Morgunblaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 40
40 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019 SMÁRALIND icewear.is GOLA | Barna regnbuxur Kr. 4.990.-St. 98-152 St. 86-110 Barna regnjakki Kr. 5.990.- GARRI Pollajakki Kr. 4.990.-| Pollabuxur Kr. 2.750.- Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Umræður um fjár- lagafrumvarp næsta árs eru komnar á flug eins og ævinlega á þessum tíma. Þar sýnist sitt hverjum og mitt álit það að eðlilegt sé. Sem aðili að nokkrum slíkum man ég hvað mér þóttu margar fullyrð- ingarnar út úr kort- inu og ýmsar settar fram gegn betri vitund að manni fannst. Svo er enn, en aðaleinkennið þó jafn- an það að þar var togast á um upphæðir og þörf, togaði hver í sinn skækil, án þess að sjá út fyr- ir heildarþörf eða hagsmuni. Mér finnst við snöggan yfirlest- ur á helztu tölum að við margt verði vel unað, margt til veru- legra bóta og víða sótt rösklega fram til velferðarauka. Mér þykir þó enn að ekki sé nógsamlega komið til móts við þá tekjulægstu, fólkið sem á enga eða litla mögu- leika á að efla sinn hag, öryrkjana sem glíma við svo margvíslegar hamlanir á svo margan hátt, tekjujöfnunin hvergi nærri nóg, þó margt sé vissulega vel gert í þeim efnum. En þar æpir þörfin svo víða ótrúlega hátt og sker- andi. Eins finnst mér að ekki hafi verið nýttar tekjulindir þar sem þær eru hvað drýgstar, þar sem féð er fyrir eins og sagt er. Í hvert sinn sem þetta ber á góma flýgur mér í hug viðkvæði konu einnar þegar um það var talað hversu komið væri nærri þolmörkum þess sem þetta for- ríka fólk gæti greitt til samfélags- legra verkefna. „Æ, það getur nú kostað sitt að passa upp á pen- ingana sína þar sem nóg er fyrir af þeim og öfundin er ills vaki eins og segir í helgri bók“, eitt- hvað í þá veru var hennar innlegg í þessa umræðu og mér finnst oft að bergmál þessarar hagspeki ómi á ótrúlegustu stöðum, jafnvel á hinu háa Alþingi. Alla vega þyk- ir mér sem mörg sé sú mat- arholan sem nýta mætti til handa hinum verr settu en sem lítt er af tekið. Gróðatölurnar hjá hinum ýmsu fyrir- tækjum eru samt svo himinhátt umfram all- ar þarfir hins eðlilega að það jaðrar við þjóð- hagslegan glæp að láta þennan gróða í friði í stað þess að ávaxta hann til alls hins góða þar sem fjár er vant, enda held ég að velflestar gróðatöl- urnar séu þess eðlis að ekki komi að gagni neinu fyrir þjóðfélagsheildina nema síður væri, aðeins sem sagt fyrir þá „sem þurfa nú að passa upp á pen- ingana sína“, þó ekki séu þeir lengur undir koddanum. En einhverjir fleiri eru komnir í kodda stað til varðveizlu pening- anna og þau öfl virðast eiga sem fyrr býsna greiðan aðgang að Al- þingi svo þess sé nú gætt vel að þessir aumu aurar fari ekki á óverðskuldaða eyðslustaði eins og almannatryggingar eða önnur fé- lagsleg úrræði sem „allt aflafé ætla að gleypa“ eins og einn góð- vinur minn orðaði það af einlægni þess sem trúir því að einka- framtakið sjái til réttlátrar skipt- ingar þjóðartekna. Í einlægni skora ég því á Al- þingi að ná sem mestu af þeim fjármunum til baka sem ekki eiga að safnast á fáar hendur eða þeir faldir með ýmsum hætti með alls kyns kúnstum og útdeila þeim sem réttlátast við lokaafgreiðslu fjárlaga. Þá yrði þjóðarhagur bezt tryggður og jafnréttið yrði meira, ekki bara í orði heldur í raun. Þau eftirmæli þarf ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur svo sann- arlega að eignast, alþjóð allri til farsældar. „Það kostar sitt að passa upp á peningana sína“ Eftir Helga Seljan Helgi Seljan » Þykir mér sem mörg sé sú matarholan sem nýta mætti til handa hinum verr settu en sem lítt er af tekið. Höfundur er fyrrverandi alþingismaður. Stundum líður mér sem ég væri einn af hundum Pavlovs. Það gerist nánar tiltekið þegar ég heyri inn- gangsstef fréttatíma RÚV. Pavlov hafði skilyrt hunda sína til að sýna líkamleg við- brögð við bjölluhljómi og RÚV hefur gert hið sama við mig. Í stað þess þó að slefa af tilhlökkun vegna þess að matur sé í vændum þá hellist yfir mig tilfinning ergelsis og óþols. Fyrst man ég eftir þessari tilfinn- ingu þegar fárið gegn Guðmundi Árna Stefánssyni stóð yfir 1994 og á seinni árum hefur mér fundist RÚV taka eina og eina manneskju fyrir til að leggja í einelti. Nefna má Ólaf Magnússon, Hönnu Birnu, Sigmund Davíð, Vigdísi Hauksdóttur, Braga Guðbrandsson og Sigríði Andersen. Dag eftir dag og viku eftir viku ráð- ast sjálfskipaðir réttlætisriddarar RÚV á fórnarlambið með það að markmiði, að því er virðist, að koma viðkomandi úr embætti. Altént ber ekki mikið á vilja til að