Morgunblaðið - 19.09.2019, Síða 62

Morgunblaðið - 19.09.2019, Síða 62
VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Megas heldur tónleika á Kex hosteli í kvöld kl. 20, ásamt gítarleikar- anum Daníel Friðriki Böðvarssyni og píanóleikaranum Davíð Þór Jóns- syni. Tónleikarnir eru á dagskrá Klikkaðrar menningar, menning- arhátíðar á vegum samtakanna Geð- hjálpar sem fagna 40 ára afmæli í ár. Á hátíðinni verður boðið upp á „fullt af sjúklegum atriðum með klikkuðu listafólki“, eins og segir á fésbók. Megas er þá væntanlega einn hinna klikkuðu, hver sem merking þess orðs er, nota bene, og er spurð- ur að því hvort efnisskráin verði al- veg klikkuð. „Ég er svolítill orð- hengill og búinn að liggja yfir orðinu að klikka og að klikka þýðir ýmis- legt. Byssa klikkar,“ segir Megas. Hann efast þó um að ætlunin sé að eitthvað klikki á hátíðinni, síður en svo. – Þetta á að vera geggjað … „Já og nú er það orðið geggjað, það hefur nú gengið í gegnum mikl- ar merkingarbreytingar.“ Eðlilegt í svona samfélagi – Þú samdir „Paradísarfuglinn“ árið 1977 þar sem þú syngur um konu sem „gjörðist veik á geði“, var geðveiki ekki algjört tabú á Íslandi í þá tíð? „Tabú og ekki tabú, þá var byrjuð þessi málhefð að eitthvað væri geggjað og margir litu á geggjun sem einhvers konar hálfsjálfsvíg, það er að segja þú droppar út úr þjóðfélaginu en getur droppað inn í það aftur,“ svarar Megas og líkir þessu við að upplifa eigin jarðarför. – Hafa geðsjúkdómar komið oft við sögu í þínum textum? „Já, það er eðlilegt í svona sam- félagi,“ segir Megas. – Það er líka afstætt hver er sjúk- ur og hver ekki, ekki satt? „Já, og náttúrlega afskaplega skakkt mat þar á ferðinni,“ svarar Megas og segir margan góðborgar- ann hrjáðan. Hann er spurður hvers vegna hann hafi beðið Daníel og Davíð að koma fram með sér á hátíðinni og segir hann Daníel hafa komið sjálf- krafa til greina þar sem hann hafi verið gítarleikarinn hans í seinni tíð. „Svo hitti ég Davíð Þór og hann var bara hugfanginn af hugmyndinni að spila á þessari hátíð. Hann er, eins og allir vita, einstakur,“ segir Megas en þeir Davíð hafa unnið saman áð- ur. Hann ber báðum hljóðfæraleik- urunum vel söguna og segir þá jafn- víga á hið mögulega og ómögulega. Allt leiki í höndunum á þeim og þeir eigi auðvelt með að tengja við sam- vitundina enda næmi þeirra algert alnæmi. Hefur farið fram úr sjálfum sér Megas hefur gjarnan litið um öxl á tónleikum sínum, oft valið lög sem hann hefur ekki flutt lengi og segir hann tónleika sína alltaf hafa að vissu leyti verið retróspektífa, aftur- lit – blandað prógramm af gömlum lögum í nýjum útgáfum og nýjum með fæðingarfitunni. Hann hefur sjálfur sagst lítinn mun sjá á sínum elstu og yngstu verkum, þróunin hafi verið lítil sem engin þótt tækninni hafi fleygt fram. „Ég hef náttúrlega líka farið fram úr sjálfum mér; á plötunni Fram og aftur blindgötuna var „Gamla gasstöðin“ sem var diskó, á Á bleikum náttkjólum var pönklag, „Paradísarfuglinn“, og á Hættulegri hljómsveit & glæpakvendinu Stellu kom „Söngur um ekkert“ sem var acid house,“ segir Megas. Tjörukenndar hægðir? Talið berst aftur að klikkun, að vera klikk og klikki. Megas segir blaðamanni sögu sem snertir klikk, af því þegar hann sótti um starf gæslumanns á Kleppi, ungur að ár- um. „Ég var settur í persónuleika- próf, 600 spurninga prófið, og heyrði svo ekkert frá þeim. Ég hringdi loks í Klepp, sagðist hafa sótt um starf og verið settur í próf og ekkert heyrt frá þeim. Ég vildi fá einhverja niðurstöðu. Konan brá sér frá, talaði við einhvern og spurði hvort ég gæti komið inn eftir til þeirra. Jú, ég átti tíma aflögu, tek strætó á Klepp og sest í biðstofu. Mér er svo vísað til yfirmanns þessara prófana og það var unglegur maður og mikil gæða- sál. Hann sagði mér að taka þetta ekki nærri mér en ásinn átti að