Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2019, Side 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2019, Side 2
Segðu mér aðeins frá áskoruninni Lifðu í gleði? Þetta er vikulöng áskorun í gegnum tölvupóst sem felur í sér lítil dagleg verkefni til að rækta sína innri manneskju. Þetta er góð leið til að hlúa að sér og jafnvel stíga aðeins út fyrir þægindarammann en þar lærum við yfirleitt eitthvað nýtt. Hvernig kviknaði hugmyndin? Ég fékk hugmyndina í sumar eftir hugleiðslu og ákvað að nota haustið til að gera áskorunina. Haustið er tíminn þar sem allir fara í rútínu aftur eftir sumarfrí og hversdagurinn tekur við á ný. Margir fara í ræktina og taka til í mataræðinu en stundum gleymum við að hlúa að andlegu hliðinni. Ef við hreyfum okkur reglulega er þá ekki líka nauðsynlegt að huga að andlegu hliðinni nokkrum sinnum í viku eða daglega? Fyrir hverja er verkefnið hugsað? Fyrir alla, konur og karla, unga sem aldna. Þetta er jafnvel eitthvað sem fjölskyldur, vinir eða pör geta gert saman. Nú ert þú með kakóhugleiðslu á sunnudaginn, út á hvað gengur hún aðallega? Ég er með kakó nidra á sunnudaginn í Om setrinu í Reykjanesbæ en ég held reglulega viðburði þar sem og í Reykjavík og á Suðurlandi. Á sunnudaginn býð ég upp á jóga nidra með bolla af hreinu kakói frá Gvate- mala. Jóga nidra er aldagömul liggjandi djúpslökunaraðferð jóganna og miðar að því að leiða þátttakandann á stað handan hugans þar sem hægt er að njóta djúprar hvíldar. Kakó- ið og hvers konar djúpslökun eiga það sameiginlegt að draga úr myndun streituhormónsins kortisóls í líkamanum þannig að það er tilvalið að blanda saman nidra og kakói. Hvað er svo á döfinni hjá þér í haust? Ég er nýkomin frá USA þar sem ég lauk námi í tónheilun og tónþerapíu og mun bjóða upp á þannig viðburði í haust. Að auki er ég að skipuleggja endurnærandi jóga- og hug- leiðsluhópferð til Gvatemala í ársbyrjun 2020 en þangað hef ég farið með hópa frá Íslandi síðastliðin ár. Ég elska að brjóta upp íslenska veturinn á þennan hátt. Svo bíð ég bara spennt eftir næstu hugmynd sem ég fæ eftir hugleiðslu! KAMILLA INGIBERGSDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Hugar að and- legu hliðinni Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.9. 2019 SKRIFSTOFUHÚSGÖGN Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is Bjóðum uppá húsgögn eftir marga fræga húsgagnahönnuði. Mörg vörumerki. Sá eða sú sem stýrir draumförum mínum hefur oft og tíðum háleitarihugmyndir um líf mitt og störf en ég sjálfur. Þannig dreymdi migeina nóttina fyrir skemmstu að ég væri að ýta úr vör ákaflega metn- aðarfullu verkefni, heimildarmyndinni Umhverfis jörðina – á inniskónum. Býsna merkilegt í ljósi þess að eina framlag mitt til kvikmyndasögunnar til þessa er lítil fræðslumynd um öryggi á sundstöðum sem gerð var fyrir ald- arfjórðungi meðan ég var við nám í hagnýtri fjölmiðlun við Háskóla Ís- lands. Raunar kom fleira fólk að gerð þeirrar myndar, sem var ágæt til síns brúks en langt í frá kvikmynda- sögulegur viðburður. Veit ekki einu sinni hvort ég myndi muna hvernig taka á lokið af linsunni í dag. Hvað þá meira. Í vöku gæti mér ugglaust dott- ið í hug að ferðast umhverfis jörð- ina á inniskónum í bókstaflegri merkingu og Jónasi sem vann á skrifstofunni hjá Þór á Akureyri í gamla daga pottþétt líka en í draumnum kom skýlaust fram að það var ekki hugmyndin á bak við verkefnið. Þar höfðu inniskórnir mun dýpri merkingu. Ég ætlaði sumsé að ferðast kringum jörðina og setja mig í spor heimamanna á hverjum stað fyrir sig. Fara í inniskóna þeirra. Býsna snjallt verð ég að segja og nokkuð sem myndi aldrei flögra að mér í vöku. Til allrar hamingju tæmir draumstýrir/draumstýra mín reglu- lega úr alls kyns skúffum sem vistaðar eru í undirmeðvitundinni. Verkefnið vakti að vonum mikla athygli og vildu helstu blöð og sjón- varpsstöðvar ólm ná tali af mér; þurfti ég að berja helvítin af mér eins og flugur. Alltaf sama frekjan í þessu fjölmiðlafólki; það getur hreinlega ekki látið okkur listamennina í friði! Eitt viðtal ákvað ég þó að veita. Hef alltaf borið djúpa virðingu fyrir Boga Ágústssyni og þegar hann sló á þráðinn rann mér blóðið til skyldunnar. Viðtalið fór, að frumkvæði Boga, fram um borð í strætisvagni. Eins og gengur. Til að gera langa sögu stutta varð ég svo hrikalega „starstruck“ í návist Boga að ég gat ekki stunið upp hálfu orði. Hvað þá heilu. Fyrir vikið veit ég í reynd ekkert meira um þetta tímamótaverkefni en þú, lesandi góð- ur, en bíð þess nú spenntur á hverju einasta kvöldi að leggjast til hvílu. Ef til vill fæ ég frekari upplýsingar í nótt. Ef til vill ekki. Umhverfis jörðina – á inniskónum Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Verkefnið vakti aðvonum mikla athygliog vildu helstu blöð ogsjónvarpsstöðvar ólm ná tali af mér; þurfti ég að berja helvítin af mér eins og flugur. Kristvin Finnsson Við flokkum og erum með moltu. SPURNING DAGSINS Hvað gerir þú til að vera umhverfis- væn/n? Margrét Teresa Fjeldsted Við erum með flokkunarfötur heima og mamma er mjög ströng með það svo ég hef vanið mig á að flokka allt. Thomas Máni Snizek Ég flokka plast. Anna Sólveig Ég flokka allt í tætlur. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Christopher Lund Morgunblaðið/Eggert Áskorunin Lifðu í gleði hefst mánudaginn 30. september. Kamilla Ingibergsdóttir stýrir áskoruninni en skráning fer fram á kako.is og er þátttaka ókeypis. Kamilla stýrir einnig kakó nidra í Reykjanesbæ sunnudaginn 29. september. Skráning fer fram á tix.is.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.