Morgunblaðið - 19.09.2019, Page 43

Morgunblaðið - 19.09.2019, Page 43
MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019 saman og þar sýndi hún enn og aftur hvað hún var vel gefin, skipulögð og frábær í samskipt- um. Og inni á kvennaklósetti gát- um við talað um allt. Eftir fyrstu umferð af krabba- meini ákvað hún að dusta rykið af gömlum draumum. Hún vann minna, lærði ritlist og þýðingar og skrifaði sögur, bara fyrir sjálfa sig. Í upphafi 2011 skellti hún sér svo hálft ár til Argentínu til að læra spænsku, bjó fyrir of- an tangóskóla og naut litríkrar tilverunnar í Buenos Aires. Öll þessi ár spornaði Steinunn enn við þrýstingi samfélagsins um að hún ætti nú bara að drífa sig að finna bara einhvern mann til að eignast nú börn. Steinunn kom frá kærleiksríku heimili og vissi að hún mátti ætlast til meira en hún hafði fundið. Og svo þegar ástin kom, þá var hún algerlega biðarinnar virði. Og svo sterk að Steinunn flutti „alla leið“ í Hafn- arfjörðinn. Steinunn og Ketill hreiðruðu um sig í gamla húsinu hans og Kára og gerðu þar hlý- legt og bjart heimili með tveimur fjörugum börnum sem hún var svo endalaust stolt af. Sterku, skemmtilegu stelpunni sinni og káta, yndislega stráknum. Kæru Ketill, Katla, Ari, Kári, Rannveig, Halldór, Þórhallur, Eyþór og Kata, hugurinn er hjá ykkur öllum. Ég er óendanlega þakklát fyrir Steinunni. Þessa gáfuðu, fyndnu, hugrökku, fal- legu, duglegu, kreatívu og sjálf- stæðu konu sem kunni svo vel að lifa, læra, skapa og elska. Dagbjört Jónsdóttir. Við Steinunn kynntumst sex- tán ára gamlar í útilegu verðandi skiptinema og þegar við hittumst aftur ári síðar var eins og við hefðum alltaf verið bestu vinkon- ur. Síðan höfum við sötrað saman þúsundir kaffibolla, spjallað um allt milli himins og jarðar, hlegið saman og grátið. Lífið er ekki alltaf auðvelt, en það er ólýsan- lega miklu betra þegar maður á góðan trúnaðarvin. Steinunn var sögukona með glettinn húmor sem hjálpaði henni í gegnum ýmsar raunir. Þegar hún greindist með krabba- mein í fyrsta skiptið bað hún mig um hjálp við að raka af sér hárið og í stað gráts varð sú stund full af hlátri og prakkaraskap og loks aðdáun á sérlega fallegu höfuð- lagi Steinunnar. Hún hafði smitandi bros og ótrúlega fallega og heilbrigða sýn á lífið: Víðsýn og með sterka rétt- lætiskennd, hreinskilin, næm, hjálpfús og góð. Hún var líka ein- staklega skynsöm, eiginleiki sem hún nýtti til að láta drauma sína rætast í stað þess að aftra þeim. Hún skellti sér í tvígang í skipti- nám, starfaði í Bandaríkjunum og Bretlandi auk þess að flytja um hríð til Suður-Ameríku til að teyga menningarstrauma og æfa sig í spænsku. Hún var stúlkan sem hellti sér í skapandi skrif á fertugsaldri og, í miðju krabba- meinsferli, fór að læra á píanó. Steinunn var tungumálakona og elskaði bókmenntir auk þess að njóta þess sjálf að skrifa fal- legan texta. Hún sagði sérlega skemmtilega frá og var forvitin um lífið og tilveruna. Þegar ég bauð henni á framúrstefnulega listviðburði kom hún gjarnan með beinskeyttar spurningar eft- ir á sem fengu mig til að líta ferskum augum á hlutina – og stundum, með hreinskilni sinni og kankvíst bros á vör, benti hún á að keisarinn var bara alls ekk- ert í neinum fötum! Þegar Steinunn kynntist Katli var strax ljóst að þau áttu eitt- hvað alveg sérstakt saman og voru svo fallega ástfangin. Hún flutti inn til Ketils og Kára og fyrr en varði vorum við Steinunn aftur samstiga í lífinu því við eignuðumst báðar stelpur og svo