Morgunblaðið - 08.10.2019, Page 2

Morgunblaðið - 08.10.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2019 Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tíma- reiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313 TANGARHÖFÐA 13 577 1313 - kistufell.com BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Skera niður endurgreiðslur  Óbreytt staða muni setja rekstrarforsendur kvikmyndaframleiðenda í uppnám Samtök iðnaðarins (SI) og Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda (SÍK) gera alvarlegar at- hugasemdir við að í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2020 er gert ráð fyrir niðurskurði endurgreiðslna vegna kvikmyndagerðar á Íslandi á næsta ári. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að ráðstafa 691,4 milljónum króna í endurgreiðslur vegna kvik- myndaframleiðslu. „Ásamt því að um er að ræða niðurskurð á milli ára er einnig um stórvægilegt misræmi að ræða ef tekið er mið af útgefnum vil- yrðum um endurgreiðslu,“ segir í sameiginlegri umsögn SI og SÍK um fjárlagafrumvarpið. Samkvæmt upplýsingum frá Kvikmyndamið- stöð Íslands (KMÍ), sem heldur utan um endur- greiðslur vegna kvikmyndagerðar, nema áætlaðar endurgreiðslur á næsta ári 1.650 milljónum króna miðað við útistandandi vilyrði frá því í september á þessu ári. Nú þegar stefni í að endurgreiðslum á 300 milljónum, vegna ársins 2019, verði frestað fram á næsta ári. Sú fjárhæð muni því koma til lækkunar þess sem verður til ráðstöfunar á næsta ári. „Ósamræmið sem hér um ræðir hlýtur að skýrast af röngum forsendum um áætlaðar endur- greiðslur á árinu 2020,“ segir í umsögninni. Að mati SI og SÍK er ljóst að fjármagn til endurgreiðslu verði uppurið snemma á næsta ári verði fjárhæðin í fjárlagafrumvarpinu ekki leið- rétt í meðförum fjárlaganefndar. „Slíkt mun ekki einungis hafa í för með sér um- talsvert tjón fyrir þá aðila sem hafa fengið þessi vilyrði heldur mun orðspor Íslands sem kjörlendi til kvikmyndaframleiðslu bíða hnekki.“ Fyrirhugað er að í vetur rísi nýr útsýnis- pallur við Hrafnagjá í þjóðgarðinum á Þing- völlum. Hrafnagjá er við austurjaðar sig- dældarinnar á Þingvöllum, um sjö kílómetra austan við Þjónustumiðstöðina, en Al- mannagjá er að vestanverðu. Einar Á.E. Sæ- mundsen þjóðgarðsvörður segir að þarna opnist glæsilegt útsýni frá austri til vesturs yfir sigdældina. Um nýjan útsýnisstað sé að ræða og hann sé töluvert stærri en sá sem áður var við Hrafnagjá og var aflagður við endurbætur á veginum, sem lauk í haust. Þá var stökum bílastæðum fækkað, m.a. í öryggisskyni, en allstórt bílastæði gert við Hrafnagjá. Þjóð- garðsvörður vonast til að pallurinn verði fullfrágenginn næsta vor. Spurður um kostnað segir Einar að hann gæti orðið 15- 20 milljónir, samkvæmt fyrstu áætlunum. Landslagsarkitektarnir Þráinn Hauksson og Eiður Páll Birgisson og teiknistofan Landslag ehf. hanna útsýnispallinn. Teikn- ingar fara á næstunni fyrir skipulags- yfirvöld í Bláskógabyggð. aij@mbl.is Nýr útsýnispallur við Hrafnagjá Tölvumynd/Landslag ehf. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamála- ráðherra, opnaði í gærkvöldi nýja vefsíðu Hags- munasamtaka heimilanna um neytendamál við hátíðlega athöfn í Petersen-svítunni við Ingólfs- stræti. Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, hélt stutt erindi ásamt þeim Ragnari Þór Ingólfssyni, formanni VR, og Styrmi Gunnarssyni, fyrrverandi rit- stjóra. Vefsíðunni er ætlað að vera upplýsinga- veita um neytendavernd á Íslandi. Þar verður hægt að kynna almennt efni um stöðu neytenda- mála hér á landi, baráttumál Hagsmunasamtaka heimilanna sem eru tíu ára um þessar mundir, og ráðgjöf samtakanna um viðskipti neytenda á fjármálamarkaði. Neytendatorg Hagsmunasamtaka heimilanna Morgunblaðið/Árni Sæberg Ný upplýsingaveita um neytendavernd á Íslandi var þróuð fyrir heimilin í landinu og Hagsmunasamtökin Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra setti nýverið af stað þarfagreiningu á skipaflota Landhelgisgæslu Íslands og mun sú vinna miða að því að efla getu og styrk Gæsl- unnar. „Það er eðli- legt framhald af því að þyrluflot- inn hefur verið styrktur veru- lega. Áhersla og fjármögnun okk- ar, á nýjum þyrl- um og þyrlu- áhöfnum, mun styrkja leit og björgun bæði á hafi og á landi,“ sagði Áslaug í samtali við Morgun- blaðið. Í Morgunblaðinu á fimmtudag- inn sl. var rætt við Björn Karls- son, forstjóra Mannvirkjastofn- unar, sem vakti athygli á stöðu Gæslunnar í fyrirlestri um áhættu- mat á norðurslóðum í síðustu viku. Sagði hann að leitar- og björg- unarsvæði á ábyrgð Íslendinga væri um 1,9 milljónir ferkílómetra að stærð og bætti við að ef stórt skemmtiferðarskip lenti, til að mynda, í alvarlegu sjóslysi í jaðri þess, fjarri ströndum, þyrfti vart að spyrja að leikslokum. Til greina kemur að Gæslunni verði veitt aukið fjármagn til fjárfestinga í nýju fjárlagafrumvarpi en það veltur þó á því að Gæslan sjálf óski eftir því. Ágúst Ólafur Ágústsson, þing- maður Samfylkingarinnar og með- limur fjárlaganefndar, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær að Gæslan þyrfti að meta sína eigin þörf „og það þyrfti þá að koma ósk frá henni á borð nefndarinnar“ ætti að veita henni aukið fjármagn. „Staða Landhelgisgæslunnar hefur styrkst mikið og nú hefur sjötta þyrluáhöfnin verið fullfjár- mögnuð til að nýta þann tækjakost sem við búum yfir betur. Við höf- um verið að efla þyrluflotann og það er afar mikilvægt að hann sé fullmannaður svo hann nýtist sem best. Síðan munum við fá nýjar þyrlur með fullkomnum tækjabún- aði sem gerir Landhelgisgæsluna enn betur í stakk búna að koma sjófarendum til bjargar sem og að bregðast við auknu álagi og fleiri verkefnum,“ segir Áslaug Arna. Þarfa- greining á skipaflota  Eðlilegt framhald af styrkingu þyrluflotans Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir BSBR fagnar því að gert sé ráð fyrir lengingu fæðingarorlofs og lækkun skattþrepa í fjár- lagafrumvarpi fyrir árið 2020, segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, um nýja um- sögn þess um fjárlagafrumvarpið.„En við höf- um verulegar áhyggjur af því að í fjárlaga- frumvarpinu sé verið að boða niðurskurð og hagræðingaraðgerðir á opinbera þjónustu og stofnanir ríkisins,“ segir hún. Verulegar áhyggjur BSRB UM FJÁRLAGAFRUMVARPIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.