Morgunblaðið - 19.09.2019, Side 35

Morgunblaðið - 19.09.2019, Side 35
FRÉTTIR 35Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019 Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 fös: 12-16 HAUST 2019 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Útlit er fyrir langvinnar stjórnar- myndunarviðræður og pólitíska óvissu í Ísrael eftir að hvorugur stóru flokkanna, Likud og Bláhvíta bandalagið, fékk nógu mikið fylgi til að geta myndað meirihlutastjórn með flokkunum sem þeir vilja vinna með. Úrslitin eru álitin áfall fyrir Benjamin Netanyahu, forsætisráð- herra og leiðtoga Likud, sem hafði vonast til þess að geta myndað nýja stjórn með strangtrúarflokkum og þjóðernisflokkum gyðinga. Samkvæmt síðustu tölum í gær fékk Bláhvíta bandalagið 33 sæti af 120 og Likud 32. Arabalistinn, sem var stofnaður 1996, varð þriðji stærsti flokkurinn og fékk 12 sæti. Þjóðernisflokkurinn Israel Beiteinu, undir forystu Avigdors Liebermans, fyrrverandi varnarmálaráðherra, fékk átta sæti og hann gæti ráðið úr- slitum um hvort hægt verður að mynda meirihlutastjórn. Lieberman áréttaði í gær að hann myndi aðeins styðja ríkisstjórn með Likud og Bláhvíta bandalaginu, sem er undir forystu Benny Gantz, helsta keppinautar Netanyahus. Bláhvíta bandalagið hefur hins vegar sagt að ekki komi til greina að mynda ríkis- stjórn með Netanyahu, sem er þaul- sætnasti forsætisráðherrann í sögu Ísraels, hefur gegnt embættinu í alls 13 ár. Netanyahu hefur ekki sýnt á sér fararsnið og aðrir forystumenn í Likud hafa sagt að hann verði áfram leiðtogi flokksins. Ríkissaksóknari Ísraels hyggst ákæra forsætisráð- herrann fyrir mútuþægni, svik og trúnaðarbrot í embættinu en Net- anyahu vonast til þess að nýja þingið veiti honum friðhelgi frá ákæru. Klofningur á hægrivængnum Gert er ráð fyrir því að Reuven Rivlin, forseti Ísraels, kalli leiðtoga flokkanna á sinn fund til að spyrja þá hvern þeir vilji í embætti forsætis- ráðherra. Sá sem nýtur stuðnings flestra þingmanna fær síðan umboð til að mynda ríkisstjórn innan 28 daga og hugsanlegt er að fresturinn verði framlengdur um tvær vikur. Eftir þingkosningarnar í apríl sögðust 65 þingmenn vilja að Net- anyahu yrði forsætisráðherra en honum tókst þó ekki að mynda meirihlutastjórn og hann boðaði því til nýrra kosninga. Ástæðan var ágreiningur milli flokks Liebermans og flokka strangtrúaðra gyðinga. Avigdor Lieberman vill draga úr pólitískum áhrifum strangtrúar- flokkanna og neitaði að styðja stjórn Netanyahus nema hún samþykkti að afnema undanþágu strangtrúaðra námsmanna frá herskyldu. Stjórnmálaskýrandi breska ríkis- útvarpsins í Jerúsalem segir að Net- anyahu sé nú í veikari stöðu en eftir þingkosningarnar í apríl. Nær ógerningur sé að spá um niðurstöðu komandi stjórnarmyndunarvið- ræðna. Hann telur ólíklegt að Likud og Bláhvíta bandalagið myndi ríkis- stjórn nema Netanyahu fáist til að víkja. Ljóst sé að forsætisráð- herrann geti ekki myndað nýja stjórn með strangtrúarflokkunum „nema Lieberman snúist hugur fyrir kraftaverk og samþykki stjórn hægri- og strangtrúarflokka – nokk- uð sem kjósendum