vísa þráðbeint niður ef allt var með felldu. Minn gerði það ekki og það var frávik sem gerði mig óhæfan,“ segir Megas. „Svo sagði hann dálítið ófaglega þegar hann var að kveðja mig og ég var að fara út úr dyrun- um: Við höfum líka heyrt þessa plötu þína,“ segir Megas og gleðst yfir minningunni. Var þar átt við fyrstu plötu hans, samnefnda hon- um. „Þetta próf var æði víðtækt. Ein spurningin var: Hafið þér fengið svartar, tjörukenndar hægðir? Já eða nei? Þegar ég sagði mínum ágæta lækni frá þessu prófi – hann kom ekkert nálægt því – gerði hann þá athugasemd að maður sem væri með annan fótinn í norminu og hinn í óreiðunni væri langtum betri til að passa upp á geðsjúklinga en hinir sem skortir frávikið.“ Innblásinn af Hamförum Megas er spurður hvað hann sé að sýsla í listinni þessa dagana og segist hann hafa verið að vinna lengi vel að verkefni innblásnu af plötu Gunnars Jökuls heitins, Hamförum, þar sem finna má lög á borð við „Hundurinn minn“, „Kaffið mitt“ og „Bíllinn minn“. Titlarnir segja til um umfjöllunarefnin og Megas virðist hafa heillast mjög af þessu verki. Bókverk hans í Pastel-ritröðinni, Geitungabúið mitt (ekki er allt sem sýnist þó sjáist), er hluti af þessu textasafni og kom út árið 2017. Hann á fleiri langa texta í fórum sínum sem tengjast þessu þema Gunnars Jökuls og segir hugmynd- ina að plötu Gunnars hafa verið merkilega þótt úrvinnslan hafi ekki verið nógu góð. „Hann klikkaði, geigaði,“ segir Megas um plötuna og að hann sé að gera hana upp, svo að segja. „Þetta er búið að taka svo langan tíma, ég er búinn að lúra á þessu eins og einhverju leyndar- máli.“ Bálkinn segir hann hafa byrjað með „Bílnum sínum“ og „Bólinu“ og fleiru þess háttar og Geitungabúið hafi komið með seinni skipunum. „Og „Neyslan mín“, henni hef ég lokið,“ bætir Megas við. Hvernig og hvort þessi bálkur mun koma út læt- ur hann ósagt en í það minnsta eru lög og textar til ofan í skúffu. Ýktar og upplognar frásagnir Klikkið getur verið gjöfult og í því eru fólgin frávik, líkt og fyrr er get- ið. „Frávikið er eins og klikkið í byssunni en mun fjölbreyttara,“ bendir Megas á. Frávikið tengist líka minni- og meirihluta og segist Megas alltaf hafa viljað tilheyra meirihlutanum. „Árið 1968 var í tísku að vera vinstrimaður og ég var náttúrlega vinstrimaður, hafði það úr foreldragarði,“ nefnir hann. Megas virðist líka hafa tilhneig- ingu til að fjalla um frávik, fara út fyrir normið, án þess þó að tilgang- urinn sé að styggja nokkurn. Frá- sagnirnar eru ýktar hjá honum og stundum upplognar, ef það hljómar betur. „Maður verður að læra regl- urnar til að kunna að brjóta þær.“ Við snúum okkur aftur að lagaval- inu á tónleikunum í kvöld. Megas greinir frá því að fyrir nokkrum ár- um hafi hann verið fenginn til að semja „geðjaða“ texta fyrir Geð- læknafélag Íslands við þekkt lög, m.a. „Kenndu mér að kyssa rétt“ og „Summertime“ en síðan samdi hann ný lög við þessa texta og setti þau á plötur. Lögin sem flutt verða í kvöld eru valin vegna tilefnisins, sem er 40 ára afmæli Geðhjálpar. „Ég vil allt gera fyrir hann Einar Þór,“ segir Megas að lokum og á þar við for- mann Geðhjálpar sem er Jónsson. Með annan fótinn í óreiðunni  Megas kemur fram á Klikkaðri menningu á Kex hosteli  „Frávikið er eins og klikkið í byssunni en mun fjölbreyttara,“ segir hann  Frávik gerði hann óhæfan í starf gæslumanns á Kleppi Morgunblaðið/Eggert Geðjaðir Fyrir nokkrum árum var Megas fenginn til að semja „geðjaða“ texta við þekkt lög og verða einhver þeirra flutt í kvöld á tónleikunum á Kex hosteli. Frávik olli því að hann hlaut ekki starf gæslumanns á Kleppi. 62 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019 Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is samlegt ka nýmalað, engin h lki. á y –

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.