leita sann- leikans er slíkar nornaveiðar standa yfir. Sem dæmi má taka landsdóms- málið er RÚV kallaði ítrekað eftir skoðun Bjargar Thorarensen sem engan veginn gat talist hlutlaus í umfjöllun um nefndina sem eigin- maður hennar veitti forstöðu. Samkvæmt lögum um RÚV ber mönnum þar á bæ að gæta hlut- leysis en því er hreint ekki alltaf fyrir að fara og alls ekki í umfjöllun um deilur Ísraelsmanna við ná- granna sína. RÚV virðist hreinlega fylgja þeirri reglu að liggja á öllum upplýsingum sem gætu aukið samúð með Ísraelsmönnum og stilla þeim stöðugt upp sem árásaraðilanum. Vitnað er í Al-Jazeera, Erdogan, Islamic Jihad eða Abbas en nær aldrei í Ísraelsmenn sjálfa. Í fyrrasumar hélt fréttastofa RÚV því staðfastlega fram að mót- mæli Gazabúa vegna þess að þeir fengju ekki að fara „heim“ til þorpa sem ekki hafa verið til í 70 ár væru friðsamleg. Myndbönd af fólki sem brenndi hjólbarða svo aðrir gætu komist óséðir yfir landamærin og af brunnum ökrum ísr- aelskra bænda mátti líta á erlendum frétta- stöðvum. Það að 50 Hamasliðar væru drepnir á einum degi, 14.5., við að reyna að komast yfir landamær- in vopnaðir sveðjum, hnífum og hand- sprengjum breytti engu um þá skoðun, jafnvel þótt sú frétt kæmi m.a. á CNN og NBC. Stundum held ég að RÚVarar telji að Ísland sé eitt af ríkjum BNA því fréttir þeirra miðast við sjón- arhorn Bandaríkjamanna. Sorglega lítið er af fréttum frá Norðurlönd- unum sem ættu þó að vera á áhuga- sviði okkar. Á tímabili skreyttu nei- kvæðar fréttir af Trump forseta hvern einasta fréttatíma. Hlutleys- isskyldan var enn og aftur brotin. Eitt af því sem fer í taugarnar á mér er hvernig RÚV ræðir ekki málin til fulls, heldur gárar bara yfirborðið í þykjustuumræðum í málfundastíl. Tökum kjötmálið sem dæmi. Þrátt fyrir að horfa ítrekað á Ólaf Stephensen og Karl Krist- insson takast á er ég enn engu nær um hvað breyttist frá því að við töldum okkur hafa undanþágu vegna sýklavarna til að íslenska rík- ið varð skaðabótaskylt vegna þess að það vildi halda þeim vörnum uppi. Hvernig gerðist það eiginlega? Hið sama var uppi með orku- pakkamálið. Í umræðuþáttunum voru yfirleitt þrír fylgjandi sam- þykkt en einn á móti. Spurningunni um af hverju var þörf á að sam- þykkja þessar reglugerðir var aldr- ei svarað svo ég heyrði, en hæðst að þeim sem vildu ekki samþykkja Orkupakka 3 og þeir uppnefndir. Talað er um öryggishlutverk RÚV, að mikilvægt sé að almenn- ingur geti gengið að traustum upp- lýsingum vísum sé vá af einhverju tagi fyrir dyrum. Miðað við sofanda- hátt stofnunarinnar er þó álitamál hvort hún kæmi þar að nokkru gagni. Ekki hefur t.d. RÚV varað okkur við uppgangi íslamista í ná- grannalöndunum. Í Svíþjóð segir SAPO að þeir skipti þúsundum og að heimkomnir ISIS-liðar safni ný- liðum í kjallaramoskum Malmö og í Danmörku fá jíhadistasamtökin Hizb ut Tahrir, sem stefna op- inskátt að því að leggja heiminn undir íslam, að athafna sig að vild. Maður að nafni Rasmus Paludan komst í fréttir RÚV fyrir að mót- mæla þeim – og kallaði fréttamað- urinn hann fasista án nokkurs rök- stuðnings. Ekki hefur RÚV heldur uppfrætt okkur um að ESB hefur hægt og hljótt komist undir stjórn heims- valdasinnaðrar klíku er stefnir að því að lög ESB verði æðri lögum þjóðríkjanna á öllum sviðum og að neitunarvald einstakra ríkja verði afnumið. Undanfarið hefur RÚV hins veg- ar frætt okkur um yfirvofandi ham- farahlýnun. Þær fullyrðingar eiga ekki nokkra stoð í raunveruleik- anum og eru hvorki byggðar á upp- lýsingum frá NASA né loftslagsráði SÞ. Hitastigsmælingar frá Stór- höfða og Stykkishólmi benda ekki heldur til verulegra breytinga. Ég mótmæli því að vera skyldug til að greiða nefskatt til RÚV – stofnunar sem reynir ekki að gæta hlutleysis í fréttaflutningi. Mér finnst hörmulegt að þurfa að styrkja stofnun sem elur einelt- ismenn við brjóst sér, stofnun sem kóar með Hamas sem hefur það á stefnuskrá sinni að semja aldrei um frið við Ísraelsmenn og fremja á þeim þjóðarmorð. Ég vildi gjarnan hafa þann mögu- leika að láta nefskatt minn renna til einhvers annars fjölmiðils – slíkt myndi líka veita RÚV aðhald og vera mönnum þar á bæ hvatning til að fara eftir eigin lögum um póli- tískt hlutleysi og sanngirni í frétta- umfjöllun. Um RÚV og hunda Pavlovs Eftir Ingibjörgu Gísladóttur »Ég mótmæli því að vera skyldug til að greiða nefskatt til RÚV – stofnunar sem leggur fólk í einelti og stundar hreint ekki hlutlausa fréttamennsku. Ingibjörg Gísladóttir Höfundur starfar við umönnun aldraðra. Atvinna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.