Morgunblaðið - 19.09.2019, Page 57
DÆGRADVÖL 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019
„JÁ, JÁ. NÝI STARFSTITILLINN ER SVAKA
FLOTTUR EN ÞÚ VERÐUR ENN UNDIRMAÐUR
SVEINBJARGAR Í INNHEIMTUNNI.”
„EF VIÐ FÁUM FIMM MILLJÓNIR Í
SKAÐABÆTUR ÆTTIR ÞÚ AÐ FÁ EINHVERJA
TUGI ÞÚSUNDA ÚT ÚR MÁLAFERLUNUM.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að gæta þeirra sem
eitt sinn gættu þín.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ODDI,
SJÁÐU!
VIÐ BERJUMST FYRIR BETRI HEIMI!
HA?
BETRI HEIMI FYRIR OKKUR!
JAHÁ!
Starfsheiti: alþingismaður. For-
eldrar Sigríðar: Hjónin Brynhildur
K. Andersen, f. 28.5. 1938, d. 11.3.
2019, húsmóðir í Reykjavík, og
Geir R. Andersen, f. 8.9. 1934, fyrr-
verandi blaðamaður, búsettur í
Reykjavík.
Börn Glúms og Sigríðar eru
Brynhildur Glúmsdóttir, f. 18.10.
2005, og Áslaug Glúmsdóttir, f. 7.3.
2009.
Systur Glúms eru Ellisif Katrín
Björnsdóttir, f. 7.2. 1972, heyrnar-
fræðingur og framkvæmdastjóri,
búsett í Garðabæ, og Soffía Hlín
Björnsdóttir Nielsen, f. 30.12. 1976,
hagfræðingur í Danmörku.
Foreldrar Glúms eru hjónin
Hildur Björg Sverrisdóttir hús-
móðir, f. á Blönduósi 26.3. 1947, og
Björn Búi Jónsson mennta-
skólakennari, f. á Siglunesi við
Siglufjörð 24.9. 1947.
Glúmur Björnsson
Ingibjörg Þórunn Jóhannsdóttir
húsfreyja á Ísafi rði
Sigurgeir Sigurðsson
skipstjóri og síðar verkamaður á Ísafi rði
Elísabet Þórunn Sigurgeirsdóttir
húsmóðir á Blönduósi
Hildur Björg Sverrisdóttir
húsmóðir
Jóhann Sverrir Kristófersson
kaupmaður, bílstjóri og
fl ugvallarvörður á Blönduósi
Dómhildur Símonía Jóhannsdóttir
húsfreyja á Blönduósi
Kristófer Kristófersson
kaupmaður og bókari á Blönduósi
Kristófer Sverrisson
mjólkurfræðingur á Blönduósi
Margrét Jónsdóttir fv.
bóndi á Garði í Þistilfi rði
Elínborg Hannesdóttir
húsfreyja Nýpukoti í Víðidal
Ásmundur Jón Sveinsson
bóndi á Nýpukoti í Víðidal og
síðar Staðarhóli við Siglufjörð
Soffía Jónsdóttir
húsfreyja og verkakona á Siglufi rði
Sigríður Anna Þórðardóttir fv.
alþingismaður og ráðherra
Þórður Þórðarson
vélstjóri á Siglufi rði
Jón Guðmundur Þórðarson
vitavörður á Siglunesi og verkamaður á Siglufi rði
Margrét Jónsdóttir
húsfreyja á Siglunesi
Þórður Þórðarson
vitavörður á Reykjanesi og Siglunesi
Úr frændgarði Glúms Björnssonar
Björn Búi Jónsson
menntaskólakennari
Efnafræðingurinn Glúmur.
Sigurlín Hermannsdóttir yrkir„Haustsonnettu“ undir áhrif-
um frá og til heiðurs Jónasi Hall-
grímssyni, – hér er vel kveðið og
skemmtilega:
Nú andar haustið hryssingsköldum
vindum
og hrannir stórar úrillar sér bylta.
Af trjánum slitnar laufið logagyllta
en lít ég skafla á efstu fjallatindum.
Og bændur fara á fjöll að leita að
kindum
þeim fylgir hópur ungmeyja og pilta.
Á fjórhjólum sig finna alveg tryllta
í fjallakofa örlar smá á syndum.
Fuglinn minn ljúfi, floginn ertu burt
til fjarlægra landa í talsvert betra veður
að spóka þig þar, á stórri sólarströnd.
En ég sit eftir, verð að vera um kjurrt
og veturinn þreyja, hvað sem annars
skeður.
Ég þrái svo hlýju og dýrleg draumalönd.
Pétur Stefánsson er sjálfum sér
trúr, yrkir dróttkvætt um veðrið og
kallar „Haustlægð“:
Gulnar gróður og fölnar.
Gnauða vindar um hauður.
Víða mun hret á heiðum
hamast tímunum saman.
Reiðigjarn stormur ræður
ríkjum á stundu slíkri.
Höldar skulu geðró halda
þó hvessi á degi þessum.
Reifur um götur ráfa
þó regn falli á þegna.
Haustvindur hart að austan
hræða vill fólk í bræði.
Heim kem í huga dreyminn
holdvotur líkt og moldin.
Man nú að albest uni
ég inni með konu minni.
Kári Tryggvason frá Víðikeri gaf
út „Vísuna“ og valdi úrvalsstökur
eftir 120 höfunda. Hér eru nokkrar.
Fyrst eftir Kristínu í Haukatungu:
Lifað hef ég langa ævi laus við hroka
í lítinn skaufa látin moka,
ég lofaði aldrei stórum poka.
Flóvent Jónsson Hlöðum:
Lífið gerist þungt og þreytt
þegar fer að elli.
Fleira er en funi heitt,
fleira sker en járnið beitt.
Hjörtur Kristmundsson skóla-
stjóri:
Árin tifa, öldin rennur,
ellin rifar seglin hljóð;
fennir yfir orðasennur,
eftir lifir minning góð.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Haustsonnetta, haustlægð
og góðar stökur