og fræðslu fleytt fram og er nýting
okkar nútímafólks á þessum efnum alltaf að
aukast og notkun að verða
almennari.
Innihaldsefnin í Fat
Burner™ eru sérvalin með
tilliti til meltingar og
örvunar á líkamsstarfsemi,
sérstaklega fyrir þá sem
vilja léttast á náttúrulegan
hátt. Eins og með öll önnur
þyngdarstjórnunarefni, þá
dugir ekki að taka þau inn
og viðhalda fyrri venjum því að sjálfsögðu
er grundvallaratriði að laga mataræðið
og stunda heilbrigðan lífsstíl. Það getur
samt verið gott að fá örlitla hjálp, t.d. við
að draga úr bólgum, losna við bjúg, örva
líkamsstarfsemina og niðurbrot á fitu.
Örvandi og hreinsandi innihaldsefni
n Yerba mate: Trjátegund sem vex víða
í S-Ameríku og hafa greinar og stilkar
yfirleitt verið notuð í te í hinum ýmsu
útgáfum. Þar er það drukkið bæði heitt
og kalt en þar sem það innheldur koffín
er það því örvandi. Yerba mate er afar
ríkt af öðrum innihaldsefnum en það
innheldur 196 efnasambönd og þar af
eru 144 þeirra einnig að finna í grænu
tei. Þarna á meðal eru öflugir andoxarar,
pólífenólar, vítamín og steinefni
þannig að það getur haft góð áhrif á
ónæmiskerfið, aukið einbeitingu og orku
ásamt því að geta stutt við þyngdartap
samhliða heilbrigðu mataræði.
n Nigella fræ: Hafa verið notuð
til heilsubótar allt frá tímum Faraóa
í Egyptalandi. Þau eru oft notuð til
matargerðar en þau innihalda yfir 100
efnasambönd sem geta nýst okkur til
heilsubótar og þar á meðal er t.d bætt
lifrarstarfsemi og lækkun á blóðsykri. Engu
að síður þarfnast víðtækari rannsókna til að
staðfesta það.
n Grænt te: Ýmsar verkanir hafa verið
tengdar grænu tei og má t.a.m. nefna jákvæð
áhrif á blóðfitu (lækkun þríglyseríða og
kólesteróls), hressandi og örvandi ásamt því
að hjálpa fólki í yfirþyngd að léttast. Betri
rannsókna er þó þörf til að staðfesta þetta.
n Mjólkurþistill: Er fyrst og fremst þekktur
fyrir að vera sérlega uppbyggjandi og nærandi
fyrir lifrina og getur því stuðlað að bættri
lifrarstarfsemi. Í gegnum tíðina hefur þetta
einnig verið notað gegn gallblöðruvandamálum,
til að stuðla að framleiðslu brjótsamjólkur og
vernda lifrina gegn snákabitum, alkohóli og
ýmsumöðrum eiturefnum.
n Kólín: Kólín er nauðsynlegt
næringarefni sem er oft flokkað með
B-vítamínunum vegna eiginleika þess og
áhrifa á líkamsstarfsemina. Það er lífrænt,
vatnsleysanlegt efnasamband sem við
framleiðum í litlu mæli og því þurfum
við einnig að fá það úr fæðunni. Kólín
er nauðsynlegt til að minnka kólesteról í
lifrinni og því getur skortur á kólíni valdið
fitu og kólesteról uppsöfnun í lifur.
Heilbrigður lífsstíll
Þegar líf okkar er ekki í jafnvægi, verður
mataræðið oft verra og allt hefur þetta
áhrif á heilsu okkar og líðan. Að sofa nóg,
borða hreina fæðu, stunda hreyfingu,
góður félagskapur og tómstundaiðja er
eitthvað sem er nauðsynlegt til að okkur
líði sem allra best. Ýmislegt getur valdið
því að við eigum erfitt með að ná jafnvægi
og má þá t.d. nefna streitu sem getur verið
afleiðing fjárhagsáhyggja, of mikillar vinnu,
vandamál í samskiptum ofl. Gott er að horfa
vel innávið og finna út hvað það er sem
við viljum breyta eða þarf að vinna í til að
okkur líði betur. Þetta getur verið afar erfitt
fyrir suma en alltaf er best að takast á við
rót vandans til að ná sem bestum árangri.
Þegar við erum komin á þann stað að vera í
nægilegu jafnvægi til að taka á mataræðinu
af krafti, þ.e.a.s. ef við ætlum að léttast, þá er
Fat Burner™ eitt af því sem getur hjálpað til.
Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og
heilsuhillur verslana
„Þegar við erum komin á þann stað að vera í
nægilegu jafnvægi til að taka á mataræðinu af
krafti, þ.e.a.s. ef við ætlum að léttast, þá er Fat
Burner™ eitt af því sem getur hjálpað til. Það
inniheldur kólín sem getur stuðlað að eðlilegu
niðurbroti á fitu og stutt við þyngdartap“
Hrönn Hjálmarsdóttir
Heilsumarkþjálfi