síðar hvor sinn drenginn. Það var svo notalegt að hittast með krakkana, leyfa þeim að dunda sér á meðan við sátum í sófanum og röbbuðum, enda voru heim- sóknirnar sjaldan undir þremur klukkutímum! Steinunn elskaði fjölskylduna sína afar heitt og var afskaplega góð mamma. Það er þyngra en tárum taki að hún fái ekki að fylgja litlu krílunum sínum í gegnum lífið. Þegar við hittumst síðast, á líknardeild Landspítalans, böl- sótaðist ég yfir grimmd krabba- meinsins. Hún faðmaði mig þá blíðlega og sagði: „Þetta er bara sorgin. Þetta er sorgarferlið.“ Þetta var svo dæmigert fyrir Steinunni, svo næm og greind og umhugað um ástvini sína, leið- beinandi okkur í gegnum sorg- arferlið. Hún trúði því að hún myndi ekki fara þótt líkaminn gæfist upp og stefndi að því að vera áfram nálægt ástvinum sínum, fæðast svo jafnvel aftur. Ég efast ekki um að það sé rétt hjá henni, því ekki slokknar svo björt og fal- leg sál sem hennar. Elsku Ketill, Kári, Katla Ásta og Ari Gunnar – elsku Rannveig, Halldór, Eyþór, Þórhallur og Kata. Mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Bryndís Nielsen. Það er með söknuði sem við kveðjum vinkonu okkar Stein- unni Maríu Halldórsdóttur. Það sama á við um fjölskyldu okkar og marga gamla vini Ástu dóttur okkar. Steinunn og Ásta, sem lést af slysförum fyrir fimm ár- um, voru skólasystur úr Mennta- skólanum í Hamrahlíð. Þær kynntust þó ekki fyrr en alllöngu síðar gegnum sameiginlega vini. Kunningsskapur varð að vináttu. Saman og með fleiri vinum héldu þær í ævintýraferðir um íslensk fjöll og dali. Myndir frá fjallgöng- um og heimsóknir til vina og ætt- ingja út um landið bera skemmt- uninni vitni. Mikið var hlegið og ekki var það óhentugt fyrir lífs- gleðina að deila íbúð í 101 Reykjavík um tíma. Steinunn var góðum gáfum gædd og hafði jákvæða afstöðu til lífsins. Með vináttu sinni efldi hún umhverfi sitt með bjartsýni og gleði. Ekki spillti að hún lýsti af hamingju með samband þeirra Ketils og yndislegu börnin þeirra, Kötlu Ástu og Ara Gunn- ar, og stjúpsoninn Kára. Stóra stelpan hennar hún Katla Ásta og drengirnir gerðu hana svo stolta. Steinunn sýndi einstakt æðru- leysi þegar hún talaði um veik- indi sín og sagði til dæmis alltaf að hún þyldi svona meðferð mjög vel, fengi til dæmis eiginlega eng- ar svona dæmigerðar aukaverk- anir. Steinunnar verður sárt sakn- að. Við sendum Katli og börnun- um, foreldrum og bræðrum Steinunnar okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi allt gott styðja þau. Inga Þórsdóttir og Stefán Einarsson. Enginn er tilbúinn fyrir þá stund sem nú er komin, að kveðja þig kæra vinkona. Þú varst svo margt sem erfitt er að koma í orð; hæfileikarík á ótal sviðum með mörg hlutverk, móðir, eig- inkona, dóttir svo fátt eitt sé nefnt. Það er þungbær staðreynd að skyggt hefur fyrir sólu. Síðastliðið vor vorum við sam- an í Suðurbæjarlauginni og þú kvartaðir yfir að geta ekki alveg klárað að synda 1.000 metrana fyrir verkjum. Þetta æðruleysi þitt og styrkur í veikindunum lýsti þér vel ásamt staðfasta dugnaðinum sem fylgdi þér allt- af. Við kynntumst sem börn, for- eldrar okkar voru vinir og spiluðu mikið bridds saman. Á meðan dunduðum við okkur við ýmislegt og horfðum á Blackad- der með öðru auganu ásamt bræðrum okkar. Þegar bílprófið var komið fórum við á tilviljunar- kennt flakk um höfuðborgina á gamla Saabinum hans pabba og skemmtum okkur meðan foreldr- arnir voru uppteknir við að segja sjö tígla eða pass. Upphafið á okkar vinskap hófst síðar