Morgunblaðið - 19.09.2019, Page 56
56 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019
TE
N
G
IT
A
U
G
A
R Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Fjölbreytt og gott úrval til á lager
Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini
Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði
FA
LLB
LA
K
K
IR
BELTI
60 ára Hulda Björk er
Skagamaður, hefur
ætíð búið á Akranesi.
Hún er sjúkraliði að
mennt og vinnur á
Hjúkrunar- og dval-
arheimilinu Höfða.
Maki: Magnús Ólafur
Kristjánsson, f. 1960, vinnur hjá Norður-
áli.
Börn: Ragnheiður Magnúsdóttir, f. 1980,
Ólöf Lilja Magnúsdóttir, f. 1986, og Jó-
hann Bjarki Magnússon, f. 1994. Barna-
börnin eru Patrekur Orri, f. 2002, og Lilja
Björk, f. 2006.
Foreldrar: Ragnar Heiðar Felixson, f.
1938, d. 1980, bílstjóri, og Elísabet Karls-
dóttir, f. 1940, sjúkraliði. Hún er búsett á
Akranesi.
Hulda Björk
Ragnarsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú laðar að þér vini og aðdáendur
vegna þess hversu skemmtileg/ur þú ert.
Þér líður best í margmenni, umkringd/ur
þeim sem draga það besta fram í þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er orðið tímabært að þú dekrir
svolítið við sjálfa/n þig. Þú ert á faralds-
fæti þessar vikurnar og finnst það ekki
leiðinlegt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér finnst sem allir séu að horfa
yfir öxlina á þér og það veldur þér umtals-
verðri streitu. Einhver misskilningur er á
sveimi í ástarsambandinu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það hefur ekkert upp á sig að ætla
að leysa viðkvæmt mál í einu vetfangi. Til-
einkaðu þér aðferðir sem auðvelda þér að
greiða hraðar upp skuldir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Veltu því fyrir þér áður en þú efnir til
deilna hvort ekki sé hægt að gera mála-
miðlun. Notaðu frítíma þinn til að sinna
þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Gerðu það sem þú getur til að
brjóta upp hversdagsleikann í dag. Mundu
að dramb er falli næst.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gætið þess að lenda ekki í milli þegar
vinir ykkar eiga í deilum. Ef þú ert ekki viss
um hvað þér finnst, eða heldur að álit þitt
geti sært einhvern, er betra að þegja.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ástúðlegar tilfinningar til ein-
hvers sem er þér nákominn eru sterkar í
dag. Mundu að oft felst fegurðin í smáat-
riðunum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Einlægar samræður við góðan
vin gera þér gott í dag. Brostu framan í
heiminn. Þú ferð oft fram úr þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vinir þínir og fjölskylda sýna
þér mikinn stuðning á þessu ári. Sýndu
þolinmæði og tillitssemi í samtölum við
samstarfsmenn þína því þeir eiga ekkert
nema gott skilið.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er bráðnauðsynlegt að lesa
vel allt smáa letrið á þeim skjölum sem þú
skrifar undir. Hagaðu seglum eftir vindi.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þegar gera þarf breytingar þarf oft
að taka tillit til margra þátta. Njóttu þess
að slaka á en vertu um leið vakandi fyrir
nýjum hlutum.
ismálin. Það bætast nýir félagar í
hópinn á hverju ári sem margir eru
að takast beint á við vandamálin og
leysa þau í stað þess að mála slag-
orð á kröfuspjöld eða viðra dyggðir
sínar í fjölmiðlum.“
Glúmur átti ekkert frekar von á
því að fara að starfa við efnafræð-
ina eftir að námi lauk þar sem
hann festi ekki þannig hug við
málum. „Ég furða mig enn á því
svartnætti sem einkennir alla um-
ræðu um þau mál á sama tíma og
lífsskilyrði mannsins batna stór-
kostlega ár frá ári. Frá því um
aldamótin hef ég verið verið félagi í
Kinship Conservation Fellows sem
er alþjóðlegur félagsskapur sem
leggur áherslu á að nýta markaðs-
öflin til að takast á við umhverf-
G
lúmur Jón Björnsson er
fæddur 19. september
1969 í Reykjavík. „Að
frátöldu fyrsta árinu í
Langholtsskóla gekk
ég í grunnskóla í Breiðholtinu,
fyrst Ölduselsskóla og svo Selja-
skóla. Foreldrar mínir byggðu
tvisvar í hverfinu þannig að ilm-
andi mótatimbur, dúfnakofar, bog-
ar og túttubyssur úr rafmagns-
rörum og teygjubyssur úr
handföngum af málningardósum
voru mín leggur og skel. Nýbygg-
ingahverfið var með öðrum orðum
draumaland sæmilega uppátækja-
samra krakka.
