Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2019, Side 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2019, Side 4
Eftir að fréttin birtist á baksíðu Sunnudagsblaðs Morgunblaðs- ins í apríl sl. og blaðið hafði fengið ábendingu um að Guð- mundur Jónsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, hefði verið um borð í Goðafossi í þessari síðustu siglingu frá Reykjavík þá hringdi sá er þetta ritar í Guðmund og spurði hvort koma mætti á sambandi milli hans og George Valdimars Tie- demanns. Guðmundur sagði það sjálfsagt mál; hann gæti vel hugsað sér að ræða við og hitta George Valdimar en tók þó fram að hann hefði ekki mikið um siglinguna sjálfa að segja. Eftir það skiptust sonur Guð- mundar, Jón, og George Valdi- mar á tölvupóstum, þar sem drög voru lögð að fundi nú í september. Svo sem fram kemur hér til hliðar lést Guð- mundur þó áður en til fund- arins kom. Jón Guðmundsson segir fjölskyldu sína hafa haft mikið yndi af því að hitta George Valdimar. „Við fund- um til dæmis passann hans pabba og nokkrar myndir af honum í Bandaríkjunum. Hef ekki séð myndir frá ferðinni yfir hafið. Pabbi vildi víst ekki mikið ræða þessa ferð. Bræður mínir segja að hann hafi átt erfitt með að lesa bókina hans Ótt- ars Sveinssonar um slysið,“ segir Jón. Vildi lítið ræða ferðina George Valdimar Tiedemann við brott- för til New York 17. september sl. 23 daga ferð tók sex tíma George Valdimar Tiedemannman að vonum ekkert eftirþví að hafa siglt níu mán- aða gamall ásamt móður sinni, Magnúsínu Brynjólfínu Valdimars- dóttur úr Aðalvík, með gamla Goða- fossi frá Reykjavík til New York í september 1944. Seinna fékk hann þó mikinn áhuga á þessari siglingu enda var þetta í hinsta sinn sem Goðafoss lét úr höfn í Reykjavík; þýskur kafbátur sökkti skipinu sem frægt er á heimleiðinni. Til að minnast þeirra tímamóta að 75 ár eru nú liðin frá siglingunni kom George Valdimar, sem búsettur er í Bandaríkjunum, til Íslands fyrr í mánuðinum og flaug með Icelandair vestur um haf nákvæmlega 75 árum eftir að hann lagði af stað í sína fyrstu langferð, 17. september. „Það er ótrúlegt til þess að hugsa að 23 daga ferðalag í stríðinu tók mig nú aðeins fimm klukkustundir og fimm- tíu mínútur,“ segir George Valdimar í samtali við Sunnudagsblað Morg- unblaðsins en flogið var til Newark- flugvallar. Svo skemmtilega vill til að George Valdimar hefur alla tíð haldið upp á vegabréfið sem hann fékk sem kornabarn hérna á Íslandi en það ber hið virðulega númer 8. „Gaman væri að komast að því við tækifæri hverjir áttu vegabréf númer 1-7,“ segir hann sposkur. Hann hafði vegabréfið að sjálf- sögðu með sér nú og flugstjórinn í fluginu vestur, Bjarni Berg, var svo almennilegur að handskrifa kveðju til George Valdimars í vegabréfið; til að kallast á við stimpilinn sem hinn ungi eigandi fékk haustið 1944. „Það er heiður að hafa þig um borð 75 ár- um síðar,“ skrifaði Bjarni m.a. Í apríl á þessu ári lýsti George Valdimar, í samtali við Sunnudags- blað Morgunblaðsins, eftir fólki sem var í siglingunni vestur 1944 og létu viðbrögð ekki á sér standa. Blaðið fékk strax ábendingu um tvær manneskjur sem voru um borð og voru enn á lífi, Evelyn Anker Metts, sem búsett er í Bandaríkjunum, og Guðmund Jónsson, fyrrverandi hæstaréttardómara í Reykjavík. Komst George Valdimar í framhald- inu í samband við þau bæði. Bak- grunnur Evelyn er svipaður og hans eigin en hún átti íslenska móður og bandarískan föður, rétt eins og George Valdimar. Evelyn man að vísu heldur ekki eftir siglingunni en haldið var upp á ársafmæli hennar á leiðinni. George Valdimar hafði áhuga á að fá Evelyn með sér til Ís- lands í haust en hún átti ekki heim- angengt. Þau eru í góðu sambandi og hafa skipst á fjölmörgum sögum. Lést rétt fyrir fundinn Guðmundur Jónsson fæddist árið 1925 og var því nítján ára þegar hann sigldi með Goðafossi vestur um haf, þar sem hann lagði í framhald- inu stund á nám. Mundi því vel eftir siglingunni. Til stóð að þeir George Valdimar myndu hittast nú í mán- uðinum, meðan á heimsókn þess síð- arnefnda stóð, en af því varð því mið- ur ekki, þar sem Guðmundur féll frá 29. ágúst síðastliðinn eftir skamm- vinn veikindi. Ekkja Guðmundar, Fríða Hall- dórsdóttir, og þrír synir þeirra, tóku á hinn bóginn á móti George Valdi- mar á dögunum. Fékk gesturinn meðal annars að skoða vegabréf Guðmundar sem innihélt nákvæm- lega sama stimpilinn og hann býr að sjálfur. „Það var mjög ánægjulegt að hitta fjölskylduna. Ég varði ríflega klukkustund með henni og synir Guðmundar tjáðu mér að faðir þeirra hefði mjög sjaldan minnst á Goðafoss. Þeir telja að hann hafi aldrei jafnað sig á manntjóninu sem varð á heimleiðinni, ekki síst dauða áhafnarmeðlima sem hann kynntist sumum hverjum vel þessa 23 daga sem siglingin stóð yfir,“ segir George Valdimar. George Valdimar, annar frá hægri, ásamt Fríðu Halldórsdóttur og son- um þeirra Guðmundar Jónssonar, Einari Rúnari, Halldóri og Jóni. Íslensk/bandaríski ljósmyndarinn George Valdi- mar Tiedemann minntist þess á dögunum að 75 ár eru liðin frá því að hann lagði upp í sína fyrstu langferð, með Goðafossi frá Reykjavík til New York 17. september 1944. Skipið náði aldrei aftur til heimahafnar, var sökkt á leiðinni til baka. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Guðmundur Jónsson um líkt leyti og hann sigldi vestur um haf árið 1944. Þegar George Valdimar lenti á Íslandi árla morg- uns 13. september sl. ók hann gegnum Reykja- nesbæ og meðfram strandlengjunni. Kom þá auga á þessar forvitnilegu steinfígúrur við aftureld- ingu sem hann mátti til með að skoða betur. „Þetta leit út fyrir að vera karl og kona frosin í tíma starandi út á hafið í bið eftir ástvinum. Er þetta áhrifaríkur minnisvarði um það sem gerðist fyrir 75 árum? spurði ég mig.“Ljósmynd/George Valdimar Tiedemann HEIMURINN 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.9. 2019 BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR SÉRBAKAÐfyrir þig SALATBAR ferskur allan daginn Sunnumörk 2, Hveragerði, og Larsenstræti 5, Selfossi • Sími 483 1919, Almar bakari • Opið alla daga kl. 7-18

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.