Morgunblaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019 Blaðamannafundur vegna Alþjóð- legrar kvikmyndahátíðar í Reykja- vík, RIFF, var haldinn í gær en há- tíðin hefst eftir slétta viku, fimmtu- daginn 26. september, með frum- sýningu á kvikmyndinni End of Sentence eftir Elvar Aðalsteinsson. Hátíðinni lýkur svo 6. október með frumsýningu á Parasite eftir suð- urkóreska leikstjórann Bong Joon- ho sem hlaut aðalverðlaun kvik- myndahátíðarinnar í Cannes í vor. Sýningar á hátíðinni munu fara að mestu fram í Bíó Paradís en einnig í Norræna húsinu, Sundhöll Reykja- víkur og Lofti hosteli. Þá verður kvikmyndadagskrá RIFF einnig víða um borgina og þá m.a. á bóka- söfnum, í félagsheimilum, fangelsum og á hjúkrunarheimilum. RIFF er nú haldin í 16. sinn og eru flestar myndanna á dagskrá nýj- ar af nálinni eða nýlegar og umfjöll- unarefnin allt milli himins og jarðar. Alls verða 147 myndir sýndar, þar af 42 kvikmyndir í fullri lengd, 24 heimildarmyndir og 81 stuttmynd. Sérstök athygli verður veitt kvik- myndum frá Austurríki og heiðurs- gestir ð þessu sinni eru þrír: leik- stjórinn Claire Denis sem hlýtur heiðursverðlaun, framleiðandinn Katja Adomeit sem hlýtur heiðurs- nafnbótina upprennandi meistari og leikarinn John Hawkes. Um 57% kvikmyndagerðarmanna sem verk eiga á hátíðinni eru karlar og 43% konur og á hátíðinni verða sýndar myndir frá 48 löndum. Frekari upp- lýsingar má finna á riff.is. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Niðurtalning Frá blaðamannafundi sem haldinn var í gær vegna RIFF. 147 myndir á RIFF Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Á þriðja tug tónlistarmanna kemur fram á minningartónleikum um Jóhann Jóhannsson, tónskáld og tónlistarmann, sem lést í febrúar í fyrra Tónleikarnir eru haldnir í til- efni þess að Jóhann hefði orðið fimmtugur í dag, 19. september. Tónleikarnir verða haldnir í Hall- grímskirkju á laugardaginn, 21. september, klukkan 20. „Þótt þetta séu minningartón- leikar leggjum við áherslu á að við séum að halda upp á afmælið hans. Þetta eiga ekki að vera sorgartón- leikar, heldur komum við saman aðdáendur og vinir og njótum ávaxta stórbrotins listamanns,“ segir Lárus Jóhannesson, eigandi 12 tóna og vinur Jóhanns. Lárus er einn af þeim sem koma að skipulagningu tónleikanna. „Þetta verða mjög stórir, tví- skiptir tónleikar en á þriðja tug tónlistarmanna kemur fram. Fyrir hlé erum við með kammerhluta úr mörgum af þekktustu verkum Jóa eins og „Englabörnum Orpheé“, „Fordlandia“ og „IBM 1401“ sem hann setti saman til þess að túra með. Þau sem eiga heiðurinn af þessu eru Una Sveinbjarnardóttir, Ólafur Björn Ólafsson og Skúli Sverrisson, sem unnu öll mjög ná- ið með Jóa í langan langan tíma þannig að þetta er eins nálægt hugmyndum hans um hvernig ætti að upplifa eigin tónlist og hugsast getur,“ segir Lárus. „Við settum þessa dagskrá sam- an í fyrra og fórum með hana til Moskvu í desember. Þar var heilt kvöld með tónlist Jóa í nýjum glæsilegum 1.500 manna tónleika- sal við Rauða torgið, viðtökurnar voru frábærar í fullum sal og það er virkilega gefandi að þessi dag- skrá verði nú loksins flutt í fyrsta sinn á Íslandi.“ Verk flutt í fimmta skipti Eftir hlé verður verkið „Virðu- legu forsetar“ flutt í heild sinni. „Það var frumflutt í Hallgríms- kirkju á Kirkjulistahátíð í maí 2003 og er fyrir brasssveit, slag- verk, orgel, píanó og elektróník. Það er eitt af hans allra fegurstu og sérstæðustu verkum og tekur um 70 mínútur í flutningi. Þetta verður mjög stór stund því verkið hefur einungis verið flutt fjórum sinnum í heild frá upphafi fram að þessu.