skildist að myndi aldrei gerast“. Þriðji möguleikinn er að gengið verði til þingkosninga í þriðja skipti á árinu, en enginn flokk- anna er þess fýsandi. Tveir strangtrúarflokkar gyðinga fengu samtals 17 sæti og Yamina, bandalag þjóðernis- og hægriflokka, sjö sæti. Með Likud fengu flokkarnir alls 56 sæti og þeir geta því ekki myndað meirihlutastjórn án flokks Liebermans. Gantz í erfiðri stöðu Leiðtogi Bláhvíta bandalagsins er einnig í erfiðri stöðu. Til að mynda stjórn án Likud þyrfti Gantz stuðning tveggja minni vinstriflokka, sem fengu samtals 11 sæti, og 12 þing- manna Arabalistans. Flokkar araba hafa hingað til ekki viljað styðja neinn forsætisráðherra en leiðtogar Araba- listans hafa léð máls á því að styðja stjórn Ganz til að koma Netanyahu og strangtrúarflokkum gyðinga frá völd- um. Netanyahu hét því fyrir kosning- arnar að innlima landtökubyggðir gyðinga á Vesturbakkanum í Ísrael. Palestínumenn, sem vilja stofna sjálfstætt ríki á Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu, hafa mótmælt þess- um áformum og sagt að verði af inn- limuninni sé enginn möguleiki á að ná friðarsamkomulagi sem byggist á tveggja ríkja lausninni. Gantz hefur ekki boðað innlimun landtökubyggða á hernumdu svæðunum en afstaða hans til stofnunar Palestínuríkis hef- ur verið óljós. Eins og Netanyahu hefur hann sagt að ekki komi til greina að Austur-Jerúsalem verði hluti af Palestínuríki. Palestínumenn vilja hins vegar að borgarhlutinn verði höfuðborg ríkisins. Úrslitin áfall fyrir Netanyahu Lýðræðis- bandalagið, vinstriflokkur Bláhvíta banda- lagið, mið-hægrifl. Sameinaði Tórafl., strangtrúarfl. Yamina, bandalag trúar-, þjóðernis- og hægriflokka Shas, strangtrúarfl. Verkamannafl., vinstri-miðfl. Likud, hægrifl. Israel Beiteinu, þjóðernisfl. Þingið (Knesset) Arabalistinn, bandalag arabaflokka Þingkosningar í Ísrael Skipting sæta samkvæmt útreikningum fjölmiðla í Ísrael 12 5 6 33 8 32 sæti 120 9 8 7 AFP Netanyahu Forsætisráðherrann með eiginkonu sinni, Söru (við hlið hans). AFP Benny Gantz Leiðtogi Bláhvíta bandalagsins með konu sinni, Revital.  Forsætisráðherra Ísraels talinn í veikari stöðu en eftir þingkosningarnar fyrir fimm mánuðum Aðdáendur Bítlanna geta nú farið í garð í Liverpool sem varð inn- blástur að laginu „Strawberry Fields Forever“ sem John Lennon samdi. Lennon var vanur að klifra yfir girðingu garðsins í æsku til að leika sér við vini sína sem dvöldu á hæli fyrir mun- aðarlaus börn. Hælið nefndist Strawberry Field og Hjálpræð- isherinn rak það til ársins 2005 en því hefur nú verið breytt í miðstöð fyrir ungt fólk með námserfiðleika til að hjálpa því að fá atvinnu. Ár hvert hafa um 60.000 Bítlaaðdáendur farið að hliði garðsins til að taka myndir af sér við það en þeir geta nú farið inn í garðinn því að hann hefur verið opnaður almenningi til frambúðar. „Þetta er einstakt tækifæri til að skoða garðinn og njóta þess sem margir hafa sagt um hann, að þar finni menn frið og ró,“ sagði Allister Versfeld, major Hjálpræðishersins. Strawberry Field opinn til frambúðar AFP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.