Morgunblaðið - 19.09.2019, Page 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í Eldborg Hörpu í kvöld kl.
19.30 verða leikin tvö lykilverk 20.
aldar eftir Debussy og Prokofíev en
einnig nýleg verðlaunatónsmíð eftir
bandaríska tónskáldið Jennifer
Higdon.
„Higdon er meðal fremstu tón-
skálda Bandaríkjanna um þessar
mundir en hún hlaut hin virtu Pulitz-
er-verðlaun árið 2010 fyrir fiðlu-
konsertinn sem hljómar nú á Íslandi
í fyrsta sinn. Í rökstuðningi sagði
dómnefnd Pulitzer-verðlaunanna að
þetta væri „sérlega heillandi verk
sem hefur að geyma bæði tæra ljóð-
rænu og glæsileg tæknitilþrif““, seg-
ir í tilkynningu frá sveitinni og rifjað
upp að gagnrýnandi tímaritsins
Gramophone hafi lýst konsertinum
sem „hrífandi og litríkum“.
Í hlutverkum einleikara og stjórn-
anda eru tveir ungir Bandaríkja-
menn, fiðluleikarinn Benjamin
Beilman og hljómsveitarstjórinn
Roderick Cox. Gagnrýnendur New
York Times og The Strad hafa lof-
sungið „þróttmikla spilamennsku“
Beilmans og „tilfinningu fyrir hinu
ljóðræna“, eins og segir í tilkynn-
ingu. Cox hefur vakið „mikla eftir-
tekt fyrir kraftmikinn og nákvæman
stjórnunarstíl og hlaut nýverið hin
virtu Solti-verðlaun sem veitt eru
ungum hljómsveitarstjórum“.
Boðið verður upp á tónleikakynn-
ing í Hörpuhorni kl. 18 fyrir tón-
leikana þar sem Árni Heimir Ing-
ólfsson fjallar um verkin sem flutt
verða á tónleikunum, sem eru auk
fiðlukonsertsins eftir Jennifer Hig-
don forleikur að Síðdegi skógarpúk-
ans eftir Claude Debussy og Sin-
fónía nr. 5 eftir Sergej Prokofíev.
Cox stjórnar Debussy,
Prokofíev og Higdon
Morgunblaðið/Eggert
Nákvæmur Hljómsveitarstjórinn Roderick Cox á æfingu með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Hljómsveitin Þríeykið heldur tón-
leika í Hannesarholti í kvöld kl. 20.
„Þríeykið er í raun lagskipting kyn-
slóðanna þar sem hvert lag kemur
inn á ólíkum forsendum sem sam-
einast í ástríðu á tónlist. Aldurs-
forsetinn Valgeir Guðjónsson skip-
ar grunnlagið og stendur nokkuð
fast í fæturna með sinn drjúga poka
af tónlistar- og textagóssi á baki.
Dóttir Valgeirs, Vigdís Vala, skipar
yngsta og efsta og lagið en hún hef-
ur alist upp í skapandi tónlistar- og
vísindaumhverfi frá blautu barns-
beini. Vigdís Vala er nú komin með
góða kippu af eigin verkum en í vís-
indaumhverfinu þar sem hún starf-
ar dúkkaði þriðji tónverksmað-
urinn upp sem skipar miðlagið. Sá
heitir Magnús Oddsson en hann
tengir hin lögin saman með sínum
fágætu eiginleikum. Magnús er
verkfræðingur og vísindamaður
sem starfað hefur fyrir Össur til
margra ára, þar á meðal í Kína, þar
sem hann bjó þá með konu sinni og
þremur börnum,“ segir í tilkynn-
ingu frá skipuleggjendum.
Þríeykið kemur fram í Hannesarholti
Þríeyki Vigdís Vala Valgeirsdóttir, Magnús
Oddsson og Valgeir Guðjónsson.
Tónlistarhópurinn Umbra heldur
tónleika í Vinaminni á Akranesi í
kvöld kl. 20. Á efnisskránni er
blanda af trúarlegri og veraldlegri
miðaldatónlist frá Evrópu í bland
við íslensk þjóðlög. Umbra hlaut Ís-
lensku tónlistarverðlaunin árið
2018 fyrir hljómplötu sína Sólhvörf
sem var valin þjóðlagaplata ársins.
Listafélagið Kalman stendur að
tónleikunum í samvinnu við Tóna-
land.
Umbra leikur í Vinaminni á Akranesi
Hópurinn Umbra leikur á Akranesi í kvöld.
Myndlistarsýn-
ingin Ljósið sem
fékk ekki að loga
eftir Írisi Maríu
Leifsdóttur verð-
ur opnuð í dag
kl. 17 í Flæði á
Grettisgötu 3 og
er það fyrsta
einkasýning Ír-
isar. Á henni má
sjá málverk mál-
uð á tré sem voru svo brennd. Sýn-
ingin fjallar um sorgarferli í kjölfar
þungunarrofs, að því er fram kem-
ur í tilkynningu og segir þar að að-
ferðin sem listamaðurinn notist við
sé að brenna akrýl á tré til þess að
viðurinn skíni í gegn. Með brun-
anum fylgi þyngd vanlíðunar sem
um leið opni á frelsi. „Sorgin
gleymir þér ekki, hún yfirgefur þig
ekki, en hún verður öðruvísi með
tímanum,“ skrifar Íris m.a. og að
sýningin sé tileinkuð konum.
Íris María
Leifsdóttir
Sorg í kjölfar
þungunarrofs
Uppselt er á sýn-
ingar Bíós Para-
dísar á tónleik-
um málmsveit-
arinnar Metall-
icu og San
Francisco-
sinfóníuhljóm-
sveitarinnar og
hefur því verið
bætt við sýn-
ingum í sal 2,
bæði miðvikudaginn 9. október og
laugardagskvöldið 12. október.
Þessa tvo daga mun fyrirtækið
Trafalgar Releasing bjóða upp á
S&M² sem á vef bíósins er sagður
„ómissandi 20 ára afmælisvið-
burður hinna byltingarkenndu
S&M-tónleika (Symphony & Metal-
lica) og plötu sem tekin var upp
með Sinfóníuhljómsveit San Franc-
isco“. Hljómsveitarstjórinn Michael
Tilson Thomas stýrir hluta úr tón-
leikunum sem teknir voru upp 6. og
8. september sl. og voru á þeim flutt
mörg lög af upphaflegri útgáfu
S&M1999 auk sinfónískra útsetn-
inga á nýrri lögum. Frekari upplýs-
ingar á bioparadis.is.
Sal 2 bætt við
vegna eftirspurnar
James Hetfield
úr Metallica.
Kringlan | s: 577-7040 | loccitane.is
Immortelle Reset næturserumið var innblásið af ferskri morgunbirtu
Provence, sem endurspeglast í kröftugri blöndu náttúrulegra innihaldsefna.
Immortelle ilmkjarnaolían leynist inni í örsmáum gylltum hylkjunum sem
fljóta um í serumi úr kryddmæru. Serumið hjálpar húðinni að endurnæra
og jafna sig eftir hraðan og upptekinn lífstíl nútímans.
Litarhaftið fær greinilega ÚTHVÍLT og LJÓMANDI útlit.
VAKNAÐU MEÐ
ÚTHVÍLDA HÚÐ
UNGLEGT OG LJÓMANDI ÚTLIT