þegar þú bjóst á Skólavörðustígnum og stundaðir nám í þýsku við HÍ. Ég átti oft leið hjá og við nutum þess að drekka kaffi saman. Vináttan bjó yfir trausti, kærleik og góðum húmor. Þú varst málglaðari en ég og spurðir spurninga því þú vildir vega og meta málefni, með skarpan huga sem hafði einnig gaman af að skilgreina. Oft gaf ég þér ráð sem þú sóttist eftir og dáðist að þér í hljóði hve hnyttin þú gast verið í tilsvörum. Ég meiri tilfinningavera og þú með praktískari nálgun sem myndaði gott jafnvægi. Síðari ár hittumst við í göngu- ferðum í Hafnarfirði í grennd við fallega heimilið ykkar Ketils og barnanna. Stunduðum leikhúsin og áttum gæðastundir yfir góð- um mat á veitingastöðum. Sorgin er óháð tíma og rúmi, hún læðist að manni þegar síst er von á, fyllir brjóstið af sárum til- finningum og reiði sem erfitt er að meðtaka og skilja. Elsku Steinunn María mín, ég hika ekki við að panta stóra Baby Ruth-tertusneið eins og um dag- inn á Súfistanum næst þegar ég á leið þar um. Þá minnist ég þín og horfi á birtuna draga stafi sína á ný. Hvíl í friði, elsku vinkona. Elsku Ketill, Kári, Katla Ásta, Ari Gunnar og fjölskyldur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Tinna Ragnarsdóttir. Elsku Steinunn okkar er látin langt um aldur fram. Við vorum svo lánsamar að kynnast fyrir næstum áratug, hinum megin á hnettinum, þegar við bjuggum allar í Buenos Aires í Argentínu á sama tíma. Við náð- um strax vel saman – Hið ljós- hærða tríó/Las Tres Rubias – og voru ófá skiptin sem við dönsuð- um saman tangó, hlógum okkur máttlausar og drukkum ma-te fram á nótt. Síðan þá héldum við alltaf góðu sambandi og hittumst við öll tækifæri á Íslandi og einn- ig í Englandi, Danmörku og Sví- þjóð. Það eru margar skemmti- legar og dýrmætar minningar sem við eigum frá þessum fund- um, hvort heldur sem var á kaffi- húsum með te og kökum, í gönguferðum, í dansi eða al- mennu hangsi heima hjá Stein- unni og fjölskyldu í Hafnarfirð- inum. Allt dýrmætar minningar sem við munum deila með börn- unum þegar þau stækka. Það var alltaf glatt á hjalla í kringum Steinunni. Hún var ekki aðeins hörkutól og mikil ævin- týramanneskja með góða nær- veru, hún bjó líka yfir ótrúlegu jafnaðargeði og stóískri ró. Svo var hún líka bara svo skemmti- leg! Steinunn með sitt fallega bros, smitandi hlátur og óborg- anlega húmor. Einnig þegar al- vara var á ferðum, þegar hún var í átökum lífsins, einnig þá var stutt í brosið, hláturinn og húm- orinn. Það var yndislegt að fylgjast með Steinunni og Katli verða ást- fangin og stofna fjölskyldu. Steinunn naut sín í móðurhlut- verkinu og var virkilega ástfang- in og hamingjusöm og nýtti sinn tíma vel – gæði en ekki magn, eins og við ræddum oft. Og Ketill góður pabbi sem veitti Steinunni fullvissu um að börnin væru í góðum höndum. Lífið verður aldrei það sama án Steinunnar og fráfall hennar skilur eftir sig stórt skarð í hjört- um okkar. Elsku Ketill, Katla, Ari, Kári, foreldrar, tengdafor- eldrar, bræður, fjölskylda og ást- vinir, við vottum ykkur innilega samúð á erfiðum tímum. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. Eg veit einn að aldrei deyr: dómur um dauðan hvern. (Úr Hávamálum) Helen Halldórsdóttir og Birta Bjargardóttir. