Morgunblaðið - 19.09.2019, Síða 32
innar eru íbúðir í nokkrum stærðar-
flokkum. Margar þeirra eru stúdíó-
íbúðir með einu stóru rými. Útsýni er
ýmist til austurs inn á nálæga baklóð
eða til vesturs að vesturbyggingunni.
Stórir gluggar eru í íbúðunum og eru
þeir gjarnan gólfsíðir. Það ásamt ná-
lægð við nágranna skapar upplifun
eins og í erlendri stórborg. Byggðin er
þétt.
Á þriðju hæðinni eru svo tveggja
hæða þakíbúðir. Þær hafa mikla loft-
hæð og palla á efri hæð sem eru vel
innan við helmingur af grunnfleti
neðri hæðar. Allar þakíbúðirnar hafa
þaksvalir/þakgarða þar sem eru teng-
ingar fyrir heitan pott. Þær hafa allt
að þrennar svalir. Ein hefur hring-
stiga.
Mikil lofthæð og hallandi þak
Skipulag vesturbyggingarinnar á
baklóð er sambærilegt. Á fyrstu hæð
er íbúð með gólfsíðum gluggum sem
opnar hana inn á portið. Á annarri
hæð er meðal annars tveggja her-
bergja íbúð með mikilli lofthæð og
hallandi þaki. Á þriðju og fjórðu hæð
eru svo þakíbúðir. Ein hefur stórar
svalir sem eru á stærð við litla íbúð.
Íbúðirnar í fyrri áfanganum á
Hverfisgötu 40-44 eru með hefð-
bundnara sniði. Hins vegar eru marg-
ar þeirra 35-40 fermetra stúdíóíbúðir
sem snúa að götu en framboð slíkra
íbúða í miðborginni hefur verið lítið.
Þá snúa margar stærri íbúðanna bæði
að Hverfisgötu og baklóðinni.
Á efstu hæð eru þrjár tveggja hæða
þakíbúðir með suðursvölum og hefur
ein líka þaksvalir til austurs.
Á jarðhæð eru verslunar- og veit-
2. áfangi
Brynjureits
á markað
Þingvangur setur í sölu óvenjulegar
miðborgaríbúðir Margar á 2 hæðum
Stúdíóíbúð Horft úr stofunni á íbúð á 2. hæð austurbyggingarinnar á baklóð. Gólfsíður gluggi er í eldhúsinu.
Á tveimur hæðum Ein þakíbúðanna í austurbyggingunni á baklóðinni.
Húsasund Byggingin hægra megin snýr að
Hverfisgötu. Vinstra megin má sjá glitta í
bakhúsin. Tröppurnar eru hluti af göngu-
götu milli Laugavegar og Hverfisgötu.
Þakíbúð í austurbyggingu Mikil lofthæð og stórir gluggar einkenna íbúðir.
Útsýnið úr stofunni Önnur hæðin í einni þakíbúðinni við Hverfisgötu.
upplifa þetta,“ segir Pálmar sem efast
um að fleiri svona fjölbýlishús verði
byggð í miðborginni í náinni framtíð.
Opið hús verður á reitnum um
helgina.
Pálmar sýndi Morgunblaðinu reit-
inn í fyrradag en þá notuðu málarar
tækifærið í sólinni og lögðu lokahönd
á útveggi. Krafan um uppbrot birtist í
fjölbreyttu útliti en húsin líta út fyrir
að vera byggð á mismunandi tíma.
Bakhúsin skiptast í vestur- og aust-
urbyggingu. Milli þeirra er ný göngu-
gata í miðborginni sem tengir Lauga-
veg og Hverfisgötu saman. Var henni
gefið nafnið Kasthúsastígur.
Að sögn Pálmars er gert ráð fyrir
þjónustu á jarðhæð í austurbygging-
unni. Rýmin séu með aðgang að stiga-
húsinu enda sé ætlunin að eigendur
starfseminnar geti búið í húsinu. Ein
íbúðin sé inn af verslunarrýminu.
Rýmin geti t.d. hentað gullsmiðum,
listafólki og öðrum með eigin starf-
semi. Slíkt fyrirkomulag sé til dæmis
vel þekkt frá evrópskum borgum.
Á jarðhæð vesturbyggingarinnar
er stórt rými sem má stúka niður og
skipta upp í minni rými. Þar er heimilt
að innrétta veitingahús.
Eins og að vera í gömlu þorpi
Það er athyglisvert að standa í
þessu rými en út um gluggana má sjá
nálægar byggingar og göngustíga
sem skapar þá upplifun að komið sé
inn á veitingahús í gömlu þorpi með
þröngum húsasundum.
„Það hentar vel að flytja veitinga-
hús frá Laugaveginum og yfir í slík
rými. Á móti mætti fjölga verslunum
við Laugaveginn,“ segir Pálmar.
Á efri hæðum austurbyggingar-
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Uppbyggingu síðari hluta Brynjureits
í miðborginni er að ljúka. Með því
koma 23 íbúðir á markaðinn. Jafn-
framt eru 49 íbúðir í fyrri hlutanum að
koma á markað en þær voru frátekn-
ar í sumar vegna áhuga fjárfesta.
Íbúðirnar í fyrri hlutanum voru
auglýstar í lok maí en voru nokkrum
dögum síðar teknar úr sölu. Verð
íbúðanna í báðum áföngum er 29,9-
79,9 milljónir króna en flestar íbúð-
anna kosta 30-40 milljónir. Þá eru
nokkur verslunarrými til sölu sem
henta þeim sem vilja búa nærri vinnu-
stað.
Nítján bílastæði í kjallara fylgja
íbúðum á efstu hæðum. Þó er mögu-
legt að kaupa bílastæði á 5 milljónir.
Pálmar Harðarson, framkvæmda-
stjóri verktakafyrirtækisins Þing-
vangs, sem byggir íbúðirnar, segir
það hafa orðið ljóst í þessari viku að
kaup fjárfestanna gengju ekki eftir.
Pálmar segir það einkenna síðari
hluta Brynjureits, sem er á baklóð
milli Laugavegar og Hverfisgötu, að
engar tvær íbúðir séu eins.
Þá séu átta íbúðir á tveimur hæð-
um, fjórar í hvoru bakhúsi, og með
a.m.k. einum hellulögðum þakgarði.
Einstakt kauptækifæri
„Þetta er einstakt tækifæri fyrir þá
sem vilja búa í miðbænum enda hafa
svona íbúðir ekki verið byggðar. Þess-
ar íbúðir bjóða upp á borgarupplifun
sem hefur ekki verið í boði. Fólk verð-
ur að koma og skoða íbúðirnar til að
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019