Morgunblaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 60
60 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019
Pepsi Max-deild karla
FH – ÍBV .................................................. 6:4
Fylkir – Víkingur R.................................. 3:1
Staðan:
KR 20 14 4 2 39:20 46
Breiðablik 20 11 4 5 43:28 37
FH 20 10 4 6 35:33 34
Stjarnan 20 7 8 5 33:31 29
Fylkir 20 8 4 8 35:36 28
HK 20 7 5 8 28:26 26
ÍA 20 7 5 8 25:26 26
Valur 20 7 4 9 34:32 25
Víkingur R. 20 6 7 7 30:31 25
KA 20 7 4 9 27:30 25
Grindavík 20 3 10 7 15:23 19
ÍBV 20 2 3 15 20:48 9
Meistaradeild Evrópu
A-RIÐILL:
Club Brugge – Galatasaray.................... 0:0
París SG – Real Madrid .......................... 3:0
Ángel Di Maria 14., 33., Thomas Meunier
90.
Staðan:
París SG 1 1 0 0 3:0 3
Club Brugge 1 0 1 0 0:0 1
Galatasaray 1 0 1 0 0:0 1
Real Madrid 1 0 0 1 0:3 0
B-RIÐILL:
Olympiacos – Tottenham ....................... 2:2
Daniel Podence 44., Mathieu Valbuena 54.
(víti) – Harry Kane 26.(víti), Lucas Moura
30.
Bayern München – Rauða stjarnan....... 3:0
Kingsley Coman 34., Robert Lewandowski
80., Thomas Müller 90.
Staðan:
Bayern München 1 1 0 0 3:0 3
Olympiacos 1 0 1 0 2:2 1
Tottenham 1 0 1 0 2:2 1
Rauða stjarnan 1 0 0 1 0:3 0
C-RIÐILL:
Dinamo Zagreb – Atalanta..................... 4:0
Marin Leovac 11., Mislav Orsic 31., 42.. 69.
Shakhtar Donetsk – Manch.City ........... 0:3
Riyad Mahrez 24., Ilkay Gündogan 38.,
Gabriel Jesus 76.
Staðan:
Dinamo Zagreb 1 1 0 0 4:0 3
Manch. City 1 1 0 0 3:0 3
Shakhtar D. 1 0 0 1 0:3 0
Atalanta 1 0 0 1 0:4 0
D-RIÐILL:
Atlético Madrid – Juventus .................... 2:2
Stefan Savic 70., Hector Herrera 90. – Juan
Quadrado 48., Blaise Matuidi 65.
Leverkusen – Lokomotiv Moskva ......... 1:2
Sjálfsmark 25. – Grzegorz Krychowiak 16.,
Dmitri Barinov 37.
Staðan:
Lokomotiv M. 1 1 0 0 2:1 3
Atlético M. 1 0 1 0 2:2 1
Juventus 1 0 1 0 2:2 1
Leverkusen 1 0 0 1 1:2 0
EM U17 kvenna
Undanriðill í Hvíta-Rússlandi.
Ísland – Malta........................................... 1:0
Amanda Jacobsen Andradóttir 30.
Frakkland og Ísland eru með 6 stig og
bæði komin áfram í milliriðil. Malta og
Hvíta-Rússland eru án stiga.
KNATTSPYRNA
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Ekki var nóg með að ríkjandi Evr-
ópumeistarar Liverpool hefðu byrj-
að illa í Meistaradeildinni í fótbolta
í fyrrakvöld, heldur hóf sigursæl-
asta félag Evrópufótboltans frá
upphafi keppnina á brauðfótum í
gærkvöld.
Real Madrid, þrettánfaldur Evr-
ópumeistari, steinlá fyrir París SG í
frönsku höfuðborginni, 3:0, og til að
strá salti í sárin var það fyrrverandi
leikmaður félagsins, argentínski
kantmaðurinn Ángel Di María, sem
skoraði tvö fyrstu mörk frönsku
meistaranna strax í fyrri hálf-
leiknum. Thomas Meunier innsigl-
aði sigurinn í uppbótartíma eftir að
leikmenn PSG höfðu gjörsamlega
sundurspilað gestina frá Madríd.
Þægilegur útisigur City
Englandsmeistarar Manchester
City voru ekki í neinum vandræðum
með að sigra Shakhtar Donetsk
austur í Úkraínu, 3:0. Riyad Ma-
hrez og Ilkay Gündogan komu City
í þægilega stöðu fyrir hlé og Gabriel
Jesus innsiglaði sigurinn með marki
í seinni hálfleiknum.
Bayern München fór líka vel af
stað og vann Rauðu stjörnuna frá
Serbíu 3:0. Þar innsigluðu Robert
Lewandowski og Thomas Müller
sigurinn með mörkum á lokakafla
leiksins.
Tottenham tapaði forskoti
Tottenham komst í góða stöðu í
Grikklandi þar sem enska liðið náði
tveggja marka forystu eftir hálf-
tíma leik gegn Olympiacos. Harry
Kane fékk vítaspyrnu og skoraði úr
henni og Lucas Moura bætti við
marki fjórum mínútum síðar.
Grikkirnir voru hinsvegar búnir að
jafna metin strax í upphafi síðari
hálfleiks, 2:2, og þar við sat.