“ Það hefur því mikla þýðingu að verkið skuli nú aftur flutt í Hall- grímskirkju. „Jói skrifaði verkið með þessa kirkju og þetta orgel í huga svo Hallgrímskirkja er rétti staðurinn til þess að flytja þetta verk. Fleiri eftirminnilegir tón- leikar með tónlist Jóa hafa verið hér enda lagði hann alltaf mikla áherslu á sali og staðsetningar,“ segir Lárus. Það er ekki bara staðsetningin sem er þýðingarmikil heldur einn- ig val á flytjendum. „Það sem ég legg svo mikla áherslu á þegar ég er með tónleika tengda Jóa er að þeir sem taka þátt í flutningnum séu með djúpar rætur í hans tónlist því þetta er mjög sérstök tónlist,“ segir Lárus. „Á tónleikunum kemur fram stór hluti þeirra sem frumfluttu „Virðulegu forseta“. Fremstan ber að nefna Guðna Franzson sem stjórnar verkinu og hefur eigin- lega gert það að sínu, einnig verða Skúli Sverrisson og organistinn Guðmundur Sigurðsson þar á með- al sem og margir af Caput- blásurunum. Þetta verður mjög eftirminnileg stund.“ Jóhann lést aðeins 48 ára að aldri. Hann var heimsþekktur fyrir kvikmyndatónlist sína og hlaut meðal annars Golden Globe-verð- laun árið 2014 fyrir tónlistina í kvikmyndinni The Theory of Everything og var tilnefndur til Óskars-, BAFTA- og Grammy- -verðlaunanna fyrir kvikmynda- tónlist sína. Jóhann vandvirkur öðlingur Lárus kynntist Jóhanni áður en sá síðarnefndi varð stórstjarna. „Ég og félagi minn Jóhannes Ágústsson stofnuðum 12 tóna árið 1998. Þá hafði ég vitað hver Jóhann var í gegnum senuna en svo kynntumst við mjög náið í kjölfarið á þessu og urðum síðan útgefendur að mörgum af hans fyrstu plötum. Þegar hann varð stærra og stærra nafn hélt hann yfirleitt íslenska réttinum af útgáf- unum sínum með það í huga að við gætum þá gefið plöturnar hans út undir 12 tóna-nafninu. Það var hans fallega og látlausa leið til þess að minna sjálfan sig á upp- runa sinn og styðja og heiðra vini sína.“ Spurður hvaða mann Jóhann hafði að geyma segir Lárus: „Í sem fæstum orðum var hann snillingur og öðlingur. Ótrúlega vandvirkur og vinnusamur og það var mikil elja í honum. Allt sem hann gerði var úthugsað og búið að leggja mikla vinnu í það. Það var mjög lærdómsríkt að sjá hvernig hann nálgaðist þessi verk sín og gaf sig allan í þau. Allt sem hann gerði var með því markmiði að það myndi skila sér í betri tónlist. Á bak við stundum ein- falda ólýsanlega fegurð var mikil og flókin vinna. Svo var hann líka frábær náungi og við nutum þess að vera saman og spjalla um heima og geima. Hann var mikill húmoristi og auðvitað bara dásam- legur en líka bara venjulegur mað- ur sem var með þessa snilligáfu.“ Lárus sér um skipulagningu tónleikanna í samvinnu við The Jóhann Jóhannsson Foundation sem hann er stjórnarformaður í. „Hún var stofnuð af fjölskyldu, vinum og samstarfsmönnum Jóa víða um heim með það að mark- miði að halda minningu hans á lofti og láta gott af sér leiða í hans nafni. Eitt af markmiðunum er einmitt að stuðla að lifandi flutn- ingi á verkum hans og styðja við bakið á þeim sem slíkt gera og tengja fólk saman. Fólk getur lagt okkur lið á samnefndri heimasíðu sjóðsins, margt smátt gerir eitt stórt.“ Jóhanns er minnst með tónleik- um víða um heim í haust vegna stórafmælisins. „Tónleikarnir á laugardaginn eru einir af mörgum um heim allan á þessum tímamót- um, ég veit líka um þó nokkra sem koma sérstaklega hingað til lands til að vera hér á tónleikunum. Í okkar huga eru þeir fyrsti vísir að tónlistarhátíð í nafni Jóhanns sem við vonumst til að geta haldið á tveggja ára fresti hér á Íslandi og mun sú hátíð eflaust hafa ein- hverja skírskotun í kvikmynda- heiminn,“ segir Lárus Miða á tónleikana má nálgast á Tix.is. Hægt er að leggja sjóði Jóhanns lið á heimasíðunni the- johannjohannssonfoundation.org. Morgunblaðið/Eggert Vinir Lárus Jóhannesson heldur á veggspjaldi fyrir minningartónleikana í verslun sinni 12 tónum við Skólavörðu- stíg. Lárus og Jóhann voru miklir vinir en sá fyrrnefndi gaf út plötur Jóhanns, sérstaklega snemma á ferli hans. Njóta ávaxta „stór- brotins listamanns“  Minningartónleikar haldnir um Jóhann Jóhannsson Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Góð þjónusta byrjar með flottum fatnaði. Fatnaður fyrir fagfólk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.