Morgunblaðið - 19.09.2019, Síða 34

Morgunblaðið - 19.09.2019, Síða 34
34 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið Stólar Erum á facebook Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Ami Grace Manning Elton Cato Highrock Sierra Kelsey STUTT ● Eftir nokkra lækkun í vikunni hækk- uðu bréf Icelandair Group um 3,21% í Kauphöll Íslands í 91 milljónar króna við- skiptum í gærdag. Bréfin standa nú í 6,76 krónum. Bréf leigufélagsins Heima- valla hækkuðu mest, eða um 4,27% í af- ar takmörkuðum viðskiptum upp á 50 þúsund krónur og standa bréfin í 1,22 kr. Nokkuð grænt var um að litast í Kaup- höllinni í gær, en alls hækkuðu bréf 12 fé- laga. Bréf Marels hækkuðu um 1,57% í 348 milljóna króna viðskiptum sem voru þau umfangsmestu í gær og stendur gengi félagsins í 582 kr. Mest lækkuðu bréf TM eða um 0,94% í 63 milljóna króna viðskiptum en gengi félagsins nemur 31,5 kr. Icelandair hækkaði um 3,21% í kauphöllinni Bioeffect varð í ágústmánuði mest selda snyrtivörumerki um borð í All Nippon Airways (ANA) og Japan Airlines (JAL), tveimur af stærstu flugfélögum Japans. Íslensku húð- vörurnar hafa selst fyrir ríflega 180 milljónir króna í flugvélunum. Vör- urnar fóru fyrst í sölu hjá ANA, sem er sterkara í alþjóðaflugi, fyrir um einu og hálfu ári og hjá JAL, sem er ríkjandi í innanlandsflugi, í mars. „Varan varð strax ein af söluhæstu snyrtivörunum um borð og er nú orð- in söluhæsta snyrtivaran og komin með hinn eftirsótta „bestseller“ gull- stimpil. Þarna erum við að keppa við japanska snyrtivörurisa eins og Shi- seido og SK-II svo við erum ótrúlega stolt af þessum árangri,“ segir Berg- lind Johansen, framkvæmdastjóri sölusviðs hjá Bioeffect. Vörumerkið er í eigu ORF Líf- tækni sem sérhæfir sig á sviði plöntulíftækni. Fyrirtækið var stofn- að árið 2001 og framleiðir sérvirk prótín sem notuð eru sem innihalds- efni í húðvörur, seld til læknisfræði- legra rannsókna og nýtt í önnur þró- unarverkefni fyrirtækisins. Þá hefur fyrirtækið þróað tækni til að fram- leiða hin umræddu prótín í byggi og hefur aðferðin verið í þróun til margra ára. Sala ORFs Líftækni fór á þessu ári í fyrsta sinn yfir milljarð króna. Auknar vinsældir Bolli Thoroddsen, forstjóri Tak- anawa Trading sem er dreifingar- aðili Bioeffect í Japan, segir vinsæld- ir vörunnar mikil tíðindi fyrir íslenskan útflutning og nýsköpun. „Bioeffect er einnig mest selda varan hjá Japan Airlines, næststærsta flugfélagi Japans, og hjá vinsælustu sérvöruverslun Japans, Estnation. Mikill meirihluti kaupenda er Japan- ir, sem einnig má telja til tíðinda þar sem þeir eru þekktir fyrir að vera einhverjir kröfuhörðustu húðvöru kaupendur heims.“ Hann telur húðvörurnar hafa vak- ið mikinn áhuga og vísar meðal ann- ars til þess að Vogue í Japan hafi birt umfjöllun um húðvörurnar í þessum mánuði og þekkt japönsk tónlistar- kona mun heimsækja gróðurhús Bio- effect á Íslandi í næstu viku. Ljósmynd/Bioeffect Snyrtivörur Húðvörurnar sem eru byggðar á íslenskri plöntulíftækni hafa fengið góðar móttökur um borð í vélum stærstu flugfélaga Japans. Snyrtivörumerki söluhæst í flugi  Hafa selt fyrir 180 milljónir um borð Ársæls nam salan á Nocco minna en helmingi af rekstrartekjum fyrir- tækisins í fyrra en fyrirtækið hóf sölu á drykknum árið 2015. Seldu ís fyrir 80 milljónir Til marks um hinn gríðarlega vöxt á fyrirtækinu nam veltan 440 millj- ónum árið 2016 og 340 milljónum ár- ið 2015. „Við vorum bara lítil heild- sala en höfum verið samkvæm sjálfum okkur í því að reyna að bjóða upp á hollari kost í vörum almennt,“ segir Ársæll. Sala fyrirtækins hefur vaxið á ýmsum sviðum að sögn Ársæls. Sala á Popcorners-heilsusnakkinu hefur aukist mjög og þá seldi fyrirtækið ís, m.a. frá Barbells, fyrir um 80 millj- ónir króna í fyrra. Þá hafa vörurnar frá Fazer, sem framleiðir mjólk og jógúrt úr