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HAGALÍN GUÐMUNDSSON frá Innri-Hjarðardal, Önundarfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Grund miðvikudaginn 11. september. Útförin fer frá Fossvogskirkju föstudaginn 20. september klukkan 13. Yngvi Hagalínsson Guðbjörg Halldórsdóttir Sigríður Hagalínsdóttir Skafti Þ. Halldórsson Guðrún Hagalínsdóttir Arne B. Vaag Guðmundur Hagalínsson Ágústa Halldórsdóttir og fjölskylda Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, MARZILÍA INGVARSDÓTTIR, Sólborgarhóli, Hörgárbyggð, lést á hjúkrunarheimilinu Eir Grafarvogi 13. september. Útförin fer fram frá Glerárkirkju mánudaginn 30. september klukkan 13:30. Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri. Ingvar Gunnar Óskarsson Lena Cecilia Nyberg Viglín Óskarsdóttir Ólafur Haraldsson Óskar Rafn Ólafsson Baldur Örn Ólafsson Heiðbjört Ingvarsdóttir Valberg Ingvarsson Borghildur Ingvarsdóttir Gerhard Neppl Kristbjörg Ingvarsdóttir Katrín Ingvarsdóttir Amalía Kruuse Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, DAGBJÖRT R. BJARNADÓTTIR, Rauðalæk 21, Reykjavík, frá Berserkseyri, Eyrarsveit, lést laugardaginn 14. september. Linda Björk Pétursdóttir Kristín Pétursdóttir Ásta Bjarney Pétursdóttir Nicolai Jónasson Yngvi Pétursson Marta Konráðsdóttir Minn ástkæri eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HELGI ARNLAUGSSON skipasmiður, lést á líknardeild Landspítalans 15. september. Útför fer fram frá Lindakirkju mánudaginn 23. september klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð líknardeildar og heimahlynningar Landspítalans. Erna R.H. Hannesdóttir Hilda E. Hilmarsdóttir Ólafur Þórðarson Kristinn Helgason Maneerat Anupai Arnlaugur Helgason Anna Birgitta Bóasdóttir Guðrún Helgadóttir Ómar Garðarsson Elsa Kristín Helgadóttir Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson Finnbjörg Skaftadóttir Jóhann Örn Skaftason Anna Helgadóttir Halldóra Skaftadóttir Bjarni Ingvarsson Íris Hv. Skaftadóttir Halldór Geirsson barnabörn og barnabarnabörn Okkar kæri, EINAR VALUR GUÐMUNDSSON sjómaður og athafnamaður, Fjarðarstræti, Ísafirði, varð bráðkvaddur á heimili sínu þriðju- daginn 10. september. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 21. september klukkan 14. Linda Kristín Ernudóttir Valdís María Einarsdóttir Arnar Ingi Einarsson Hildur Ása Einarsdóttir systkini, stjúpbörn, tengdabörn og barnabörn Elsku maðurinn minn, pabbi okkar, tengdapabbi, sonur, tengdasonur, bróðir, mágur og frændi, HARALDUR REYNISSON tónlistarmaður og kennari, Dalamaður og Breiðhyltingur, lést undir Dalanna sól sunnudaginn 15. september. Útförin fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 27. september klukkan 15. Steinunn M. Sigurbjörnsdóttir Steinar Haraldsson Íris Einarsdóttir Reynir Haraldsson Alda Þyri Þórarinsdóttir Sölvi Haraldsson Reynir Haraldsson Jóna Gunnlaugsdóttir Sigurbjörn Sigurðsson Melkorka Benediktsdóttir Hjördís Kristjánsdóttir Linda Björk Ólafsdóttir Brynjar Björnsson Gunnlaugur Reynisson Erla Björk Hauksdóttir Sigurborg H. Sigurbjörnsd. Sveinn Sigurðsson Sigurður Sigurbjörnsson og systkinabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNAR ANDRÉS JÓHANNSSON, bóndi og fv. forstjóri, Árbæ, Holtum, lést á heimili sínu þriðjudaginn 10. september. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju, Holtum laugardaginn 21. september klukkan 14. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á orgel- og minningarsjóð Árbæjarkirkju, kt. 420169-4509, 0308-03-250972. Vigdís Þórarinsdóttir Grétar Þórarinn Gunnarsson Guðríður Sigurðardóttir Maríanna Gunnarsdóttir Ólafur Örn Ólafsson Gunnar Jóhann Gunnarsson Hafdís Svava Níelsdóttir og afabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.