Ég á því frábærar minningar úr
Seljahverfinu og hugsa oft hlýtt til
allra skóla- og leikfélaga minna
þaðan. Við nýttum einmitt tækifær-
ið nú í sumarlok árgangurinn minn
úr Seljaskóla, þegar skólinn varð
40 ára, til að hittast hér heima hjá
mér áður en haldið var á dansiball
í íþróttahúsi skólans.
Að Seljaskóla loknum tók við
nám í MR með enn fleira dásam-
legu fólki. Í sumarleyfum frá skóla
dvaldi ég ýmist í góðu yfirlæti hjá
ömmu minni og afa og Þórði föð-
urbróður mínum á Siglufirði og
vann þar í fiski eða við hellulagnir
og önnur garðyrkjustörf hjá Þór
Snorrasyni skrúðgarðyrkjumeist-
ara í Reykjavík sem á einmitt líka
afmæli í dag og ég færi hér með
mínar bestu kveðjur í tilefni dags-
ins.“
Í MR kynntist Glúmur Sigríði
eiginkonu sinni en þau voru þá
bæði farin að taka þátt í starfi
Heimdallar þar sem Glúmur sat
svo í stjórn í nokkur ár, þar af eitt
sem formaður félagsins.
„Ég hef síðan átt óteljandi
skemmtilegar stundir í starfi Sjálf-
stæðisflokksins, ekki síst und-
anfarin ár þar sem Sigríður hefur
heldur betur látið til sín taka í
glímunni við kerfið sem þingmaður
og ráðherra. Svo höfum við nokkrir
gamlir félagar úr Heimdalli lengi
haldið úti skoðanaskiptum á vef
Andríkis.“
Glúmur segir að meðan á námi í
efnafræði við HÍ stóð kviknaði hjá
honum mikill áhugi á umhverfis-
námið þrátt fyrir alúð góðra kenn-
ara. „En svo hef ég unað hag mín-
um sérdeilis vel á efnarann-
sóknastofu Fjölvers ehf.
undanfarinn aldarfjórðung með
miklu sómafólki. Við sinnum meðal
annars gæðaeftirliti á eldsneyti og
skyldum efnum fyrir innlend og er-
lend olíufélög,“ en Glúmur hefur
verið framkvæmdastjóri Fjölvers
frá því um aldamótin.
„Við Sigríður höfum búið hér á
vallagötunum í Vesturbænum alla
okkar sambúðartíð enda er hún al-
in upp í hverfinu. Breiðholtsvilling-
urinn hefur því smám saman orðið
Vesturbæjaríhald. Dætur okkar,
Brynhildur og Áslaug, eru auðvitað
miðpunktur tilverunnar. Það er
bara ævintýri að fylgjast með þeim
vaxa úr grasi.
Ég held að maður verði einkum
að nota svona tímamót til að þakka
fyrir þá gæfu að hafa ætíð verið
heppinn með samferðafólk í lífinu,
hvort sem er skóla- og vinnufélaga,
vini eða fjölskyldu.“
Fjölskylda
Eiginkona Glúms er Sigríður Á.
Andersen, f. 21. nóvember 1971.
Glúmur Björnsson efnafræðingur – 50 ára
Fjölskyldan Glúmur ásamt eiginkonu og dætrum, foreldrum og tengdaföður, við fermingu Brynhildar í vor.
Lífið er gott og batnar sífellt
Hjónin Glúmur og Sigríður fóru í fyrsta sinn til Toskana í sumar.
30 ára Ingunn er
Hafnfirðingur. Hún er
með MS-gráðu í klín-
ískri næringarfræði
og vinnur sem klín-
ískur næringarfræð-
ingur á Landspít-
alanum og einnig á
Rannsóknarstofu í næringarfræði.
Maki: Kristinn Bernhard Kristinsson, f.
1986, viðskiptafræðingur og fjármála-
sérfræðingur hjá Saga Natura.
Sonur: Brimar Bernhard Kristinsson, f.
2018.
Foreldrar: Ingvar Svanur Baldvinsson,
f. 1955, d. 1989, bílasali, og Jóhanna
Valdís Jóhannsdóttir, f. 1958, félagsliði
og vinnur á sambýli. Hún er búsett í
Sandgerði.
Ingunn Erla
Ingvarsdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is