höfrum, verið að sækja í sig veðrið og í raun „slegið í gegn“ að sögn Ársæls. Spurður um miklar vinsældir Nocco segir Ársæll að neysluvenjur fólks hafi breyst. „Það er fullt af fólki í dag sem hefur minnkað kaffi- drykkju eða mun jafnvel aldrei fara á þann vagn. Þetta virðist einhvern veginn vera tilhneigingin í dag. Þetta eru orðnir ávaxtakoffíndrykkir sem fólk neytir í stað þess að vera með kaffi og mjólk,“ segir Ársæll. Hörð samkeppni er á orku- drykkjamarkaðnum en Ársæll telur þó að Nocco muni halda velli. „En ég reikna með því að við finnum eitt- hvað fyrir þessari auknu sam- keppni.“ Ævintýralegur vöxtur hjá umboðsaðila Nocco á Íslandi  Rekstrartekjur Core ehf. námu 1,8 milljörðum króna og uxu um 57% á milli ára Heildsala Core ehf. selur Nocco en einnig fleiri vörur á borð við prótín- stykki sem og jógúrt og aðrar mjólkurafurðir framleiddar úr höfrum. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Core ehf. » Velta fyrirtækisins hefur vaxið gríðarlega undanfarin ár og nam 1,8 milljörðum í fyrra, 1,14 milljörðum árið 2017, 440 milljónum árið 2016 og 340 milljónum 2015. » Hagnaður ársins 2018 nam 193 milljónum króna og jókst um 30%. BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Heildsalan Core ehf., sem meðal annars flytur inn orkudrykki frá Nocco, ávaxtadrykki frá Froosh, prótínstykki frá Barbells og hafra- vörur frá Yosa, heldur áfram ævin- týralegum vexti sínum en veltan jókst um 57% á árinu 2018 frá árinu 2017. Rekstrartekjur félagsins námu 1,8 milljörðum króna miðað við 1,14 milljarða árið 2017. Hagnaðurinn nam 193 milljónum og jókst um 30%. Heildsalan er í eigu hjónanna Kamillu Sveinsdóttur og Ársæls Þórs Bjarnasonar sem hafa rekið Core ehf. frá árinu 1998. Að sögn Ár- sæls endaði fyrirtækið árið 2017 af miklum krafti og því kom vöxturinn í fyrra þeim hjónum ekki mikið á óvart. „Við erum afar ánægð með þetta. Það er ekki hægt að segja annað,“ segir Ársæll í samtali við Morgun- blaðið en um metveltu er að ræða hjá fyrirtækinu sem hefur nú einnig í fyrsta sinn verið með tekjur yfir milljarði króna tvö ár í röð. Að sögn Enn eru tals- verðar líkur á stöðnun eða sam- drætti framan af árinu 2020 í ís- lensku atvinnu- lífi, samkvæmt Leiðandi hagvísi áhættu- og fjár- festingaráðgjaf- arfyrirtækisins Analytica. Hag- vísirinn er vísitala sem gefur vís- bendingu um efnahagsumsvif að sex mánuðum liðnum. Í tilkynningu félagsins kemur fram að hagvísirinn hafi reynst nær óbreyttur í ágúst frá í júlí. Þó sé lækkun hagvísisins sl. ár enn hin mesta síðan árið 2008. „Vísbend- ingar eru um að hægja sé á lækkun hagvísisins en of snemmt að segja um hvort botni sé náð. Því eru enn talsverðar líkur á stöðnun eða sam- drætti framan af árinu 2020.“ Enn líkur á sam- drætti Vinna Botni mögu- lega ekki náð.  Hagvísir Analytica horfir sex mánuði fram í tímann Fasteignaverð á höfuðborgarsvæð- inu hækkaði um 0,6% milli júlí og ágúst sl. Verð á fjölbýli hækkaði um 0,5% og verð á sérbýli hækkaði um 0,7%. Þetta kemur fram í Hagsjá hagfræðideildar Lands- bankans. Horft yfir 12 mánaða tímabil hef- ur verð á fjölbýli hækkað um 3,6% og verð á sérbýli um 3,1%. Vegin árshækkun húsnæðisverðs nemur nú 3,6%, sem er 0,6 prósentustiga hækkun frá fyrri mánuði. Hækkun fast- eignaverðs 0,6% 19. september 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 123.67 124.27 123.97 Sterlingspund 153.46 154.2 153.83 Kanadadalur 93.25 93.79 93.52 Dönsk króna 18.24 18.346 18.293 Norsk króna 13.776 13.858 13.817 Sænsk króna 12.73 12.804 12.767 Svissn. franki 124.21 124.91 124.56 Japanskt jen 1.1427 1.1493 1.146 SDR 169.17 170.17 169.67 Evra 136.22 136.98 136.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.0213 Hrávöruverð Gull 1499.3 ($/únsa) Ál 1746.0 ($/tonn) LME Hráolía 68.15 ($/fatið) Brent

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.