Annar lítt þekktur sló í gegn
með þrennu
Annað kvöldið í röð sló lítt þekkt-
ur framherji í gegn í Meistaradeild-
inni. Nú var það hinn króatíski Mis-
lav Orsic sem skoraði þrennu fyrir
Dinamo Zagreb þegar Króatarnir
léku Atalanta frá Ítalíu grátt og
sigruðu 4:0. Orsic er 26 ára gamall
og lék í fjögur ár í Suður-Kóreu áð-
ur en hann kom aftur til heimaborg-
arinnar Zagreb og gekk til liðs við
Dinamo á síðasta ári. Hann gerði
sex mörk í króatísku deildinni síð-
asta vetur en er nú þegar kominn
með fimm mörk á þessu tímabili.
Atletico Madrid náði í stig á síð-
ustu stundu á heimavelli gegn Ju-
ventus þegar Hector Herrera jafn-
aði metin í 2:2 í byrjun
uppbótartímans.
Risi á brauð-
fótum í París
Real Madrid fór mjög illa af stað
AFP
Sætt Ángel Di Maria fagnar eftir að hafa komið París SG yfir gegn sínu
gamla félagi Real Madrid og hann átti eftir að bæta við öðru marki.
Gary Martin er kominn á fleygiferð
í baráttuna um markakóngstitil úr-
valsdeildar karla í fótbolta 2019 eft-
ir að hafa skorað þrennu fyrir ÍBV í
6:4 ósigrinum gegn FH í gær. Mart-
in hefur því gert sjö mörk í síðustu
fjórum leikjum ÍBV og samtals 11
mörk í deildinni en tvö þau fyrstu
gerði hann fyrir Val í vor. Martin
hefur því náð Hilmari Árna Hall-
dórssyni sem er með 11 mörk fyrir
Stjörnuna og er einu marki á eftir
Thomas Mikkelsen sem er marka-
hæstur í deildinni með 12 mörk fyr-
ir Breiðablik. vs@mbl.is
Verður Martin
markakóngur?
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Þrenna Gary Martin með boltann í
leiknum í Kaplakrika í gær.
Morten Beck Guldsmed, danski fram-
herjinn hjá FH, varð í gær fyrsti leik-
maðurinn í 46 ár til að skora þrennu í
tveimur leikjum í röð í efstu deild
karla í knattspyrnu hér á landi. Hann
gerði þrjú marka FH í 6:4 sigrinum á
ÍBV, sem fjallað er um á næstu síðu,
og þrennu í 3:1 sigri á Stjörnunni í
síðasta leik. Sá síðasti sem lék þenn-
an leik var Hermann Gunnarsson í
júlí árið 1973. Hann skoraði þá
þrennur í 6:0 sigri Vals á ÍBV og 6:3
sigri Vals á Breiðabliki. Hermann
setti markamet þetta ár með því að
skora 17 mörk í deildinni. vs@mbl.is
Næstur á eftir
Hemma Gunn
Þrennur Hermann Gunnarsson setti
markamet í deildinni árið 1973.
Sex Íslendingar geta tekið þátt í leikjum sinna liða í Evr-
ópudeildinni í fótbolta í kvöld og fjórir þeirra gætu spil-
að sinn fyrsta leik á þeim vettvangi. Hörður Björgvin
Magnússon og Arnór Sigurðsson hafa reynslu af því að
spila með CSKA Moskva í Meistaradeildinni en þeirra lið
mætir Ludogorets í Búlgaríu í kvöld og þar geta þeir
spilað í Evrópudeildinni í fyrsta sinn.
Arnór Ingvi Traustason er reyndastur í Evrópudeild-
inni því hann á þar að baki 12 leiki með Malmö og Rapid
Vín. Malmö sækir Dynamo Kiev heim til Úkraínu í kvöld.
Jón Guðni Fjóluson lék tvo leiki með Krasnodar í
deildinni í fyrra en lið hans sækir Basel heim til Sviss.
Rúnar Már Sigurjónsson þreytir frumraun sína í Evrópudeildinni en lið
hans, Astana frá Kasakstan, á sannkallaðan stórleik fyrir höndum í kvöld
gegn Manchester United á Old Trafford. Loks gæti Albert Guðmundsson
spilað sinn fyrsta Evrópudeildarleik en AZ Alkmaar fer til Serbíu og leikur
þar við Partizan Belgrad. vs@mbl.is
Sex íslenskir í Evrópudeild
Rúnar Már
Sigurjónsson
Ágúst Elí Björgvinsson, landsliðs-
markvörður í handknattleik, átti
stórgóðan leik í marki Sävehof í
gærkvöld þegar sænsku meist-
ararnir unnu Rabotnik frá Norður-
Makedóníu, 25:24, í Meistaradeild
Evrópu. Ágúst varði 14 skot í leikn-
um, þar af eitt vítakast, og var með
37 prósent markvörslu. Sävehof
hefur unnið tvo fyrstu leiki sína í
keppninni. Þá var Sigvaldi Björn
Guðjónsson markahæstur hjá El-
verum frá Noregi með 6 mörk í
tapi, 26:19, gegn þýsku meist-
urunum Flensburg.
Átti stórleik í
Meistaradeild
Ljósmynd/IK Sävehof
Góður Ágúst Elí Björgvinsson átti
drjúgan þátt í sigri Sävehof.