Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2019, Side 11

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2019, Side 11
Bókanir og nánari upplýsingar eru hjá Hótelbókunum í síma 821-9997 - netfang: hotel@hotelbokanir.is. Ítarleg ferðalýsing er á hotelbokanir.is Niko ehf. | Sigtúni 3 | 800 Selfoss | Kt. 590110-1750 Argentína Brasilíaog – til endamarka heimsins Sérferð 1. – 15. mars 2020 Friðrik Ásmundsson Brekkan, einn reyndasti leiðsögumaður Íslendinga verður leiðsögumaður okkar meðan á ferðinni til Argentínu og Brasilíu stendur. Friðrik hefur heimsótt um 50 lönd og talar átta erlend tungumál þ.m.t. spænsku sem er opinbert tungumál Argentínumanna. Verð á mann 1.090.000 kr.* Aukagjald fyrir eins manns herbergi er 139.000 kr. Innifalið: Flug á SAGA-Premium Class frá Keflavík til Buenos Aires og heimflug frá Rio de Janeiro, þ.mt. skattar og gjöld. Allt innanlandsflug í Argentínu og Brazilíu, þ.mt. skattar og gjöld. Gisting í 13 nætur í tveggja manna herbergi í góðum og vel staðsettum 3ja og 4-stjörnu hótelum.Máltíðir samkvæmt ferðalýsingu. Allur flutningur og skoðunarferðir þ.m.t. aðgangseyrir samkvæmt ferðaáætlun. Skoðunarferðir í Buenos Aires og aðgangur að grafhýsi Evu Peron. Tango sýning og sameiginlegur kvöldverður í Buenos Aires. Ferðalög til Tierra del Fuego þjóðgarðarins auk bátsferðar.Heimsókn á búgarð ásamt góðum kvöldverði. Dagsferð til stærsta stöðuvatns Argentínu, Lago Argentino og stærsta innanlandsjökuls veraldar, Perito Moreno. Heimsókn til hinna heimsfrægu Iguazú fossa bæði frá argentínsku og brasilísku landsvæðum, þ.m,t. bátsferð. Skoðunarferðir og slökun í Rio de Janeiro. Svæðisleiðsögu- menn / náttúruleiðsögumenn. Ferðaleiðsögn Friðriks Brekkan sem tekur á móti hópnum og verður með honum allan tímann. Íslensk fararstjórn Sigurðar K. Kolbeinssonar sem ferðast með hópnum frá upphafi til loka. * Hægt er að fljúga á Economy Class alla leið. Verð pr. mann 815.000 kr. Takmarkað sætaframboð. Boeing 787 Dreamliner á Premium Class Hefur þig alltaf dreymt um Suður Ameríku? – Nú er tækifærið Uppgötvaðu Buenos Aires „París Suður-Ameríku“, njóttu breiðstrætanna og sjáðu Tangó þar sem hann er þjóðdans. Patagónía, Lago El Calafate, heimsókn á fjárbúgarð í fallegu umhverfi við Lago Roca í Los Glaciares þjóðgarðinum þar sem gott útsýni er til Andesfjalla. Sjáðu stærsta stöðuvatn Argentínu, Lago Argentino og stærsta innanlandsjökul í heimi Perito Moreno þar sem þú heyrir brak og bresti frá litlum og stórum jökulhlaupum sem senda flóðbylgjur út í vatnið. Ushuaia er opinberlega syðsta staðsetta borg heims og liggur við „enda heimsins“; Eldslandið. Bátsferð á Beaglesundinu þar sem siglt er út að hinum fræga vita, Les Eclaireus, í gegnum klettótt hafsvæði með náttúruleiðsögn innfædds leiðsögumanns, mergð albatrossa, ýmissa andategunda, fuglategunda, sæljón og jafnvel mörgæsategundir sem dvelja líka á þessum slóðum. Þjóðgarðurinn Tierra del Fuego, heimsókn í gamla fangelsið sem í dag er byggða- og sögusafn. Þar segir frá frumbyggjum, suðurskautsleiðangrum, flotasögu og föngum í þessu einangraða og fjarlæga fangelsi við enda heimsins. Iguazú þjóðgarðurinn, Iguazú fossarnir þeir stærstu í heimi – í raun 275 fossar dreifðir yfir þriggja kílómetra svæði. Rio de Janeiro, Sykurtoppurinn og Kristsstyttan! Gríptu tækifærið og komdu með.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.